Fréttablaðið - 31.01.2014, Side 96
31. janúar 2014 FÖSTUDAGUR| SPORT | 68
visir.is
Allt um leiki
gærkvöldsins
DOMINOS KARLA
NJARÐVÍK - ÞÓR Þ. 100-73 (50-34)
Tracy Smith Jr. 27/12 frák., Logi Gunnarsson
22, Elvar Már Friðriksson 20/9 stoðs./5 stolnir
- Mike Cook Jr. 27, Tómas Heiðar Tómasson 11,
Emil Karel Einarsson 11.
STJARNAN - KR 75-78 (35-36)
Matthew Hairston 22/13 frák., Justin Shouse
17/5 fráköst/6 stoðs. - Martin Hermannsson
23/7 fráköst/5 stoðs., Brynjar Þór Björnsson
17/7 stoðs., Pavel Ermolinskij 12/11 fráköst.
SNÆFELL - HAUKAR 96-82 (56-50)
Travis Cohn III 27/7 stoðs./5 stolnir, Sigurður Á.
Þorvaldsson 25, Jón Ólafur Jónss. 11/10 frák./6
stoðs. - Haukur Óskarsson 18, Emil Barja 15.
ÍR - GRINDAVÍK 96-94 (55-47)
Nigel Moore 22/10 frák./8 stoðs., Matthías
Orri Sigurðarson 18/5 frák./10 stoðs., Hjalti
Friðriksson 17 - Earnest Clinch Jr. 25/8 stoðs.,
Ómar Örn Sævarsson 18/9 fráköst.
KEFLAVÍK - VALUR 106-92 (50-39)
Michael Craion 30/12 fráköst, Guðmundur
Jónsson 19, Darrel Keith Lewis 17, Gunnar
Ólafsson 15 - Chris Woods 43/14 frák., Birgir
Björn Pétursson 14/10 frák., Oddur Ólafsson 12.
OLÍS DEILD KARLA
ÍR - HAUKAR 24-29 (14-10)
Sturla Ásgeirsson 6/1, Arnar Birkir Hálfdánsson
6, Guðni Már Kristinsson 4 - Elías Már
Halldórsson 8, Sigurbergur Sveinsson 7/1, Tjörvi
Þorgeirsson 5, Jón Þorbjörn Jóhannsson 4.
FRAM - FH 25-23 (10-12)
Garðar B. Sigurjónsson 9/6, Stefán Darri
Þórsson 4/1 - Magnús Óli Magnússon 8, Einar
Rafn Eiðsson 5, Ásbjörn Friðriksson 4/3.
AKUREYRI - VALUR 18-26 (10-8)
Bjarni Fritzson 6/2, Þrándur Gíslason 5 - Sveinn
A. Sveinsson 10/2, Guðmundur H. Helgason 6/1.
FRÁBÆRIR Í SEINNI Sigurbergur
Sveinsson og félagar í Haukum sneru
leiknum við eftir hlé. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
HANDBOLTI Áfrýjunardómstóll Handknattleiks-
sambands Evrópu, EHF, kvað upp dóm í gær sem
skyldaði þýska B-deildarliðið Emsdetten til að greiða
KA á Akureyri uppeldisbætur fyrir hornamanninn Odd
Gretarsson.
Oddur fór frítt frá Akureyri handboltafélagi til
Emsdetten í sumar en þýska félagið þurfti engu
að síður að borga uppeldisbætur í samræmi
við reglur sambandsins. Emsdetten neitaði og
þegar dómstóll EHF úrskurðaði í nóvember að
félaginu bæri að greiða bæturnar var málinu
skotið til áfrýjunardómstólsins.
Forráðamenn Emsdetten báru meðal annars
fyrir sig að innan Evrópu ætti að ríkja frjáls
för launþega og að Evrópulög tækju fyrir
greiðslur sem þessar.
HSÍ var umboðsaðili Akureyringa í málinu og
segir Guðmundur B. Ólafsson, formaður sam-
bandsins og hæstaréttarlögmaður, að niðurstaðan
hefði verið skýr á báðum dómsstigum. „Í stuttu
máli, að gjaldtaka sem þessi er lögmæt og stangast
ekki á við Evrópulöggjöfina,“ segir Guðmundur
og bætir við að málið eigi sér ekki fordæmi
innan handboltans og niðurstaðan merkileg
fyrir þær sakir.
