Fréttablaðið - 31.01.2014, Side 58
FRÉTTABLAÐIÐ María Lovísa Árnadóttir. Uppáhaldshlutirnir. Netverslun. Helgarmaturinn & Spjörunum Úr.
10 • LÍFIÐ 31. JANÚAR 2014
1. Þegar ég var ung þá bjó ég á
… Blönduósi
2. En núna bý ég í … Mílanó
3. Ég mun eflaust aldrei skilja …
mikilvægi símastanda í London.
Þeir eru alls staðar en notar þá
einhver?
4. Ég hef ekki sérstakan áhuga
… á því að versla. Mig lang-
ar frekar til að borga fyrir upp-
lifanir og ferðalög heldur en
flíkur.
5. Karlmenn eru … bara karl-
menn, nema einn, því hann er
einstakur.
6. Ég hef lært að maður á alls
ekki að … kyngja tyggjóinu sínu.
7. Ég fæ samviskubit þegar …
ég labba fram hjá fólki sem
betlar, því maður getur ekki
hjálpað öllum.
8. Ég slekk á sjónvarpinu þegar
… ég hef setið of lengi fyrir
framan það.
9. Um þessar mundir er ég mjög
upptekin af … næringarfræði
og hreyfingu.
10. Ég vildi óska þess að fleiri
vissu af … því hvað Höfðaborg
er frábær staður.
EYDÍS HELENA
EVENSEN
19 ÁRA FYRIRSÆTA
Eydís Helena Evensen
Forréttindi að vera íslendingur
Var skrítið að flytja heim aftur til
Íslands aftur eftir langa búsetu er-
lendis?
„Einhver sem bjó lengi erlend-
is sagði við mig að það myndi taka
mig tvö ár að lenda og það má eig-
inlega segja að það hafi reynst rétt.
Börnin mín aðlöguðust furðu fljótt
og nutu frelsisins á Íslandi í botn
sem gladdi mig mjög. Mér fannst
sjálfri þó mjög skrítið að vera
komin hingað í fyrstu enda var ég
með annan fótinn úti og að vinna í
gegnum Skype og því ekki í mikl-
um tengslum við þjóðfélagið á Ís-
landi hvað vinnuna varðaði. Það er
ótrúlegt hvað það hefur mikil áhrif
og hvað vinnan tengir okkur við
staðinn sem við búum á. Það var
dásamlegt að vera loksins nálægt
fjölskyldu og vinum og ég nýt þess
að vera úti og anda að mér brak-
andi fersku loftinu. Það var þó ekki
fyrr en ég fór að finna mér verk-
efni hér heima og fór að leika mér
að því að hanna íslenskar vörur
að ég upplifði mig tengjast land-
inu mínu aftur. Núna er ég lent og
komin á minn stað, búin að finna
rætur mínar og á aftur heima
„heima“. Hér vil ég vera enda flott-
asta land í heimi og ég er stolt af
því að hafa þau forréttindi að geta
kallað mig Íslending.“
Hvað veitir þér innblástur dags-
daglega?
„Það er svo margt! Ég fæ inn-
blástur úr öllum áttum og á sjald-
an dag án þess að nýjar hugmynd-
ir fæðist. Ég er í eðli mínu forvitin
og hef áhuga á mjög mörgu þann-
ig að hvort sem ég er að lesa bók,
blað eða vefsíðu, skissa upp teikn-
ingar, í sundi eða í göngutúr úti í
náttúrunni þá er alltaf stutt í inn-
blásturinn.
Það eru samt börnin mín sem
veita mér djúpstæðasta innblást-
urinn alla daga með því að vera
alltaf svo opin, forvitin og áhuga-
söm um lífið og með því að vera
oftast glaðvær og eiga stutt í hlát-
urinn. Þau laða það besta fram
í mér og hvetja mig til þess að
tengjast barninu í sjálfri mér og
kenna mér því líklega meira en ég
get kennt þeim. Lífið væri enda-
laust skemmtilegt ef við sæjum
það með augum barnanna.“
Hæfileikarnir liggja á mörg-
um sviðum. Er það eitthvað annað
sem að þú stefnir á að gera á
næstunni?
