Fréttablaðið - 31.01.2014, Side 60
FRÉTTABLAÐIÐ Uppáhaldshlutirnir. Netverslun. Helgarmaturinn & Spjörunum Úr.
12 • LÍFIÐ 31. JANÚAR 2014
Jólagjöfin í ár
frá mínum heitt-
elskaða var
Coal-hálsmen
úr smiðju Hring
eftir hring. Ég
ber ekki nógu
oft skart, en
þetta er fullkom-
ið fyrir mig sér-
staklega þar sem
ég klæðist mikið
svörtu og get því
líka notað það
hversdagslega
án þess að of
mikið beri á.
Afi minn heit-
inn sem var
rennismiður
renndi heil-
an helling
af kertastjök-
um og lampa-
fótum þegar
hann átti ró-
lega stund í
vinnunni. Ég á
nokkra kerta-
stjaka eftir
hann sem mér
þykir óendan-
lega vænt um.
1
Mér þykir mjög vænt um
þennan skenk sem kær-
astinn smíðaði handa mér
þegar hann var að læra
húsgagnasmíði. Tíminn og
pirringurinn sem fór í smíði
hans gerir hann alveg
ómetanlegan fyrir mér.
4
Þessa mynd fékk
ég nýlega senda
frá grafíska hönn-
uðinum Kristinu
Krogh í þakkar-
skyni fyrir umfjöll-
un sem ég var
með á blogginu
mínu varðandi eft-
irlíkingar af verk-
unum hennar. Ég
kann vel að meta
svona óvænt-
ar gjafir, sérstak-
lega þegar þær
eru svona fallegar.
7
Poul Henningsen-lampinn minn er gam-
all og kemur úr geymslunni frá foreldr-
um mínum, ég mun þó hugsa extra vel
um þau í ellinni í staðinn (þ.e.a.s. ef
þau taka hann ekki til baka).
Þessa einstöku viðarvængi fékk
ég á nokkra hundraðkalla í
Góða hirðinum sem er ein af
mínum uppáhaldsverslunum,
ég hef gert alveg ótrúleg kaup
þar inni þrátt fyrir að hafa líka
farið margar fýluferðir.
Svana Lovísa Kristjánsdóttir vöruhönnuður bloggar undir Svart á hvítu á Trendnet.is. Hún
er mikill fagurkeri með óvenjulegt áhugamál en hún stoppar upp fugla í frítíma sínum. Lífi ð
fékk að skyggnast örlítið inn í veröld Svönu og mynda uppáhaldshluti hennar á heimilinu.
UPPÁHALDSHLUTIR
SVÖNU LOVÍSU10
8
Koparljósið eftir Tom
Dixon er ein bestu kaup
sem ég hef gert. Mig
hafði lengi dreymt um
þetta ljós án þess að
eiga pening fyrir því, en
ég fann það svo á spott-
prís á Barnalandi fyrir
nokkru síðan.
Sasa-klukkuna fékk ég í útskriftar-
gjöf frá fjölskyldunni minni þegar ég út-
skrifaðist sem vöruhönnuður. Verst að
ég þurfti að taka batteríin úr eftir að ég
fékk mér kött, en hann lét klukkuna ekki
í friði þar sem ein perla fellur niður á 5
mínútna fresti og gerir smá hljóð.
2 3
Nýja bókin Heimsóknir
eftir Höllu Báru og Gunn-
ar Sverris er í uppáhaldi,
þau eru með einstakt auga
fyrir fallegum heimilum. Ég
á margar bækur um heim-
ili en þessi stendur upp úr.
5
Uppáhaldshönnuður-
inn minn, Hella Jonger-
ius, hannaði þennan
vasa fyrir Ikea. Lengi
var hann uppseldur hér
heima svo ein vinkona
mín lagði það á sig að
koma með hann heim í
handfarangri
frá L.A. og
færði mér
hann að
gjöf.
6
10
9