Í málflutningi Þjóðverja var meðal
annars haldið fram að HSÍ hefði ekki
umboð til að rukka uppeldisbætur fyrir
KA og að ekki væri hægt að bera saman
uppeldi handboltamanns í Þýskalandi og
Íslandi. Þeim rökum var vísað frá í niðurstöðu
dómsins. - esá
Emsdetten skylt að greiða KA uppeldisbætur fyrir Odd
Leikmenn meistaraflokks Þórs í knattspyrnu hafa sent frá sér yfirlýsingu vegna
fréttar Akureyrar vikublaðs þar sem sagt er frá vísbendingum um að sumir
leikmannanna hafi veðjað á leik sem þeir sjálfir tóku þátt í gegn Dalvík þann
13. janúar. „Alvarlegar ásakanir voru bornar á mig og mína liðsmenn í gær í
frétt Akureyri vikublaðs. Til þess að svara þessum orðrómi sem er að því er
virðist heimildarlaus slúðurfrétt, staðfesti ég fyrir
hönd allra leikmanna Þórs sem voru á leikskýrslu í
umræddum leik við uppeldisfélag mitt Dalvík/Reyni að
enginn okkar veðjaði á umræddan leik, hvort sem um
úrslit eða önnur atvik leiksins ræðir,“ skrifaði Sveinn
Elías Jónsson, fyrirliði Þórs. Akureyri vikublað stendur
við sín skrif og segist hafa traustar heimildir fyrir frétt-
inni. Þórir Hákonarson, framkvæmdastjóri KSÍ, sagði í
kvöldfréttum Stöðvar tvö í gær að stjórn sambandsins
myndi taka málið fyrir. Þórir vill líka að Alþingi Ís-
lendinga setji sterka löggjöf um veðmál.
Þórsarar neita en KSÍ tekur málið fyrir
SPORT
13:00
SUNNUDAG| Sunnudag 13:00
Nýr þjóðmálaþáttur hefur göngu sína á
sunnudaginn í umsjón Mikaels Torfasonar,
aðalritstjóri fréttamiðla 365. Fjallað verður
um stjórnmál og fréttir líðandi stundar,
mikilvæg samfélagsmál verða rædd frá
öllum hliðum og þau krufin til mergjar.
Á meðal sérfræðinga þáttarins verða Elliði
Vignisson, Svandís Svavarsdóttir, Áslaug
Arna Sigurbjörnsdóttir, Össur Skarphéðins-
son, Katrín Júlíusdóttir og Vigdís Hauks-
dóttir. Umræðuþáttur fyrir alla sem láta sig
þjóðmál varða.
Sanngjarn
og heiðarlegur
Í OPINNI DAGSKRÁ!
J
A
N
Ú
A
R
HANDBOLTI Rakel Dögg Braga-
dóttir, fyrrverandi landsliðsfyr-
irliði íslenska kvennalandsliðs-
ins, tilkynnti í gær að hún væri
tilneydd til að leggja skóna á hill-
una aðeins 27 ára gömul. Ástæðan
er sú að hún glímir við erfið eftir-
köst heilahristings sem hún fékk
á landsliðsæfingu í lok nóvember.
Góðu fréttirnar eru hins vegar
þær að einkennin munu ganga til
baka með tíð og tíma en þar sem
útséð var um að Rakel gæti spil-
að handbolta á næstunni tók hún
þessa ákvörðun.
„Læknar útilokuðu algjör-
lega þetta tímabil og hluta af
því næsta. Þar að auki gátu þeir
ekki gefið mér neinn tímaramma
fyrir mögulega endurkomu,“
segir Rakel Dögg sem getur ekki
fengið sér einfaldan göngutúr eða
sinnt venjulegum heimilisstörf-
um án þess að vera rúmliggjandi
í nokkra daga á eftir.
„Þá fer maður að missa trúna
á þessu. Ég bara get ekki lengur
stefnt að einhverju þegar horf-
urnar eru svona,“ segir Rakel
Dögg.
Meiðslin áttu sér stað þegar
Rakel Dögg fékk skot í höfuð á
landsliðsæfingu. Hún segir að
höggið sem hún fékk hafi verið
mjög þungt og af stuttu færi.
