Fréttablaðið - 31.01.2014, Qupperneq 62
FRÉTTABLAÐIÐ Netverslun. Helgarmaturinn & Spjörunum Úr.
14 • LÍFIÐ 31. JANÚAR 2014
„Þetta voru fyrstu snyrtivöru-
verðlaunin sem veitt hafa verið
á Íslandi og voru verðlaunaflokk-
arnir 67,“ segir Lilja Ósk Sigurðar-
dóttir þegar talið berst að Nude
Beauty Awards. Lilja Ósk starfar
sem snyrtiritstjóri hjá NUDE
Magazine en hún útskrifast einnig
úr stjórnmálafræði frá Háskóla
Íslands í vor. „Okkur fannst tími
til kominn að gera meira úr
þeim glæsimerkjum sem eru til á
landinu en við stöndum og föllum
með þessum vörum sem við
mælum með. Þær hafa allar verið
prófaðar af starfsfólkinu hjá Nude
og voru ekki valdar út frá neinni
pólitík. Rannsóknir eru jú ekki það
sama og raunvirkni.“ Lilja Ósk lifir
og hrærist í áhugaverðum heimi
og hún bendir á að mikilvægt sé
að hafa ákveðið gæðaeftirlit og
vera með faglega umfjöllun snyrtivöru og segja konum sannleikann um
vörunar.
Í desember voru verðlaunahafarnir tilkynntir en um helgina verður
NUDE Beauty Awards-helgi í Hagkaupum þar sem boðið er upp á 25%
afslátt af þeim vörum sem unnu til verðlauna.
VERÐLAUN SNYRTI-
VÖRUR ÁRSINS VALDAR AF
NUDE MAGAZINE
Tímaritið NUDE Magazine stóð fyrir NUDE Beauty
Awards en vörurnar eru á tilboði um helgina.
Í
byrjun ágúst á seinasta ári
fórum við Viktor Margeirs-
son og Jón Hilmar Karlsson
að spjalla um fatamarkað-
inn á Íslandi og föt yfirleitt.
Samræðurnar enduðu snemma í
spjalli um netverslun og hvernig
internetið hljóti að vera framtíð
fataverslunar úti um allan heim.
Fólk treystir vefsíðum meira og
meira með hverjum deginum
og því finnst miklu þægilegra
að sjá öll fötin á einum stað án
þess að upplifa stressið sem allt-
af fylgir verslunarmiðstöðvum,“
segir Kjartan Þórisson spurður
um ævintýri þeirra félaga sem
lítur dagsins ljós þann 10. febrú-
ar næstkomandi.
Ísland á eftir í netvæðingu
„Við skildum einfaldlega ekki
af hverju Ísland var svona langt
eftir á í netvæðingu fatamark-
aðarins en auðvitað liggur svar-
ið í því að fólk nennir ekki að
fara inn á netverslanir einstakra
verslana. Þegar fólk verslar á
netinu vill það fyrst og fremst
sjá úrval og fyrir litla fataversl-
un á Laugaveginum er erfitt að
bjóða upp á mikið flæði af nýjum
vörum. Fólk vill fá fullt af mis-
munandi fataverslunum, með
mörg hundruð flíkur á einum
stað svo að það geti auðveldlega
skoðað hvað er „inn“ og hvað er
yfirleitt til hérna heima fyrir,“
segir hann ákveðinn og bætir
við: „Það er þess vegna sem við
ákváðum að stofna Nomo og
keyptum lén-ið www.nomo.is.“
Kynntust í Verzló
Þeir félagarnir sem eru allir 18
ára gamlir hafa núna þekkst í
þrjú ár en þeir kynntust þegar
þeir byrjuðu í Verzlunarskóla
Íslands. „Það besta við Verzl-
unarskólann er líklega hversu
auðvelt það er að komast í sam-
band við hæfileikaríkt fólk sem
er með svipuð áhugamál og
maður sjálfur. Það er einmitt
eitt af gildum fyrirtækisins;
að stuðla að tækifærissköpun
fyrir ungt og hæfileikaríkt fólk
sem hefði kannski ekki fengið
tækifæri annars staðar einung-
is vegna aldurs. Ljósmyndarinn
okkar, Haukur Kristinsson, er
til dæmis líka ungur strákur úr
Verzló og hefur lengi haft áhuga
á ljósmyndun en hefur kannski
skort réttu tækifærin vegna
aldurs.“
Verslunareigendur spenntir
„Hugmyndin er að færa allar
flottustu fataverslanir lands-
ins inn á eitt vefsölusvæði sem
myndi þá virka eins og Kringl-
an á netinu. Ég ákvað sjálfur að
læra vefsíðuhönnun og setti síð-
una upp. Við gengum síðan upp
Laugaveginn í grenjandi rign-
ingu og bönkuðum á dyrnar hjá
nokkrum verslunum sem voru í
uppáhaldi. Hugmyndin var eins
og himnasending fyrir versl-
unareigendur og þeir voru allir
spenntir fyrir þessu.
Núna eru 11 dagar í opnun
sem er 10. febrúar og við erum
með samstarfsverslanir á borð
við Noland, Morrow, Suzie Q,
Dúkkuhúsið, Karlmenn, Define
The Line, Neon, Mótor & Míu,
Corner, Epic!, Skarthúsið og
síðan vorum við að loka samn-
ingi við NTC um að fá Smash og
Deres inn í fjölskylduna fyrir
opnun.“
„Þetta er búinn að vera ein-
hver mesti rússíbani sem ég hef
stigið inn í og við getum ekki
beðið eftir opnuninni. Það eina
sem þarf að gerast núna er að
láta Ísland, bæði höfuðborg-
ina og landsbyggðina, vita af
því að íslenski fatamarkaður-
inn sé við það að taka stórum
breytingum.“ -eá
NETVERSLUN HUGMYNDIN KVIKNAÐI Í VERSLÓ
Þrír félagar í Verzlunarskóla Íslands ætla sér stóra hluti þegar kemur að netverslun á Íslandi. 10. febrúar næstkomandi opna vinirnir umfangsmikla netverslun
sem færir saman margar af fl ottustu fataverslunum landsins þar sem Íslendingar geta keypt tískufatnað allan sólarhringinn og fá vöruna senda frítt heim.
Jón Hilmar Karlsson, Kjartan Þórisson og Viktor Margeirsson. MYND/VALGARÐUR GÍSLASON
Lilja Ósk Sigurð-
ardóttir, snyrtirit-
stjóri hjá NUDE
Maga zine.