Fréttablaðið - 31.01.2014, Page 98

Fréttablaðið - 31.01.2014, Page 98
31. janúar 2014 FÖSTUDAGUR| SPORT | 70 KÖRFUBOLTI Hann segist vera orðinn þreyttur á því að lenda í öðru sæti. Hann var valinn annar í nýliðavalinu 2007, varð í öðru sæti í lokaúrslit- unum með Oklahoma City Thunder árið 2012 og hefur þrisvar endað í öðru sæti í kosningunni á besta leikmanni NBA-deildarinnar á síðustu fjór- um árum. Eins og Kevin Durant er að spila þessa dagana virðist fátt ætla að koma í veg fyrir það að hann verði loksins fyrstur. Skýr skilaboð inni á vellinum Kevin Durant sendi skýr skilaboð til „valnefndar- innar“ og allra liða í NBA-deildinni með frábær- um leik sínum og liðsfélaga hans í bursti á meist- urunum í Miami í fyrrinótt. Oklahoma City lenti 2-18 undir í byrjun og missti Durant fljótlega af velli með 2 villur. Hann og liðið komu hins vegar sterkt til baka, vann sig inn í leikinn og hreinlega lék sér síðan að meisturunum í seinni hálfleik og það á hinum ógnarsterka heimavelli Miami. Frammistaða Kevins Durant í janúarmánuði er svo sannarlega á leiðinni í sögubækurnar og það sem meira er að hann er að ná þessum ótrúlegu tölum um leið og hann leiðir lið sitt á glæsilegri sigurgöngu. Hann hefur skorað yfir 30 stig í tólf síðustu leikjum og því hafa aðeins tveir leikmenn náð á síðustu 30 árum. „Það er enginn sem getur dekkað hann einn á einn. Frábær sókn sigrar alltaf frábæra vörn. KD er frábær sóknarmaður,“ sagði LeBron James í aðdraganda viðureignar þeirra félaga sem var máluð upp sem uppgjör tveggja bestu körfu- boltamanna heims. James reyndi sitt, spilaði oft frábæra vörn á Durant sem átti vissulega þátt í því að Durant var seinn í gang. En í stað þess að brotna við mótlætið eins og í úrslitakeppninni í fyrra þá kom KD sér aftur á sporið og bætti enn einum 30 stiga leiknum í safnið. Eins og hjá Magic og Bird James hélt áfram að hrósa Durant en þeir hafa alltaf verið miklir félagar og orðalag þeirra og framkoma er farið að minna á tímana þegar Magic Johnson og Larry Bird kepptu um titlana, bæði meistaratitilinn og hver væri kosinn bestur í deildinni. „KD hefur alltaf getað sett boltann í jörðina og hann hefur alltaf verið góður sendingamaður. Það er eins og fólk sé fyrst að átta sig á þessu núna,“ sagði James en það sem er að gera útslagið núna er þessi nýtilkomni andlegi styrkur Durants. KD hefur alltaf virkað frekar brothættur inni á vell- inum og hefur oft skort slagkraftinn þegar mest hefur legið við. Þegar hann er farinn að blómstra við þær aðstæður þá er ekki hægt að líta framhjá honum aftur. „Það hefði verið gaman að hreinsa völlinn og láta þá keppa bara 1 á 1,“ sagði Scott Brooks, þjálfari Oklahoma City Thunder, kátur eftir leik- inn en hann þarf ekki að segja neitt um KD. Durant leggur mest á sig af öllum leikmönnum og er liðsfélögum sínum fyrirmynd innan sem utan vallar. Það hafa vissulega verið miklu meiri byrðar lagðar á Durant vegna meiðsla Russells Westbrook. Durant virkaði óöruggur og týndur án vængmanns- ins síns í vor en nú er allt annað uppi á teningn- um. Hann hafði tapað 13 af fyrstu 15 viðureignum sínum á móti LeBron James en fór nú fyrir sann- færandi sigri á stóra sviðinu. Tákn um breytta tíma, hver veit? Hvernig er hægt að stoppa hann? En af hverju er hann svona góður? Jú, hvernig er hægt að stoppa 206 cm háan leikmann, sem hreyfir sig eins og bakvörður, er ein allra besta skytta deildarinnar og leggur höfuðáherslu á að spila fyrir liðið. Hann tekur vissulega mörg skot en það er af því að hann þarf að gera það og skot frá Durant hvaðan sem er á vellinum telst nú betra