Hrundi aftur á bak í gólfið
„Fyrstu viðbrögð mín voru á þá
leið að ég hlyti að vera í lagi –
þetta var bara smá höfuðhögg. En
þegar ég lít til baka átta mig ég á
því hversu alvarlegt þetta var. Ég
steinlá eftir og datt út í smástund.
Þegar ég reyndi að reisa mig við
þá hrundi ég aftur í gólfið,“ segir
Rakel Dögg sem segir aðspurð að
viðkomandi landsliðsfélagi henn-
ar sé afar miður sín vegna atviks-
ins.
„Ég hringdi í hana í vikunni
og við spjölluðum aðeins saman.
Ég ber alls engan kala til hennar
enda eins og hvert annað slys sem
á sér stað á æfingum og í leikj-
um. Svona getur bara handboltinn
verið stundum.“
Rakel greindi frá ákvörðuninni
á Facebook-síðu sinni í gær og
þuldi þá upp langan lista yfir öll
þau meiðsli sem hún hefur orðið
fyrir á ferlinum – þar á meðal
mörg beinbrot, nokkrar aðgerðir
og tvö krossbandsslit.
„Það var ekki fyrr en ég sett-
ist niður og skrifaði þetta að ég
áttaði mig á því hvað ég er búin
að ganga í gegnum – og lét ég
vera að minnast á öll smávægi-
legu meiðslin eins og tognanir
og annað slíkt. Þetta hefur tekið
mikið á enda vita allir íþrótta-
menn hversu erfitt það er að sitja
á hliðarlínunni. Ég hef þó alltaf
verið tilbúin að bíða þolinmóð
en nú þegar meiðslin eru komin
í höfuðið og ógna langtímaheils-
unni þá finnst manni nóg komið.
Ég varð bara að segja stopp.“
Ótrúleg stund í Austurríki
Rakel segir margt standa upp úr
eftir ferilinn – hvort sem er titl-
arnir með æskufélaginu Stjörn-
unni, árin í atvinnumennskunni í
Noregi og Danmörku eða afrekin
með íslenska landsliðinu.
„Það var alveg svakalegt þegar
við náðum að tryggja okkur inn
á EM 2010 með því að vinna
Austurríki,“ segir Rakel Dögg
en þá tókst kvennalandsliðinu
að tryggja sér þátttökurétt á
stórmóti í fyrsta sinn. Ári síðar
komst liðið á HM í fyrsta sinn en
Rakel Dögg varð fyrir því óláni
að slíta krossband í hné örfáum
vikum fyrir mótið. „Svo eru allar
viðurkenningarnar sem ég fékk
mér afar kærar. Ég á ótal góðar
minningar frá ferlinum,“ bætir
hún við.
Rakel hefur vitaskuld ekki
ákveðið hvað taki við hjá henni og
hvort hún ætli sér að halda áfram
að starfa í kringum handboltann.
„Eftir að ég kom heim úr
atvinnumennskunni stofnaði ég
handboltaakademíu með Ágústi
[Jóhannssyni landsliðsþjálfara]
og ég ætla að halda áfram að
sinna henni. Hvort ég fari meira
út í þjálfun verður svo bara að
koma í ljós en ég hef náð að svala
þjálfaraþörf minni í akademí-
unni,“ segir hún.
Næst á dagskrá hjá Rakel er
endurhæfing „alveg frá grunni“
eins og hún orðaði það sjálf. „Ég
þarf að byggja upp þol til að geta
sinnt mínu daglegu lífi. Ég er
vön að æfa mína íþrótt átta sinn-
um í viku og því er ótrúlega pirr-
andi að það skuli vera vandamál
að gera einföldustu hluti eins og
að labba upp stiga. En skilaboðin
sem ég fékk eru að ég muni jafna
mig og það er gulrótin í þessu
öllu saman,“ segir Stjörnukonan
ákveðin.
eirikur@frettabladid.is
Ég varð bara að segja stopp
Rakel Dögg Bragadóttir, ein besta handboltakona landsins, tilkynnti í gær að hún væri hætt í handbolta
vegna alvarlegra höfuðmeiðsla. „Áttaði mig á því eft ir á hversu þungt höggið var í raun og veru,“ sagði hún.
BRAUTRYÐJANDI Rakel Dögg var fyrirliði íslenska landsliðsins þegar það keppti á
sínu fyrsta stórmóti í handbolta, EM í Danmörku árið 2010. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM