Fréttablaðið - 31.01.2014, Síða 74

Fréttablaðið - 31.01.2014, Síða 74
31. janúar 2014 FÖSTUDAGUR| MENNING | 46 ➜ Barna- og unglingabækur eru nýr flokkur Íslensku bókmenntaverðlaunanna og Andri Snær því fyrsti höfundurinn sem hlýtur verðlaun í þeim flokki, sem er vel við hæfi því hann hlaut verðlaunin í flokki fagurbókmennta 1999 fyrir barnabókina Sagan af bláa hnettinum. ➜ Barna- og unglingabækur Andri Snær Magnason TÍMAKISTAN Mál og menning Jóna Valborg Árnadóttir og Elsa Nielsen BROSBÓKIN Bókaútgáfan Salka Sif Sigmarsdóttir FREYJU SAGA– MÚRINN Mál og menning Sigrún Eldjárn STROKUBÖRNIN Á SKUGGASKERI Mál og menning Vilhelm Anton Jónsson VÍSINDABÓK VILLA JPV útgáfa ➜ Fagurbókmenntir Eiríkur Guðmundsson 1983 Bjartur Guðmundur Andri Thorsson SÆMD JPV útgáfa Jón Kalman Stefánsson FISKARNIR HAFA ENGA FÆTUR Bjartur Sjón, Sigurjón B. Sigurðsson MÁNASTEINN– DRENGUR- INN SEM ALDREI VAR TIL JPV útgáfa Vigdís Grímsdóttir DÍSUSAGA– KONAN MEÐ GULU TÖSKUNA JPV útgáfa ➜ Fræðirit og bækur almenns efnis Gísli Sigurðsson LEIFTUR Á HORFINNI ÖLD – HVAÐ ER MERKILEGT VIÐ ÍSLENSKAR FORNBÓK- MENNTIR? Mál og menning Guðbjörg Kristjánsdóttir ÍSLENSKA TEIKNIBÓKIN Crymogea Guðmundur Páll Ólafsson VATNIÐ Í NÁTTÚRU ÍSLANDS Mál og menning Jón Gauti Jónsson FJALLABÓKIN Mál og menning Sölvi Björn Sigurðsson STANGVEIÐAR Á ÍSLANDI OG ÍSLENSK VATNABÓK Sögur ÞESSAR BÆKUR VORU TILNEFNDAR Íslensku bókmenntaverðlaunin 2013 voru afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í gær. Forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, tilkynnti þá um val lokadómnefndar á verðlauna- höfum Íslensku bókmenntaverð- launanna í þremur flokkum; flokki fagurbókmennta, flokki fræðirita og rita almenns efnis, og nýjum flokki barna- og unglingabóka. Verðlaunin hlutu: Í flokki fagurbókmennta: Sjón fyrir Mánastein – drenginn sem aldrei var til, í flokki fræðirita og rita almenns efnis: Guðbjörg Krist- jánsdóttir fyrir Íslensku teiknibók- ina og í nýjum flokki barna- og ung- lingabóka: Andri Snær Magnason fyrir Tímakistuna. Formaður lokadómnefndar var Stefanía Óskarsdóttir stjórnmála- fræðingur, en með henni sátu í lokadómnefnd formenn tilnefninga- nefndanna þriggja; Guðni Kolbeins- son, Þorgerður E. Sigurðardóttir og Þóra Arnórsdóttir. Verðlaunaféð er ein milljón króna fyrir höfund hvers verðlaunaverks. SJÓN, ANDRI SNÆR OG GUÐBJÖRG VERÐLAUNUÐ Mánasteinn – drengurinn sem aldrei var til, Tímakistan og Íslenska teiknibókin þóttu bestu bækur ársins 2013 og höfundar þeirra hlutu í gær Íslensku bókmenntaverðlaunin hver í sínum fl okki. VERÐLAUNAHAFARNIR Sjón, Andri Snær Magnason og Guðbjörg Kristjánsdóttir með forseta Íslands, Ólafi Ragnari Grímssyni, á Bessastöðum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Ég er bara mjög glaður,“ segir Andri Snær Magnason spurður um líðanina. „Ég var búinn að leggja mikið í þessa bók og var að vona að það myndi skila sér.“ Andri Snær hefur tvisvar áður fengið Íslensku bókmenntaverð- launin, árið 1999 fyrir Söguna af bláa hnettinum í flokki fagurbók- mennta og árið 2006 fyrir Drauma- landið í flokki fræðirita og rita almenns efnis. Hann segist reynd- ar ekki flokka Tímakistuna sem barnabók neitt frekar en fullorð- insbók. „Þannig að þetta er eigin- lega fyrsta fullorðinsbókin sem vinnur barnabókaflokkinn alveg eins og Sagan af bláa hnettinum var fyrsta barnabókin sem vann í flokki fagurbókmennta.“ Með verðlaununum fyrir Tíma- kistuna hefur Andri Snær nú unnið í öllum flokkum verðlaunanna. Ekki hefur verið gengið frá samningum um útgáfu Tímakist- unnar erlendis en Andri Snær segir ýmsar viðræður í gangi varð- andi það. „Það er verið að þýða hana á dönsku og svo vonast ég til þess að geta nýtt verðlaunaféð til þess að fjármagna eitthvað af ensku þýðingunni.“ Bækur Andra Snæs hafa komið út á fjölda tungumála og enginn endir í sjónmáli á þeirri göngu. „LoveStar er að koma út á tyrk- nesku og ég var að fá samning í Egyptalandi, auk þess sem hún er nýkomin út í Frakklandi og Japan. Blái hnötturinn er líka að gera það gott og er meðal annars tilnefnd til UKLA-verðlaunanna, svo ég er ekkert örvæntingarfullur þótt ekki sé búið að negla samninga um Tímakistuna..