Fréttablaðið - 31.01.2014, Page 90

Fréttablaðið - 31.01.2014, Page 90
31. janúar 2014 FÖSTUDAGUR| MENNING | 62 ➜ Meik hefur leik klukkan 22.00 á Spot. „Hann kemur inn í miðja tónleika og klárar giggið með okkur. Þetta verður rock and roll- partí. Starfsfólkið verður málað, allt út í Kiss-þema.“ PLÖTUR SEM BRUCE KULICK SPILAÐI Á MEÐ KISS Fjörefni úr frystinum Fæst í verslunum Bónus 1984 Animalize 1985 Asylum 1987 Crazy Nights 1988 Smashes, Thrashes & Hits 1989 Hot in the shade 1992 Revenge 1993 Alive III 1995 Unplugged 1997 Carnival of souls* *Þessi plata var tekin upp 1995 en gefin út 1997 þegar upprunalega bandið var komið saman aftur. „Hann er kominn til landsins og er mjög sáttur við íslenska loftið,“ segir Þráinn Árni Baldvins- son, gítarleikari Meik, en Kiss-gítarleikarinn Bruce Kulick er kominn hingað til lands til að spila með sveitinni. Meik er hljómsveit sem leik- ur lög til heiðurs Kiss og hefur verið starfrækt í rúmt ár en hana skipa þeir Magni Ásgeirsson söngvari, Einar Þór Jóhannsson, Jón Elvar Haf- steinsson, Þráinn Árni Baldvinsson gítarleikarar, Eiður Arnarsson bassaleikari og Jóhann Hjörleifs- son trommuleikari. „Við æfðum með honum í gær og það var alveg geggjað. Í dag er svo svona Meet and Greet, þar getur fólk fengið að heilsa upp á kappann, látið hann árita plötur og myndir. Þar fá Kiss-nördarn- ir að spyrja hann spurninga,“ útskýrir Þráinn. Hann verður hér á landi í fjóra daga. „Við tökum góðan túristapakka með honum, förum með hann í Bláa lónið og sýnum honum helstu perlurnar hérna í kring.“ Umboðsmaður Kulicks er mikill Íslandsáhugamaður en þeir vissu báðir að við Íslendingar borðuðum skrítinn mat. „Þeir vilja allavega ekki borða andlit dýra eða æxlunar- færi.“ Bruce Kulick kom hingað til lands með Kiss 30. ágúst 1988, þegar þeir spiluðu í Reiðhöllinni. „Það var talað um að það hafi verið um 7.500 manns á þeim tónleikum, sem var mjög mikið á þeim tíma. Ég var 12 ára gamall þarna og fór með pabba á tónleikana, þetta var alveg brjálað.“ Meðlimir Kiss voru á þeim tíma taldir vera orðnir frekar gamlir en þeir voru mjög vinsælir í Evrópu þá. Þá voru þeir einnig ómálaðir á þessum tíma. Kiss er enn að koma fram í dag. „Bruce var aldrei málaður, hann lék inn á átta Kiss-plötur, Crazy Nights og Revenge eru líklega vinsælastar,“ segir Þráinn. Hann er þó ekki bara þekktur sem gítarleikari Kiss því þegar Bat Out of Hell, vinsælasta plata Meat Loaf, kom út, fór Kulick á heimstúr með Meat Loaf til að fylgja þeirri plötu eftir. „Þetta var ótrúlega vinsæl plata og innihélt marga slag- ara en Bruce var bara rúmlega tvítugur á þessum tíma. Eftir þetta stofnaði Kulick hljómsveitina Black Jack og bauð Michael Bolton að vera með. Það þekkja flestir Michael Bolton. Bruce hefur því komið víða við,“ bætir Þráinn við. Einnig lék hann inn á sólóplötur Pauls Stanley og Gene Simm ons, meðlima Kiss. Í dag leikur hann talsvert með Kiss-heiðurs- böndum. „Hann kemur einnig fram í svokölluðum Rock and Roll Fantasy Camp, þar sem hann og fleiri goðsagnir spila með ungu fólki og djamma með þeim.“ Þá spilar hann líka með Grand Funk Railroad. „Hann er ofboðslega góður, mjög prófessjón- al og er með allt á hreinu. Hann fær að skína hjá okkur og við munum líklega bakka aðeins og vera slakir fyrir aftan hann,“ segir Þráinn fullur til- hlökkunar. gunnarleo@frettabladid.is Gítargoðsögnin hittir aðdáendur sína Bruce Kulick er kominn til landsins en hann kemur fram með Meik, sem leikur lög til heiðurs Kiss. Kulick var meðlimur Kiss í tólf ár. KISS-AÐDÁENDUR Hljómsveitina Meik skipa fyrrverandi og núverandi Kiss-aðdáendur og er Einar Þór gítarleikari meira að segja með Kiss-tattú eins og hér sést. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.