Fréttablaðið - 31.01.2014, Qupperneq 80
31. janúar 2014 FÖSTUDAGUR| MENNING | 52
Tónleikar
12.00 Tónleikarnir Stelkur Ensemble í
Fríkirkjunni. Hluti af Myrkum músík-
dögum. Miðasala við inngang.
12.00 Á hádegistónleikunum Hin ljúfa
kyrrð verða flutt lög úr Neun deutche
Arien eftir Handel ásamt fleiri verkum.
Flytjendur eru Erla Björg Káradóttir
sópran, Balázs Stankowsky á fiðlu og
Kitty Kovács á píanó. Tónleikarnir
fara fram í Háteigskirkju. Miðaverð er
þúsund krónur.
15.00 Þórhallur Magnússon frumflytur
Fermötu ásamt vel völdum spunameist-
urum í Kaldalóni í Hörpu. Hluti af Myrk-
um músíkdögum. Aðgangur ókeypis.
16.05 Skark Ensemble heldur opna tón-
leika í beinni útsendingu í bílakjallara
Ríkisútvarpsins. Aðgangur ókeypis.
20.00 Rapphljómsveitin Reykjavíkur-
dætur heldur tónleika á Loft Hostel.
Aðgangur ókeypis.
22.00 Tónleikar með Bíóbandinu og
Andreu Gylfadóttur á Café Rósenberg.
Hátíðir
17.00 Íslensku vefverðlaunin 2013
verða afhent í 13. sinn við hátíðlega
athöfn í Gamla Bíói, Ingólfsstræti.
Kvikmyndir
18.00 Kvikmyndin Her eftir leikstjór-
ann Spike Jonze er frumsýnd á Íslandi
í Háskólabíói klukkan 18.00. Einnig
sýnd í Smárabíói og Borgarbíói í dag.
Almennt miðaverð 1.350 krónur.
20.00 Venus in Fur í leikstjórn Roman
Polanski er frumsýnd á Íslandi í Bíó
Paradís. Myndin er bönnuð innan 16
ára. Miðaverð er 1.400 krónur.
20.00 Íslandsfrumsýning á myndinni
Dressed to Kill. Myndin er sýnd í Bíó
Paradís. Bönnuð innan 16 ára. Miða-
verð er 1.400 krónur.
Leikrit
20.00 Frumsýning á Óskasteinum eftir
Ragnar Bragason í Borgarleikhúsinu.
Miðaverð 5.700 krónur.
Uppistand
20.00 Uppistandssýning Mið-Íslands
í Þjóðleikhúskjallaranum. Einnig sýnt
klukkan 22.30. Miðaverð 2.900 krónur.
Fyrirlestrar
11.00 Yngvi Harðarson flytur erindi á
málstofu Hagfræðideildar undir yfir-
skriftinni Leiðandi hagvísir fyrir Ísland.
(Í fundarherbergi á þriðju hæð í Odda í
Háskóla Íslands.)
12.00 Vísindadagur geðhjúkrunar. Dag-
skráin fer fram í stofu 103 C í Eirbergi.
Allir velkomnir.
Morgunverðarfundur um markaðs-
mál í tilefni af doktorsvörn Friðriks
Larsen við skólann. Dr. Anne Rindell og
Dr. Nick Lee flytja erindi. Í hátíðarsal
Háskóla Íslands. Allir velkomnir.
14.00 Friðrik Larsen doktorsritgerð
sína, Positive Power: The Untapped
Potential of Branding the Electricity
Sector. Vörnin fer fram á ensku í
hátíðarsal Háskóla Íslands.
15.00 Fræðslufundur Vísindafélags
Íslendinga. Dr. Helgi Björnsson jökla-
fræðingur flytur erindið Jöklar á hverf-
anda hveli í sal Þjóðminjasafnsins.
20.00 Pétur Gissurarson heldur fyrir-
lesturinn Sólkerfið okkar og næstu
nágrannar í húsi Lífspekifélags Íslands,
Ingólfsstræti 22.
Myndlist
17.00 Stutt hringrás, samsýning Svart-
vals og Viktors Weisshappel, opnuð í
Listasal Mosfellsbæjar, Kjarna, Þverholti 2.
Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@
frettabladid.is og einnig er hægt að skrá
ÞÁTTTAKA
FYRIR ALLA
Málþing:
Sveitarfélög og fatlaðir íbúar
Mannréttindi hversdagsins
7. febrúar kl. 13.00 – 16.30 á Grand Hóteli
Allir velkomnir, ekkert þátttökugjald
Skráning og allar upplýsingar á www.obi.is
Síðasti skráningardagur er 6. febrúar
Rúnar Björn Herrera Þorkelsson
„Án aðstoðar sæti ég heima og léti mig dreyma
um að verða garðyrkjufræðingur. Nú fer ég daglega
í Landbúnaðarháskólann og læri það sem ég vil
læra. Persónulega aðstoðin gerir mér kleift að
lifa án takmarkana.“
Að málþinginu standa auk Öryrkjabandalags Íslands,
Rannsóknasetur í fötlunarfræðum og Félag um fötlunarrannsóknir.
FÖSTUDAGUR
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
31. JANÚAR
REYKJAVÍKURDÆTUR Skemmtikvöld þeirra hafa slegið í gegn.
Hljómsveitin Sign ætlar að efna
til útgáfutónleika í Austurbæ til
að fagna útgáfu fimmtu breið-
skífu sinnar, Hermd.
Platan sú kom út rétt fyrir síð-
ustu jól og er þeirra fyrsta plata
síðan The Hope kom út árið 2007,
en í millitíðinni hefur Ragnar
Zolberg, forsprakki hljómsveitar-
innar, bæði gefið út sólóplötur og
spilað og tekið upp með sænsku
prog-metalgrúppunni Pain of
Salvation.
Hermd er þyngsta verk hljóm-
sveitarinnar og var meðal annars
tekin upp af upptökustjóranum
Daniel Bergstrand, sem á til
dæmis mikinn heiður af sándinu
hjá rokksveitunum Meshuggah,
In Flames, Strapping Young Lad,
Soilwork og fleirum.
Leo Margarit, trommuleik-
ari Pain of Salvation, sér um
trommuleik á þessari plötu en
hann mun einnig koma fram á
útgáfutónleikum hljómsveitarinn-
ar í Austurbæ.
„Öll Sign-klíkan kemur þarna
fram til að spila plötuna í heild
sinni, það er um tíu manna hópur.
Þetta verða án efa merkustu og
flottustu tónleikar sem við höfum
nokkurn tímann haldið,“ segir
Ragnar.
Upphitunarhljómsveit er
Different Turns og verður þetta
í fyrsta skipti sem hún kemur
fram formlega.
Tónleikarnir verða haldnir
þann 13. febrúar næstkomandi en
miðasala hefst miðvikudaginn 22.
janúar á midi.is. - glp
Flottustu Sign-
tónleikarnir
FAGNAR ÚTGÁFUNNI Hljómsveitin
Sign heldur útgáfutónleika í Austurbær
13. febrúar. MYND/ÓSKAR HALLGRÍMSSON