Fréttablaðið - 31.01.2014, Side 76
31. janúar 2014 FÖSTUDAGUR| MENNING | 48
„Við förum örugglega bráðum að kalla
okkur bílskúrsband,“ segir Guðný Þóra
Guðmundsdóttir, einn meðlima strengja-
sveitarinnar Skarks, sem í dag verður
með tónleika í bílageymslu RÚV þaðan
sem sent verður út beint bæði á Rás 1 og
heimasíðu RÚV. „Þannig var að því miður
var stúdíóið í Efstaleiti upptekið á þeim
tíma sem tónleikarnir voru planaðir og
bílageymslan var það sem þeir gátu boðið
okkur upp á svo að einhvern veginn virð-
umst við og nútímatónlistin hafa fundið
einhvern hljómgrunn í bílakjöllurum.“
Hér vísar Guðný í tónleika sem Skark
hélt í bílastæðahúsi Hörpu síðastliðið
sumar. Þar blönduðu hljómlistarmenn-
irnir saman tónlist og gjörningi með fjóra
Suzuki-jeppa og Guðný segir sveitina hafa
verið að færast nær gjörningalist smátt
og smátt, þótt auðvitað sé hún fyrst og
fremst tónleikasveit.
Skark er skipuð tólf tónlistarmönnum og
stjórnandi er Bjarni Frímann Bjarnason.
Á tónleikunum í RÚV verða frumflutt
verk eftir þrjú íslensk tónskáld; Hildi
Ingveldardóttur Guðnadóttur, Óttar
Sæmundsen og Þórunni Grétu Sigurðar-
dóttur sem öll sömdu verkin sérstaklega
fyrir Skark. Auk þess verður flutt verk
eftir Snorra Sigfús Birgisson frá árinu
1982. „Við erum að vinna með ákveð-
ið konsept á þessum tónleikum og skoða
tengsl tónlistar og myndlistar,“ segir
Guðný. „Við vísum í þekkt málverk, en ég
ætla ekki að gefa meira upp um það til að
svipta ekki væntanlega áhorfendur for-
vitninni.“
Tónleikarnir og útsendingin hefjast
klukkan 16 í dag og eru hluti af tónlist-
arhátíðinni Myrkum músíkdögum.
fridrikab@frettabladid.is
Tónleikar í bílageymslu RÚV
Strengjasveitin Skark verður í dag með sérstæða tónleika í bílageymslu RÚV í Efstaleiti 1. Þetta eru
fyrst og fremst tónleikar en þó með tilvísun í myndlist og verða þeir sendir út beint bæði á Rás 1 og
heimasíðu RÚV. Frumfl utt verða þrjú verk eft ir ung íslensk tónskáld auk eins eldra.
Sýningin You draw me crazy birt-
ir verk tveggja akureyrskra lista-
manna, þeirra Arnars Ómarsson-
ar og Heklu Bjartar Helgudóttur.
Þau eru gestalistamenn á Gods-
banen sem er miðstöð lista og
menningar í Árósum.
Síðustu þrjár vikur hafa þau
Arnar og Hekla unnið og búið
saman á lítilli vinnustofu og á
þessu tímabili hafa þau unnið að
eins konar greiningu hvort á öðru,
Arnar hefur verið viðfangsefni
Heklu og öfugt.
Það tekur á taugarnar að vinna
saman daglega frá morgni til
kvölds í sama litla rýminu og
verkefni Arnars og Heklu er á
marga vegu athugun á hvers
konar áhrifum og innblæstri þau
hafi orðið fyrir í svo náinni sam-
búð. Skortur á einveru, þolmörk
persónurýmis og berskjöldun ein-
kennir verkin sem eru teikning-
ar, myndbandsverk, textaverk og
bókverk.
Hægt er að fylgjast með þeim
skötuhjúum á vefsíðunni you-
drawmecrazy.com en þar setja
þau inn daglegar færslur.
Sýningin opnar annað kvöld, 1.
febrúar klukkan 20 á umræddri
vinnustofu.
- gun
Einveruskortur einkennir verkin
Akureyrsku listamennirnir Arnar Ómarsson og Hekla Björt Helgudóttir eru
gesta listamenn í Árósum í Danmörku og opna þar sýningu annað kvöld.
LESTRARAÐSTAÐAN Hekla reynir að koma sér vel fyrir á vinnustofunni. ÚFF Persónulegt rými er af skornum skammti hjá Arnari.
GODSBANEN Umhverfi vinnustofunnar sem er í miðstöð menningar og lista í
Árósum.
BÍLSKÚRSBAND
Strengjasveitin
Skark hefur
áður spilað í bíla-
kjallara Hörpu
þar sem Suzuki-
jeppar léku
stórt hlutverk í
tónleikunum.
Kammerkórinn Schola cantorum
og Listvinafélag Hallgrímskirkju
minnast Þorkels Sigurbjörnssonar
með tónleikum í Hallgrímskirkju á
sunnudaginn, 2. febrúar, klukkan
15, þegar ár er liðið frá því að hann
lést. Kórinn flytur úrval af kirkju-
legum kórverkum Þorkels, Hörður
Áskelsson, kantor Hallgríms-
kirkju, leikur orgelverkið Snertur
á stóra Klais-orgel kirkjunnar, auk
þess sem Schola cantorum frum-
flytur kórverkið Nunc dimittis
eftir Hreiðar Inga Þorsteinsson,
en það tileinkar Hreiðar minningu
Þorkels sem var einn af hans kenn-
urum í tónsmíðum.
Þorkell Sigurbjörnsson lést 30.
janúar 2013. Hann skildi eftir sig
mikið af góðri kirkjutónlist. Á tón-
leikum Schola cantorum flytur
kórinn sálmalög og mótettur, sem
gefa góða mynd af kirkjutónlist
Þorkels. Orgelverkið Snertur skrif-
aði Þorkell fyrir Hörð til flutnings
við vígslu Klais-orgels Hallgríms-
kirkju árið 1992. Kórverk Hreiðars
Inga Þorsteinssonar Nunc dimittis
er tónsetning á Lofsöng Símeons,
sem byrjar á orð-
unum: „Nú lætur
þú, Drottinn, þjón
þinn í friði fara“.
Hreiðar, sem er
meðlimur Schola
cantorum, valdi
þennan texta til
að kveðja sinn kæra
kennara. Stjórnandi
tónleikanna
er Hörður
Áskelsson. - fb
Schola cant-
orum minnist
Þorkels
ÞORKELL
SIGURBJÖRNSSON
BREYTTU LÍFI
ÞÍNU Á
30 DÖGUM
Viltu bæta lífsstílinn, læra að þekkja
líkama þinn betur, setja stefnuna á
kjörþyngd og komast í gott form?
Þá er 30 daga hreint mataræði tilvalin
leið fyrir þig.
Þessi yfirgripsmikla og
fróðlega bók er komin
í verslanir!