Fréttablaðið - 31.01.2014, Page 84
31. janúar 2014 FÖSTUDAGUR| MENNING | 56
„Við komum heim í íslenska vorið í mars,
kannski full bjartsýnt en allavega verður
janúarmyrkrið á bak og burt. Við sýnum
átta sinnum í viku, svo þetta er svona
Smugutúr. Hins vegar tekur sýningin
einungis rúma klukkustund í flutningi
svo það munar sannarlega um það þegar
keyrslan er svona mikil. Ég fæ að fara
í gegnum mikið drama og tilfinninga-
ferðalag í mögnuðu hlutverki Gretu og
aumingja Bjössi þarf að hanga á hvolfi í
hlutverki pöddunnar Gregors sem krefst
ótrúlegs líkamlegs úthalds og styrks. Ég
fullyrði að þeir eru ekkert margir leik-
ararnir fyrir utan Gísla Örn og Bjössa
sem geta leikið þetta hlutverk sem krefst
bæði djúprar dramatískrar túlkunar og
ekki síður líkamlegs álags og fimi,“ segir
leikkonan Unnur Ösp Stefánsdóttir. Hún
dvelur nú í Toronto í Kanada með eigin-
manni sínum, Birni Thors, og leikhópn-
um Vesturporti þar sem þau frumsýna
leikritið Hamskiptin 2. febrúar. Hjónin
verða í sjö vikur í Toronto og tóku börn-
in sín, Dag, sex ára, og Bryndísi, eins og
hálfs árs, með.
Amma passar
„Bryndís fylgdist með
okkur pakka, benti í átt
til himins þegar flug-
vélar flugu hjá og
lék flugvélahljóð
áður en við fórum
svo hún áttaði sig
að einhverju leyti
á því að það var
eitthvert ævintýri
í vændum. Dagur
hins vegar er aldeil-
is með allt á hreinu
varðandi komandi
vikur og við erum búin
að skipuleggja mikið fjöl-
skylduprógramm. Það verða
heimsótt risaeðlusöfn, listasöfn,
skautahallir og fleira. Mikill spenning-
ur fyrir sex ára snáða. Svo ætlar hann að
skrifa krökkunum í bekknum í Austur-
bæjarskóla reglulega bréf og „skype-a“
við vinina,“ bætir Unnur við. Þau hjón-
in eiga góða að sem gerir þennan tíma-
bundna flutning auðveldari.
„Við erum svo heppin að hin yndis-
lega Bryndís Lúðvíksdóttir, tengdamóð-
ir mín, kemur með okkur út og við búum
öll saman í fallegu húsi í fjölskylduvænu
hverfi ekki langt frá leikhúsinu. Hún sér
um krakkana á meðan á sýningum stend-
ur. Þeim finnst ekkert amalegt að hafa
ömmu hjá sér og okkur fannst þetta ekki
síst tækifæri fyrir fjölskylduna að upp-
lifa ævintýri saman í nýju umhverfi.“
Unnur segir það ekki hafa komið til
greina að skilja börnin eftir á Íslandi og
þakkar fyrir að geta leyft sér að upplifa
þetta ævintýri með þeim.
„Sem fjölskyldumanneskjur fannst
okkur það lykilatriði að gefa börnun-
um færi á því að taka þátt í þessu ævin-
týri með okkur. Það er þroskandi fyrir
krakka að komast í örlítið öðruvísi menn-
ingu og nýtt umhverfi. Sem listamenn
þvælumst við mikið um og oft í stutt-
an tíma frá börnunum á kvikmynda- og
leiklistarhátíðum. En þegar um svona
langan tíma er að ræða kemur ekki
annað til greina en að fara öll saman.
Við erum auðvitað mjög heppin að hafa
tækifæri til að geta þetta, leika í sömu
sýningunni og vera boðið að taka alla
fjölskylduna með, alveg ómetanlegt,“
segir Unnur. Þau hjónin hafa einu sinni
áður flutt með fjölskylduna til útlanda
vegna vinnunnar en þá var sonur þeirra,
Dagur, sex mánaða.
