Fréttablaðið - 31.01.2014, Page 92
31. janúar 2014 FÖSTUDAGUR| MENNING | 64
Sigur Rósar
ÚTGÁFUTÓNLEIKARNIR FYRIR PLÖTUNA VON Mynd tekin í desember árið 1997 þegar sveitin
hélt útgáfutónleika í Friðrikskapellu á Hlíðarenda fyrir plötuna Von. „Þarna vorum við bara þrír í
bandinu en fengum söngkonu með okkur.”
FYRSTU SKREFIN Mynd tekin af Sigur Rós í febrúar árið 1995. F.v. Jón Þór Birgisson (Jónsi), Georg Holm og Ágúst Ævar Gunn-
arsson. Þeir eru jafnframt stofnendur hljómsveitarinnar. Jónsi og Georg eru enn í sveitinni en Ágúst yfirgaf hana árið 1999.
„Við erum allir búnir að skipta um hárgreiðslu. Á þessum tíma spiluðum við mikið í Rosenberg-kjallaranum sem var þar sem
Grillmarkaðurinn er í dag. Við vorum að vinna í Von-plötunni á þessum tíma.“
Í GEIMVÍSINDASTÖÐINNI JODRELL BANK OBSERVATORY „Þarna var mikið lasersjóv
í gangi, í geimvísindastöð. Þarna var stærsti geimsjónauki í Evrópu en við höfðum
því miður ekki tíma til að kíkja í hann. Á þessum tónleikum, eins og oft áður,
var búið að ákveða að tjalda öllu til. Við vorum fyrsta bandið sem fékk að
nota þessa rosalega öfluga lasera. Þetta er langt úti í sveit.“
SIGUR RÓS Í SIMPSONS „Þetta var óvænt, við vorum á
tónleikaferðalagi og baksviðs á einum tónleikunum kom
umboðsmaðurinn okkar og uppfærði okkur um ýmis mál en
endaði ræðuna með því að segja: „Og svo voru Simpsons að hafa
samband, þeir voru að biðja okkur að búa til nýja músík fyrir þáttinn
og breyta upphafsstefinu og svona.“ Við vorum á leiðinni upp á svið og
hugsuðum að við hefðum alveg hafnað svona sjónvarpsþáttatilboðum
en í þetta skiptið litum við hver á annan og hugsuðum að við gætum ekki
sagt nei við þessu. Við vorum í svona viku að búa til músíkina og unnum hana
bara baksviðs á tónleikaferðalaginu.“
ÁSBYRGI Á HEIMATÚRNUM „Þarna erum við í Ásbyrgi á Heima túrnum
og voru tónleikarnir einnig í Heimamyndinni. Þetta voru síðustu tón-
leikarnir á ferðalaginu. Við gistum í 30-40 mínútna akstursfjarlægð frá tón-
leikastaðnum. Við vorum næstum búinir að missa af tónleikunum því þarna
var mætt svo margt fólk og við vorum svo lengi að komast að tónleikastaðnum.
Þetta voru mjög skemmtilegir tónleikar.“
Á INGÓLFSTORGI Mynd tekin við Ingólfs-
torg í Reykjavík árið 1997. „Mig minnir að
það hafi verið rigning á þessum tónleikum.
Við erum að spila lagið Olsen Olsen og erum
á þessum tíma að semja plötuna Ágætis
byrjun. Ég held að þetta hafi verið í fyrsta sinn
sem við lékum Olsen Olsen.“
GULL- OG PLATÍNUPLÖTUR „Þarna erum við að fá gullplötu og líka platínuplötur fyrir allar plöturnar okkar. Þetta er að ég held
tekið í kringum árið 2005.”
Í LOS ANGELES „Þarna erum við að taka við verðlaunum sem kallast Virgin
Megastore Shortlist Prize. Þessi verðlaun eru í raun ameríska útgáfan af Mercury-
verðlaun unum bresku, fyrir nýtt, framandi og lofandi efni. Dave Grohl var á meðal
annarra í dómnefndinni og varð víst brjálaður yfir því að við skyldum ekki vinna
verðlaunin en við unnum þannig að hann hefur haft áhrif.“
1995
1997
2001 2005
2013
2006
ára
afmæli 20
Hljómsveitin Sigur Rós fagnar í ár tuttugu ára afmæli
og var þeim áfanga fagnað fyrir skömmu í Iðnó við
Tjörnina. Á þeim tuttugu árum sem hljómsveitin hefur
starfað, hefur hún komið fram út um nánast allan
heim og gefi ð út sjö breiðskífur. Hinn 30. nóvember
síðastliðinn lauk þeirra stærstu tónleikaferð til þessa,
þar sem sveitin lék á 141 tónleikum í 32 löndum.
Hljómsveitin Sigur Rós var stofnuð 4. janúar árið 1994
af þeim Jóni Þór Birgissyni betur þekktum sem Jónsi,
Georg Holm og Ágústi Ævari Gunnarssyni. Í dag eru
hins vegar Jónsi og Georg þeir einu sem
hafa verið í sveitinni frá upphafi . Orri
Páll Dýrason trommuleikari kom
inn í sveitina í stað Ágústs árið
1999 og eru þeir þrír nú einu
meðlimir sveitarinnar.
Fréttablaðið náði tali af
Georg Holm, bassaleikara
sveitarinnar, og fékk
hann til að skýra eft ir-
farandi myndir af glæst-
um ferli sveitarinnar.