en flest skot hjá öðrum leikmönnum. Durant komst í 50-40- 90 nýtinga klúbbinn í fyrra en þar eru fyrir aðeins þeir Steve Nash, Larry Bird, Mark Price, Reggie Miller og Dirk Nowitzki. Hér er átt við að vera með að lágmarki 50 prósenta skotnýtingu, 40 prósenta þriggja stiga nýtingu og 90 prósenta vítanýtingu. KD þarf að laga aðeins vítanýtinguna sína til að ná þessu aftur í ár. Það segir sig sjálft að það er erfitt að stoppa mann sem getur búið til sitt eigið skot, er í færi langt út fyrir þriggja stiga línu og nær ómögu- legt er að blokka því hann hoppar svo hátt í stökk- skoti sínu. Oklahoma City Thunder vann þarna sinn níunda sigur í röð, er efst í Vesturdeildinni og aðeins einum sigurleik frá því að vera með besta árangurinn í allri deildinni. Það eru því mörg rök fyrir því að KD verði loksins kosinn besti leikmaður NBA-deildarinnar. Þeir sem elskuðu einvígi Magic og Birds ættu að fara að hlakka til að upplifa einvígi Kevins Durant og LeBrons James. ooj@frettabladid.is Durant-dagar í NBA-deildinni Kevin Durant hefur skorað 30 stig eða meira í síðustu tólf leikjum og er aðeins sá þriðji sem nær því í NBA-deildinni undanfarna þrjá áratugi. Eft ir einhliða uppgjör tveggja bestu körfuboltamanna heims stefnir allt í það að LeBron James þurfi að láta honum eft ir krún- una sem besti leikmaðurinn í NBA. Einvígi KD og Lebrons er farið að minna á einvígi Magic og Birds á níunda áratugnum. FLESTIR 30 STIGA LEIKIR Í RÖÐ Í NBA-DEILDINNI SÍÐUSTU 30 ÁR Michael Jordan CHICAGO BULLS 24 ÁRA 11 LEIKIR Í RÖÐ YFIR 30 STIG FRÁ 13. FEBRÚAR TIL 4. MARS 1987 73% SIGURHLUTFALL 8 SIGRAR - 3 TÖP 40,6 STIG Í LEIK 5,4 FRÁKÖST Í LEIK 4,8 STOÐSENDINGAR Í LEIK 30-39 STIG - 6 LEIKIR 40-45 STIG - 3 LEIKIR 46-49 STIG - 0 LEIKIR 50 STIG EÐA MEIRA - 2 LEIKIR Shaquille O´Neal LOS ANGELES LAKERS 29 ÁRA 11 LEIKIR Í RÖÐ YFIR 30 STIG FRÁ 28. MARS TIL 17. APRÍL 2001 82% SIGURHLUTFALL 9 SIGRAR - 2 TÖP 33,7 STIG Í LEIK 12,5 FRÁKÖST Í LEIK 3,4 STOÐSENDINGAR Í LEIK 30-39 STIG - 11 LEIKIR 40-45 STIG - 0 LEIKIR 46-49 STIG - 0 LEIKIR 50 STIG EÐA MEIRA - 0 LEIKIR Kobe Bryant LOS ANGELES LAKERS 24 ÁRA 16 LEIKIR Í RÖÐ YFIR 30 STIG FRÁ 29. JANÚAR TIL 28. FEBRÚAR 2003 81% SIGURHLUTFALL 13 SIGRAR - 3 TÖP 40,4 STIG Í LEIK 4,9 FRÁKÖST Í LEIK 3,7 STOÐSENDINGAR Í LEIK 30-39 STIG - 5 LEIKIR 40-45 STIG - 8 LEIKIR 46-49 STIG - 1 LEIKUR 50 STIG EÐA MEIRA - 2 LEIKIR Tracy McGrady ORLANDO MAGIC 23 ÁRA 14 LEIKIR Í RÖÐ YFIR 30 STIG FRÁ 5. MARS TIL 1. APRÍL 2003 57% SIGURHLUTFALL 8 SIGRAR - 6 TÖP 37,4 STIG Í LEIK 6,0 FRÁKÖST Í LEIK 5,5 STOÐSENDINGAR Í LEIK 30-39 STIG - 10 LEIKIR 40-45 STIG - 3 LEIKIR 46-49 STIG - 1 LEIKIUR 50 STIG EÐA MEIRA - 0 LEIKIR Kevin Durant OKLAHOMA CITY THUNDER 25 ÁRA 12 LEIKIR Í RÖÐ YFIR 30 STIG FRÁ 7. JANÚAR 2014 - ENN Í GANGI 75% SIGURHLUTFALL 9 SIGRAR - 3 TÖP 38,0 STIG Í LEIK 6.3 FRÁKÖST Í LEIK 5,9 STOÐSENDINGAR Í LEIK 30-39 STIG - 8 LEIKIR 40-45 STIG -1 LEIKUR 46-49 STIG - 2 LEIKIR 50 STIG EÐA MEIRA - 1 LEIKUR 16 14 12 11 11 2012-13 1. LeBron James Miami Heat 2. Kevin Durant Oklahoma City Thunder 2011-12 1. LeBron James Miami Heat 2. Kevin Durant Oklahoma City Thunder 2010-11 1. Derrick Rose Chicago Bulls 2. Dwight Howard Orlando Magic 3. LeBron James Miami Heat 5. Kevin Durant Oklahoma City Thunder 2009-10 1. LeBron James Cleveland Cavaliers 2. Kevin Durant Oklahoma City Thunder KOMINN TÍMI Á FYRSTA SÆTIÐ Kevin Durant hefur spilað stórkostlega í janúarmánuði en hann hefur skorað 36,9 stig að meðaltali í leik. ➜ Besti leikmaður NBA undanfarin tímabil NORDICPHOTOS/GETTY
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.