Þá fórum við til Bretlands og lékum
Hamskipti Vesturports í hálfan vetur.
Það var dásamlegur tími. Einhver bestu
jól ævi okkar. Staðreyndin er sú að þrátt
fyrir sýningatörnina þá er mikill tími
til ævintýra með fjölskyldunni. Maður
er svo laus undan öllum hversdagsleg-
um skuldbindingum, enginn til að sinna,
heimsækja, engin barnaafmæli eða mat-
arboð eða annars konar daglegt amstur.
Eins og það er dásamlegt þá er mjög
hollt að fara svona burt saman sem fjöl-
skylda.
Skilningsríkir yfirmenn
Okkur fannst þetta ómet-
anlegur tími í Bretlandi
svo að þegar Gísli
Örn bauð okkur að
gera þetta aftur þá
slógum við til. Við
vorum að vísu bæði
búin að skuldbinda
okkur í vinnu í
allan vetur þar sem
ég er fastráðin hjá
Borgarleikhúsinu
og Bjössi hjá Þjóð-
leikhúsinu. Yfirmenn
okkar, Magnús Geir og
Tinna Gunnlaugs, sýndu
okkur ótrúlegan skilning svo
við gætum elt uppi ný ævintýri.
Þetta er að verða algengara að íslensk-
ir leikarar fái tækifæri erlendis, bæði
í kvikmyndum og leikhúsi og algerlega
stórkostlegt þegar manni gefst færi á að
sprengja upp sinn þægindaramma, ögra
sér sem listamanni, leika á nýju tungu-
máli og lenda í smá ævintýri með fjöl-
skyldunni í leiðinni.“
Talið berst að Hamskiptunum, sýn-
ingu sem hefur farið sigurför um heim-
inn. Nú ætlar Vesturport að sigra Kan-
ada í einu virtasta leikhúsi þar í landi,
Royal Alexandra-leikhúsinu. Unnur Ösp
og Björn leika systkini í sýningunni.
„Við höfum leikið Hamskiptin um allt
Bretland með lengsta stoppinu í Lond-
on. Eins lékum við þau í Ástralíu, meðal
annars í rosaflottu leikhúsi í Sydney.
Þar var Cate Blanchett annar leikhús-
stjóranna og sendi Vesturporti persónu-
legt þakkarbréf. Það er aðeins breytilegt
hverjir leika í sýningunni. Stundum eru
LEIKARAFJÖLSKYLDA SPRENGIR
ÞÆGINDARAMMANN
Leikarahjónin Unnur Ösp Stefánsdóttir og Björn Thors frumsýna uppsetningu Vesturports á Hamskiptum Franz Kafk a í Royal Alexan-
dra-leikhúsinu í Toronto í Kanada 2. febrúar. Þar munu þau dvelja í sjö vikur ásamt börnum sínum tveimur og móður Björns, Bryndísi
Lúðvíksdóttur, sem mun sjá um börnin á meðan á sýningum stendur.
VIRT LEIKHÚS Unnur og Björn eru spennt fyrir því að frumsýna Hamskiptin í Toronto.
Maður
er svo laus
undan öll-
um hvers-
dagslegum
skuldbind-
ingum,
enginn til
að sinna,
heimsækja,
engin
barnaaf-
mæli eða
matarboð
eða annars
konar
daglegt
amstur.
Eins og það
er dásam-
legt þá er
mjög hollt
að fara
svona burt
saman
sem fjöl-
skylda.
Unnur Ösp
Stefánsdóttir íslenskir leikarar, stundum breskir. Nú
förum við fjórir Íslendingar og einn
Breti. Með okkur Bjössa leika Edda
Arnljótsdóttir og Víkingur Kristjáns-
son. Svo er frábær breskur leikari, Tom
Mannion, með í för.
