Fréttablaðið - 31.01.2014, Síða 54
KYNNING − AUGLÝSINGLífeyrissjóðir FÖSTUDAGUR 31. JANÚAR 20144
Mótframlagið jafngildir launahækkun
„Viðbótarlífeyrissparnaður hefur ýmsa kosti en sá stærsti er
tvímælalaust mótframlag vinnuveitanda, ef launþegi spar-
ar að lágmarki 2% af launum leggur vinnuveitandi til 2%
mótframlag. Því má segja að þeir sem ekki eru með viðbót-
arlífeyrissparnað séu í raun að afþakka 2% launahækkun.
Við bætist að enginn tekjuskattur er greiddur af viðbótar-
lífeyrissparnaði fyrr en hann er tekinn út. Að auki er hann
undanþeginn fjármagnstekju- og eignaskatti. Saman gera
þessir kostir það að verkum að hagkvæmara sparnaðarform
er vandfundið.“
Laun lækka verulega þegar farið er á eftirlaun
„Þó greitt sé í lögbundinn lífeyrissjóð af öllum tekjum þá
verða lífeyrisgreiðslurnar mun lægri en meðallaunin yfir
ævina og geta, ef ekkert er að gert, lækkað um allt að helm-
ing þegar eftirlaunaaldurinn hefst. Viðbótarlífeyrissparn-
aður getur brúað þetta bil að hluta og með honum er hægt
að tryggja svipuð lífsgæði eftir að starfsævinni lýkur.“
Viðbótarsparnaður hefur reynst vel og komið mörgum
til bjargar
„Frá því að viðbótarsparnaðurinn var tekinn upp fyrir
um 15 árum hefur hann reynst launþegum afar vel. Sam-
anlagðar eignir almennings í viðbótarsparnaði telja nú yfir
400 milljarða króna. Eftir efnahagshrunið 2008 var opnað
fyrir takmarkaðar og tímabundnar útgreiðslur viðbótar-
sparnaðar, fjölmargir hafa nýtt sér þá heimild og hafa þess-
ir fjármunir reynst mörgum vel í þrengingum síðustu ára.
Þrátt fyrir að margir hafi nýtt sér þessa heimild eru þeir
enn fleiri sem hafa ekki snert inneignina sína og eiga hana
óskipta þegar kemur að efri árum. Það er auðvitað mjög já-
kvætt.“
Sterk staða Íslenska lífeyrissjóðsins
„Íslenski lífeyrissjóðurinn er rekinn af Landsbankanum.
Sjóðurinn tekur bæði við iðgjöldum í séreign og samtrygg-
ingu. Sjóðurinn tekur við lögbundnu iðgjaldi, þ.e. 12% ið-
gjaldi í gegnum samtryggingardeild en nýtir heimild í
lögum til þess að blanda saman samtryggingu og séreign.
Með því móti verður stærri hluti lífeyrissparnaðarins í sér-
eign. Í séreign býður sjóðurinn upp á fjórar ávöxtunarleið-
ir en ávöxtun eigna Íslenska lífeyrissjóðsins hefur verið góð
undanfarin ár. Samtryggingardeild sjóðsins stendur líka
vel en gott jafnvægi er á milli eigna og skulda og trygginga-
fræðileg staða sjóðsins því góð.“
Úrræði stjórnvalda gætu hentað mjög mörgum
„Sérfræðihópur stjórnvalda hefur kynnt nýjar tillögur um
aðgerðir í skuldamálum heimilanna, en samkvæmt þeim
verður mögulegt að nýta viðbótarsparnað til að greiða inn á
húsnæðislán, án þess að tekjuskattur sé greiddur. Viðbótar-
sparnaður hefur fram til þessa verið afar hagkvæmt sparn-
aðarform vegna mótframlagsins, en ef hægt er að greiða við-
bótarsparnaðinn skattfrjálst inn á húsnæðislán verður hann
enn hagkvæmari en áður og mun spara lánþegum mikinn
vaxtakostnað þegar fram í sækir. Heimilt verður samkvæmt
fyrirliggjandi tillögum að ráðstafa 6% iðgjaldi inn á höfuð-
stól viðkomandi láns en skattleysi takmarkast við 500 þús-
und kr. á ári fyrir hvert heimili eða hverja eign. Gert er ráð
fyrir að úrræðið gildi í þrjú ár og að það komi til framkvæmda
um mitt ár 2014.
„Þeir sem ekki greiða í viðbótarsparnað geta nýtt sér úrræði
stjórnvalda með því að stofna samning um hann. Eins og þetta
hefur verið kynnt þá takmarkast sú heimild við þá sem skuld-
uðu húsnæðislán fyrir 1. desember 2013. Það eru hins vegar
engar takmarkanir gagnvart þeim sem hafa nýtt sér önnur
úrræði, eins og t.d. 110% leiðina eða sértæka skuldaaðlögun
þannig að úrræðið ætti að nýtast stórum hópi. Einnig er ráð
fyrir því gert að úrræðið nái til þeirra sem eiga ekki húsnæði
í dag. Þeim mun bjóðast að taka það sem safnast í viðbótar-
sparnað á næstu 3-5 árum út án skattlagningar og nýta sem út-
borgun í íbúðarhúsnæði. Báðar þessar leiðir, þ.e. að greiða inn
á húsnæðislán og að safna inn á húsnæðissparnaðarreikning
eru mjög hagstæðar, og það er hiklaust hægt að hvetja fólk til
að kynna sér þessar leiðir vel þegar þær hafa verið útfærðar.“
Helstu kostir viðbótarlífeyrissparnaðar
■ Bætir lífskjör þín á efri árum.
■ Mótframlag frá vinnuveitanda.
■ Erfist að fullu.
■ Skattalegt hagræði.
■ Ávöxtun er undanþegin fjármagnstekjuskatti.
■ Hægt að fylgjast með þróun inneignar í heimabanka.
Hagkvæmasti sparnaður sem völ er á
Ólafur Páll Gunnarsson, verkefnastjóri lífeyrissparnaðar Landsbankans og framkvæmdastjóri Íslenska lífeyrissjóðsins, segir
viðbótarlífeyrissparnað vera hagkvæmasta sparnað sem völ er á.
Ásgrímur Guðnason
Viðskiptavinur Landsbankans„Maður á að
nýta sér þetta“
Allt sem þú vilt vita um viðbótarlífeyrissparnað
landsbankinn.is/istuttumali
Landsbankinn landsbankinn.is 410 4000
ÁVÖXTUN ÍSLENSKA LÍFEYRISSJÓÐSINS
OG LÍFEYRISBÓKAR LANDSBANKANS
1 ár 5 ár 10 ár
Líf I 8,6% 11,2% 8,3%
Líf II 7,0% 10,2% 7,7%
Líf III 5,4% 9,5% 6,9%
Líf IV 2,2% 8,3% 6,1%
Samtrygging 9,5% 8,7% 7,0%
Lífeyrisbók, verðtr. 5,8% 8,3% 10,9%
Lífeyrisbók, óverðtr. 4,3% 5,7% 8,5%
Meðalnafnávöxtun á ári.
Ólafur Páll
Gunnarsson
verkefnastjóri
lífeyrissparn-
aðar Lands-
bankans.