Fréttablaðið - 31.01.2014, Side 94
31. janúar 2014 FÖSTUDAGUR| MENNING | 66
BAKÞANKAR
Lilju Katrínar
Gunnarsdóttur
Þetta er í fyrsta sinn sem hinn for-
fallni Eurovision-aðdáandi Hauk-
ur Johnson tekur þátt í Eurovisi-
on-keppninni, en hann er búsettur
í Svíþjóð þar sem hann lærði tón-
listarútsetningar.
„Ég er mikill áhugamaður um
keppnina vegna tónlistarinn-
ar en hún hefur líka landfræði-
og sagnfræðilegt gildi sem mér
finnst spennandi. Það einkennir
svo flesta Eurovision-nörda eins
og mig að við elskum að ferðast
um heiminn,“ segir Haukur. „Það
er líka gaman við þessa keppni
fyrir Ísland að við sem smáþjóð
stöndum jafnfætis stórum þjóð-
um og eigum alveg jafnmikinn
séns.“ Haukur blæs á kenningar
um klíkuskap í keppninni.
„Auðvitað er eitthvað til í þess-
um klíkum en ég hef rannsakað
þetta sjálfur og það er ekkert til í
að þær stjórni því hver sigrar. Ég
hafna öllum hugmyndum um aust-
antjaldsmafíu. Svo má benda á að
skæðasta klíkan ef út í það er farið
er Norðurlandaklíkan, þær þjóðir
gefa alltaf hver annarri stig.“
Haukur hefur sjálfur farið fjór-
um sinnum á keppnina og hann
stefnir á að kíkja við í ár hvernig
sem fer.
„Ég á alþjóðlegan vinahóp sem
mig langar að hitta þarna, það
leynast náttúrulega Eurovision-
nördar alls staðar. Ég hef kynnst
fullt af fólki í gegnum þetta áhuga-
mál og eignast frábæra vini víðs-
vegar um heiminn.“
Haukur er útskrifaður úr hag-
fræði við Háskóla Íslands en loka-
ritgerðin hans var einmitt um
Eurovision. „Ég rannsakaði málið
og komst að því að það væri með
tilliti til allra atriða hagkvæmt
fyrir Ísland að halda þessa keppni.
Það má til dæmis gera ráð fyrir
gríðarlegum ferðmannatekjum
enda er um risastóra hátíð að
ræða.“
Hauk hefur lengi langað að taka
þátt sjálfur. „Ég hef gengið með
þetta í maganum lengi en ég fór
ekki að gera neitt í því fyrr en
nýlega þegar ég hóf nám við tón-
listarútsetningar. Ég hef fylgst
með keppninni síðan árið 1991. Það
var í fyrsta skipti sem ég horfði á
alla keppnina og tók hana upp, og
ég hef fylgst með henni æ síðan.“
Haukur segir ferlið að semja lagið
hafi tekið smá tíma. „Ég hafði
frá byrjun trú á laginu en auðvit-
að kom það skemmtilega á óvart
að vera valinn enda samkeppnin
mikil.“
Haukur segist spenntur fyrir
undankeppninni en að hann sé við
öllu búinn. „Mér líst rosalega vel á
þetta og verð alveg sáttur hvernig
sem fer. Ég kemst langt á þessu í
nördaheiminum.“
Lag Hauks verður á meðal
þeirra tíu laga sem keppa til
úrslita annað kvöld. - jme
Skrifaði lokaritgerð
um Eurovision
Haukur Johnson tekur þátt í Eurovision í fyrsta sinn með lagið Amor. Hann seg-
ist vera algjört Eurovision-nörd og blæs á kenningar um klíkuskap í keppninni.