„Minn lærdómur í lífinu er
svolítið sá að kunna að meta að
„minna er meira“. Ég hugsa oft í
stóru samhengi og virðist stund-
um framleiða hugmyndir þann-
ig að það hefur gerst að ég fær-
ist meira í fang í verkefnum en ég
ætla mér. Því stefni ég eingöngu
á að halda fókusnum á nákvæm-
lega það sem ég er að gera núna
og sinna því vel. Ég er líka svo
heppin að fá útrás fyrir umfram-
sköpunarkraft í gegnum aðra með
því að ýta undir sköpunargleði
og skapandi lausnir hjá þeim sem
starfa með mér í markþjálfun.“
Ingibjörg Stefánsdóttir var í leiklistar- og dansnámi í New York 1997
þegar hún uppgötvaði jóga. Áætlanir hennar um framtíð og starfsframa
snarbreyttust við það og síðan þá hefur hún lært ýmsar tegundir af jóga-
æfingum og menntað sig í fræðunum bæði í Bandaríkjunum og á Ind-
landi. Hún rekur jógastöðina YogaShala auk þess að vera þriggja barna
móðir.
JÓGAKENNARINN
Ingibjörg Stefánsdóttir, jógakennari,
leikkona, föstudagsforsíða
Markþjálfunarstarfið er mjög skemmti-
legt og fæ ég útrás fyrir mörg persónu-
leg áhugasvið og kynnist alls konar
rekstri og viðskiptasköpun. Ég nýti að
mörgu leyti bæði heilahvelin mín sem
hafa gaman af hönnunarhugsun og
stjórnun og stefnumótun.
Af hverju fórstu að læra til
jógakennara?
„Ég var búin að stunda jóga í nokk-
ur ár í Bandaríkjunum og ákvað að
byrja að kenna þegar ég flutti heim.
Mig minnir að það hafi ekki marg-
ir verið að kenna þann jógastíl sem
ég var að læra en það eru jóga-
tegundirnar „ashtanga vinyasa“
og „vin yasa flow“. Þar sem ég var
búin að vera lengi í dansi heill-
aði „asht anga“ mig upp úr skónum.
Það byggist á rútínum sem fólk lærir
smám saman utan að. Mér finnst
líka rosalega gott að svitna og taka
dálítið á þegar ég æfi og þessar
jógategundir geta reynt vel á.“
Hvað er skemmtilegast við
starfið?
„Ég elska að kenna jóga. Það er
ótrúlega gefandi starf. Það er ekkert
betra en að sjá fólk ljóma eftir tíma.
Það kom kona til mín um daginn og
bað um að fá að faðma mig. Hún
var svo þakklát fyrir jógastöðina
mína og sagði að iðkunin væri búin
að breyta lífi hennar. Þetta er topp-
urinn. Svo er ég líka með svo yndis-
lega kennara sem frábært er að fá
að vinna með.“
Hvað gerir þú í frítíma þínum?
„Ég hef eiginlega engan frítíma
núna. Ég ákvað að eignast þrjú
börn með tiltölulega stuttu millibili.
Hvað gerir jóga fyrir þig?
„Það er svo rosalega margt, það
auðgar líf mitt á marga vegu. Það
heldur mér í góðu jafnvægi and-
lega og líkamlega. Það sýndi sig
vel á mínum þremur meðgöngum
hvað jóga styrkir vel djúpvöðvana,
ég fékk aldrei verk í bakið eða neitt
slíkt. Þegar ég hef verið undir miklu
álagi hefur jóga einnig gert krafta-
verk og gegn kvíða virkar það ein-
staklega vel og þá sérstaklega önd-
unin, þar sem hún róar taugakerf-
ið. Nánari upplýsingar um jóga á
yogashala.is
SOHO/MARKET
Á FACEBOOK
Grensásvegur 8, sími 553 7300
Opið mán-fim 12–18 og fös-lau 12–17
Aðeins
6
Útsölunni
lýkur
• 1.000,-
• 1.500,-
• 2.000,-
• 2.500,-
• 3.000,-
• 4.000,-
verð
ALLT Á AÐ SELJAST
Rýmum fyrir
nýjum vörum
Verðsprengja