“ Hefur hlotið verð laun í öllum fl okkum ÍSLENSKU BÓKMENNTAVERÐLAUNIN 2013 Friðrika Benónýsdóttir fridrikab@frettabladid.is Barna- og unglingabækur Tímakistan Andri Snær Magnason Fræðirit og rit almenns efnis Íslenska teiknibókin Guðbjörg Kristjánsdóttir Þetta kom mér algjörlega á óvart,“ segir Guðbjörg Kristjánsdóttir, sem hlaut Íslensku bókmennta- verðlaunin í flokki fræðirita og rita almenns efnis fyrir Íslensku teiknibókina. „Ég var ekkert að velta neinum verðlaunum fyrir mér, sat bara við og skrifaði og skrifaði og hugsaði ekki um annað. Ég þurfti alveg að halda á spöðun- um og vel það.“ Guðbjörg hefur unnið að bókinni lengi og segir óhemjuvinnu liggja að baki. „Undanfarin ár hafði ég einbeitt mér að því að skrifa hana á ensku, en byrjaði ekki fyrr en síðastliðið sumar að taka gamla íslenska textann og vinna úr honum fyrir bókina sem kom út á afmælisdegi Árna Magnússonar þann 16. nóvember síðastliðinn.“ Hvaðan kom þessi hugmynd, var þetta eitthvað sem þú hafð- ir ástríðu fyrir eða varstu beðin að taka þetta að þér? „Það vissu allir að ég var að vinna að þessu, enda hafði lengi staðið til að gefa bókina út hjá Árnastofnun. Ýmis- legt varð þó til þess að ekki varð úr því, meðal annars setti hrunið strik í reikninginn, en ég hélt samt alltaf áfram að vinna að henni. Það var svo fyrir rúmu ári sem Guð- rún Nordal, forstöðumaður Árna- stofnunar, kom með þá hugmynd að gefa bókina út á afmælisdegi Árna og upp úr því komst hreyfing á málið.“ Þrátt fyrir að Guðbjörg hafi upp- haflega skrifað bókina á ensku er ekki kominn útgáfusamningur um bókina erlendis. Hún segir það þó standa til bóta. „Enski textinn má heita fullskrifaður, en yfirlestur og lokafrágangur er eftir. Viðræður við útgefendur standa yfir og ég vænti þess að Íslenska teiknibókin komi út á ensku innan tíðar.“ Skrifaði bókina upphafl ega á ensku ANDRI SNÆR MAGNASON „Ég var búinn að leggja mikið í þessa bók og var að vona að það myndi skila sér.“ GUÐBJÖRG KRISTJÁNSDÓTTIR „Ég var ekkert að velta neinum verðlaun um fyrir mér.“ Fagurbókmenntir Mánasteinn - drengurinn sem aldrei var til Sjón Ég er glaður og stoltur að hafa fengið Íslensku bókmenntaverð- launin fyrir þessa bók,“ segir Sjón. „Þetta var í fjórða sinn sem ég var tilnefndur en í fyrsta sinn sem ég fæ þessi stærstu bók- menntaverðlaun þjóðarinnar. Ég er líka sérstaklega ánægður með að það skuli vera þessi bók sem færir mér þau því hún er að mörgu leyti persónulegasta bók mín hingað til, auk þess að fjalla um ýmis mál sem ég held að brenni á okkur í samtímanum jafnmikið og á þeim tíma sem söguefnið gerist. Þannig að ég bara brosi í gegnum tárin.“ Þú hefur ekki verið farinn að halda að þú værir fastur í því að vera tilnefndur, eins og Scorsese, en fengir aldrei verðlaunin? „Ja, maður veit aldrei nema maður sé einmitt kominn á einhvern lista yfir eilífðartilnefnda, en auðvi- tað er alltaf gaman að vera til- nefndur.“ Mánasteinn er á leið í útrás, ekki satt? „Jú, bókin er að koma út í Danmörku og Finnlandi núna í mars og svo væntanlega heldur hún bara áfram, enda búið að gera útgáfusamninga um hana í Sví- þjóð, Þýskalandi, Frakklandi og Bandaríkjunum. Hver veit hvort það sé svo eitthvað fleira á leiðinni og fleiri taki við sér þegar þeir frétta af þessum verðlaunum.“ Bókin hefur fengið einróma lof og það eina sem sett hefur verið út á er að hún sé of stutt, hvað seg- irðu um þá krítík? „Það er til mjög einfalt svar við því; ef fólki finnst hún of stutt getur það bara lesið hana aftur. Ég held það sé alveg hægt að taka einn hring til á sögu- svellinu.“ Hvað er svo fram undan hjá þér? „Ég á auðvitað eftir að fara í einhver ferðalög sem tengjast útgáfu Mánasteins erlendis, en akkúrat þessa dagana er ég að ljúka við líbrettó að óperu sem ég er að vinna í samvinnu við enskt tónskáld og verður væntanlega sýnd í Bretlandi á næsta ári. Þann- ig að nú bruna ég bara á Eyrar- bakka, loka mig inni og klára það.“ Mánasteinn pers ónu legasta bókin SJÓN „Maður veit aldrei nema maður sé einmitt kominn á einhvern lista yfir eilífðartilnefnda.“
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.