SPENNTUR FYRIR KEPPNINNI Haukur hefur fylgst með Eurovision-keppninni á
hverju ári frá 1991. MYND/MARIA JANSSON
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
KRINGLUNNI
KEFLAVÍK
SPARBÍÓ
AKUREYRI
SJÁ FLEIRI SÝNINGAR Á WWW.BIOPARADÍS.IS - Miðasala: 412 7711 - Hverfisgata 54 - bioparadis.is - Hluti af Europa Cinemas
ÓSKARSVERÐLAUNA
TILNEFNINGAR
- MERYL STREEP OG
JULIA ROBERTS
TILNEFND TIL
5 ÓSKARS-
VERÐLAUNA
M.A. BESTA
MYND ÁRSINS
OG BESTA
HANDRIT
ÓSKARSVERÐLAUNA
TILNEFNINGAR
5
ÓSKARSVERÐLAUNA
TILNEFNINGAR
EIN BESTA MYND ÁRSINS
NÁNAR Á MIÐI.IS
HER
DALLAS BUYERS CLUB
AUGUST: OSAGE COUNTY
THE BOOK THIEF
KL. 8 - 10:15
KL. 8 - 10:15
KL. 5:45
KL. 5:45
HER
DALLAS BUYERS CLUB
EYJAFJALLAJÖKULL
AUGUST OSAGE COUNTY
THE BOOK THIEF
KL. 6 - 9
KL. 5.30 - 8 - 10.30
KL. 6
KL. 8 - 10.35
KL. 6 - 9
HER
JACK RYAN
SKÝJAÐ MEÐ KJÖTBOLLUM 2 2D
SKÝJAÐ MEÐ KJÖTBOLLUM 2 3D
47 RONIN 3D
BELIEVE
SECRET LIFE OF WALTER MITTY
SECRET ... WALTER MITTY LÚXUS
THE HOBBIT 3D 48R
THE HOBBIT 3D 48R LÚXUS
KL. 8 - 10.40
KL. 5.30 - 8
KL. 3.30 - 5.40
KL. 3.30
KL. 10.20
KL. 3.30
KL. 5.30 - 8 - 10.30
KL. 8 - 10.30
KL. 5.40 - 9
KL. 4.30
Miðasala á: og
6
2
DALLAS BUYERS CLUB 5:30, 8, 10:20
47 RONIN 3D 8
SKÝJAÐ MEÐ KJÖTBOLLUM 3D 4, 6
HOBBIT 2 3D (48R) 8
LONE SURVIVOR 10:30
SECRET LIFE OF WALTER MITTY 5:30
Tilboð í bíó. Gildir á allar sýningar merktar með rauðu.
sýnd í 3d 48 rammaS R L.K.G - FBLS.G.S - MBL
5%
1-0 fyrir mig
Það breytist margt við það að eignast barn. Helsta breytingin felst í tíma-
skipulagningu því við skulum bara segja
það eins og er – það er ofboðslega erfitt
að fara allt í einu að hugsa um eitthvað
annað en rassgatið á sjálfum sér.
NÚ er dóttir mín orðin fjögurra ára. Hún
er ekki lengur slefandi hrúga sem lætur
sér nægja að borða, sofa og horfa út í
loftið. Hún er komin með persónuleika,
sjálfstæðan vilja, skoðanir, pælingar og
húmor. Hún spyr þúsund spurninga á
hverjum degi og stendur í þeirri trú
að hún sé 34 ára.
SÍÐAN hún byrjaði að geta gert
sig skiljanlega og ég á móti talað
af einhverju viti við hana hef ég
reynt að rækta ýmsa kosti í þessu
litla, saklausa barni. Ég hrósa
henni á hverjum degi. Ekki bara fyrir
það augljósa – að hún sé sæt, full-
komin og meiriháttar. Líka fyrir
það hvað hún er dugleg að vanda
sig að lita, hvað hún er með sterka
réttlætiskennd og góð við aðra í
kringum sig, hvað hún er sterk, fljót að
hlaupa, flink að perla og endalaust góð
við mömmu sína.
ÉG hef líka reynt að útskýra fyrir henni
að ekki sé hægt að setja manneskjur í
flokka. Að staðalímyndir séu bara bull.
Það sé allt í lagi að strákar séu með sítt
hár, skart og naglalakk og ekkert að því
þó stelpur horfi á „strákamyndir“, leiki
sér með verkfæri og hafi gaman af bílum.
HINGAÐ til hefur þetta ekki gengið sem
skyldi. Hún kaupir ekki alltaf það sem
mamma hennar segir henni því að eigin
sögn „veit hún allt því hún er svo klár“.
En um daginn rofaði til í baráttu minni
gegn sleggjudómum. Litla, óborganlega
dóttir mín spurði mig við hvað ég ynni.
Ég svaraði á móti að ég væri blaðamaður
og leikkona. Dóttir mín horfði undarlega
á mig, hugsaði sig um í sekúndubrot og
sagði síðan í hneykslunartón: „Mamma,
þú ert ekki blaðamaður! Þú ert blaða-
kona!“
1-0 fyrir mig.
➜ Haukur er útskrifaður úr
hagfræði við Háskóla Íslands
en lokaritgerðin hans var ein-
mitt um Eurovision.