Sammannleg sýning
Við Bjössi leikum systkini og þessi
magnaða saga Kafka fjallar um það
hvernig fjölskylda Gregors Samsa tekst
á við það þegar sonur þeirra og bróð-
ir vaknar upp einn morguninn sem
padda. Sagan höfðar til ótrúlega breiðs
hóps þar sem um er að ræða eins konar
dæmisögu sem tekur á því hvernig við
sem manneskjur hræðumst hið ókunna
og í fáfræði okkar og fordómum bregð-
umst stundum við slíkum aðstæðum af
grimmd og heift. Í okkar uppfærslu er
vísað í helförina og það hvernig á ein-
hvern óskiljanlegan hátt við útrýmd-
um næstum heilli þjóð með einhverjum
heilaþvotti um að gyðingar væri okkur
hinum óæðri. Það er makalaust hvers
manneskjan er megnug í græðgi sinni
og hræðslu og ástæða þess hversu ótrú-
lega vel sýning Vesturports á Hamskipt-
unum gengur um allan heim er sú hversu
sammannleg hún er. Það er magnað að
finna hversu mikið sýningin snertir ólík
samfélög, ólíkar þjóðir. Staðreyndin er
sú að við manneskjurnar eigum svo ótrú-
lega margt sameiginlegt þrátt fyrir að
landamæri skilji okkur að. Það renn-
ur heitt blóð í æðum okkar, öll finnum
við til og viljum láta hreyfa við okkur.
Paddan Gregor er allt sem við hræð-
umst sökum fordóma. Hann er gyðing-
urinn, fíkniefnaneytandinn, geðsjúkl-
ingurinn, homminn, útlendingurinn og
svo framvegis. Þar liggur snilld Franz
Kafka, þetta er saga um okkur öll,“ segir
Unnur. Þegar dvölinni í Kanada lýkur
bíða spennandi verkefni þeirra hjóna.
„Ég var að taka að mér líklega eitt
mest krefjandi hlutverk mitt til þessa
í alveg gríðarlega spennandi verkefni
næsta vetur í Borgarleikhúsinu sem
verður opinberað með vorinu. Bjössi er
að fara að leika aðalhlutverk í íslenskri
spennumynd sem Baltasar Kormákur
framleiðir og Börkur Sigþórsson leik-
stýrir í vor. Eins erum við bæði að fram-
leiða okkar eigið sjónvarpsverkefni og
svo eru leikhússtjóraskipti fram undan
í báðum leikhúsum. Það eru hress-
andi tímamót sem geta kollvarpað öllu
lífi manns. Þetta eru spennandi tímar
í leikhúsinu en mjög krefjandi tímar
finnst manni í blessuðu samfélaginu. Ef
stjórnvöld fara ekki að átta sig á hversu
ótrúlega listamenn við eigum og hlúa að
menningunni sem skilar þvílíkum fjár-
munum í ríkiskassann og ef haldið verð-
ur áfram að skera svona niður til menn-
ingarmála og kvikmyndagerðar þá er
ekki annað að gera fyrir fólk eins og
okkur en að halda ævintýrunum áfram
og flytja eitthvert út í hinn stóra heim,
hver veit? Menningin er hluti af lífi
okkar allra, sama hvað við fáumst við.
Menningin skapar samfélag.“
liljakatrin@frettabladid.is
Lilja Katrín
Gunnarsdóttir
liljakatrin@frettabladid.is
MYNDIR/SIMON KANE
ÚTHALD OG
STYRKUR
„Aumingja
Bjössi þarf að
hanga á hvolfi í
hlutverki pödd-
unnar Gregors
sem krefst
ótrúlegs líkam-
legs úthalds og
styrks,“ segir
Unnur.
STUÐ Á SVIÐI
Úr leiksýning -
unni Hamskiptin.