Fréttablaðið - 31.01.2014, Síða 90
31. janúar 2014 FÖSTUDAGUR| MENNING | 62
➜ Meik hefur leik klukkan 22.00 á Spot. „Hann kemur inn
í miðja tónleika og klárar giggið með okkur. Þetta verður rock and roll-
partí. Starfsfólkið verður málað, allt út í Kiss-þema.“
PLÖTUR SEM BRUCE KULICK SPILAÐI Á MEÐ KISS
Fjörefni úr frystinum
Fæst í verslunum Bónus
1984 Animalize 1985 Asylum 1987 Crazy Nights 1988 Smashes,
Thrashes & Hits
1989 Hot in the
shade
1992 Revenge 1993 Alive III 1995 Unplugged 1997 Carnival of
souls*
*Þessi plata var tekin upp 1995 en gefin út 1997
þegar upprunalega bandið var komið saman aftur.
„Hann er kominn til landsins og er mjög sáttur
við íslenska loftið,“ segir Þráinn Árni Baldvins-
son, gítarleikari Meik, en Kiss-gítarleikarinn
Bruce Kulick er kominn hingað til lands til að
spila með sveitinni. Meik er hljómsveit sem leik-
ur lög til heiðurs Kiss og hefur verið starfrækt
í rúmt ár en hana skipa þeir Magni Ásgeirsson
söngvari, Einar Þór Jóhannsson, Jón Elvar Haf-
steinsson, Þráinn Árni Baldvinsson gítarleikarar,
Eiður Arnarsson bassaleikari og Jóhann Hjörleifs-
son trommuleikari.
„Við æfðum með honum í gær og það var alveg
geggjað. Í dag er svo svona Meet and Greet, þar
getur fólk fengið að heilsa upp á kappann, látið
hann árita plötur og myndir. Þar fá Kiss-nördarn-
ir að spyrja hann spurninga,“ útskýrir Þráinn.
Hann verður hér á landi í fjóra daga. „Við
tökum góðan túristapakka með honum, förum
með hann í Bláa lónið og sýnum honum helstu
perlurnar hérna í kring.“ Umboðsmaður Kulicks
er mikill Íslandsáhugamaður en þeir vissu báðir
að við Íslendingar borðuðum skrítinn mat. „Þeir
vilja allavega ekki borða andlit dýra eða æxlunar-
færi.“
Bruce Kulick kom hingað til lands með Kiss 30.
ágúst 1988, þegar þeir spiluðu í Reiðhöllinni. „Það
var talað um að það hafi verið um 7.500 manns á
þeim tónleikum, sem var mjög mikið á þeim tíma.
Ég var 12 ára gamall þarna og fór með pabba á
tónleikana, þetta var alveg brjálað.“
Meðlimir Kiss voru á þeim tíma taldir vera
orðnir frekar gamlir en þeir voru mjög vinsælir í
Evrópu þá. Þá voru þeir einnig ómálaðir á þessum
tíma. Kiss er enn að koma fram í dag.
„Bruce var aldrei málaður, hann lék inn á átta
Kiss-plötur, Crazy Nights og Revenge eru líklega
vinsælastar,“ segir Þráinn.
Hann er þó ekki bara þekktur sem gítarleikari
Kiss því þegar Bat Out of Hell, vinsælasta plata
Meat Loaf, kom út, fór Kulick á heimstúr með
Meat Loaf til að fylgja þeirri plötu eftir. „Þetta
var ótrúlega vinsæl plata og innihélt marga slag-
ara en Bruce var bara rúmlega tvítugur á þessum
tíma. Eftir þetta stofnaði Kulick hljómsveitina
Black Jack og bauð Michael Bolton að vera með.
Það þekkja flestir Michael Bolton. Bruce hefur
því komið víða við,“ bætir Þráinn við. Einnig
lék hann inn á sólóplötur Pauls Stanley og Gene
Simm ons, meðlima Kiss.
Í dag leikur hann talsvert með Kiss-heiðurs-
böndum. „Hann kemur einnig fram í svokölluðum
Rock and Roll Fantasy Camp, þar sem hann og
fleiri goðsagnir spila með ungu fólki og djamma
með þeim.“ Þá spilar hann líka með Grand Funk
Railroad.
„Hann er ofboðslega góður, mjög prófessjón-
al og er með allt á hreinu. Hann fær að skína hjá
okkur og við munum líklega bakka aðeins og vera
slakir fyrir aftan hann,“ segir Þráinn fullur til-
hlökkunar. gunnarleo@frettabladid.is
Gítargoðsögnin hittir aðdáendur sína
Bruce Kulick er kominn til landsins en hann kemur fram með Meik, sem leikur lög til heiðurs Kiss. Kulick var meðlimur Kiss í tólf ár.
KISS-AÐDÁENDUR Hljómsveitina Meik skipa fyrrverandi og núverandi Kiss-aðdáendur og er
Einar Þór gítarleikari meira að segja með Kiss-tattú eins og hér sést. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM