Fréttablaðið - 31.01.2014, Blaðsíða 98
31. janúar 2014 FÖSTUDAGUR| SPORT | 70
KÖRFUBOLTI Hann segist vera orðinn þreyttur á
því að lenda í öðru sæti. Hann var valinn annar
í nýliðavalinu 2007, varð í öðru sæti í lokaúrslit-
unum með Oklahoma City Thunder árið 2012 og
hefur þrisvar endað í öðru sæti í kosningunni á
besta leikmanni NBA-deildarinnar á síðustu fjór-
um árum. Eins og Kevin Durant er að spila þessa
dagana virðist fátt ætla að koma í veg fyrir það
að hann verði loksins fyrstur.
Skýr skilaboð inni á vellinum
Kevin Durant sendi skýr skilaboð til „valnefndar-
innar“ og allra liða í NBA-deildinni með frábær-
um leik sínum og liðsfélaga hans í bursti á meist-
urunum í Miami í fyrrinótt. Oklahoma City lenti
2-18 undir í byrjun og missti Durant fljótlega af
velli með 2 villur. Hann og liðið komu hins vegar
sterkt til baka, vann sig inn í leikinn og hreinlega
lék sér síðan að meisturunum í seinni hálfleik og
það á hinum ógnarsterka heimavelli Miami.
Frammistaða Kevins Durant í janúarmánuði er
svo sannarlega á leiðinni í sögubækurnar og það
sem meira er að hann er að ná þessum ótrúlegu
tölum um leið og hann leiðir lið sitt á glæsilegri
sigurgöngu. Hann hefur skorað yfir 30 stig í tólf
síðustu leikjum og því hafa aðeins tveir leikmenn
náð á síðustu 30 árum.
„Það er enginn sem getur dekkað hann einn á
einn. Frábær sókn sigrar alltaf frábæra vörn. KD
er frábær sóknarmaður,“ sagði LeBron James í
aðdraganda viðureignar þeirra félaga sem var
máluð upp sem uppgjör tveggja bestu körfu-
boltamanna heims. James reyndi sitt, spilaði oft
frábæra vörn á Durant sem átti vissulega þátt í
því að Durant var seinn í gang. En í stað þess að
brotna við mótlætið eins og í úrslitakeppninni í
fyrra þá kom KD sér aftur á sporið og bætti enn
einum 30 stiga leiknum í safnið.
Eins og hjá Magic og Bird
James hélt áfram að hrósa Durant en þeir hafa
alltaf verið miklir félagar og orðalag þeirra og
framkoma er farið að minna á tímana þegar
Magic Johnson og Larry Bird kepptu um titlana,
bæði meistaratitilinn og hver væri kosinn bestur
í deildinni.
„KD hefur alltaf getað sett boltann í jörðina og
hann hefur alltaf verið góður sendingamaður. Það
er eins og fólk sé fyrst að átta sig á þessu núna,“
sagði James en það sem er að gera útslagið núna
er þessi nýtilkomni andlegi styrkur Durants. KD
hefur alltaf virkað frekar brothættur inni á vell-
inum og hefur oft skort slagkraftinn þegar mest
hefur legið við. Þegar hann er farinn að blómstra
við þær aðstæður þá er ekki hægt að líta framhjá
honum aftur.
„Það hefði verið gaman að hreinsa völlinn og
láta þá keppa bara 1 á 1,“ sagði Scott Brooks,
þjálfari Oklahoma City Thunder, kátur eftir leik-
inn en hann þarf ekki að segja neitt um KD.
Durant leggur mest á sig af öllum leikmönnum
og er liðsfélögum sínum fyrirmynd innan sem
utan vallar.
Það hafa vissulega verið miklu meiri byrðar
lagðar á Durant vegna meiðsla Russells Westbrook.
Durant virkaði óöruggur og týndur án vængmanns-
ins síns í vor en nú er allt annað uppi á teningn-
um. Hann hafði tapað 13 af fyrstu 15 viðureignum
sínum á móti LeBron James en fór nú fyrir sann-
færandi sigri á stóra sviðinu. Tákn um breytta
tíma, hver veit?
Hvernig er hægt að stoppa hann?
En af hverju er hann svona góður? Jú, hvernig er
hægt að stoppa 206 cm háan leikmann, sem hreyfir
sig eins og bakvörður, er ein allra besta skytta
deildarinnar og leggur höfuðáherslu á að spila fyrir
liðið.
Hann tekur vissulega mörg skot en það er af
því að hann þarf að gera það og skot frá Durant
hvaðan sem er á vellinum telst nú betra en flest
skot hjá öðrum leikmönnum. Durant komst í 50-40-
90 nýtinga klúbbinn í fyrra en þar eru fyrir aðeins
þeir Steve Nash, Larry Bird, Mark Price, Reggie
Miller og Dirk Nowitzki. Hér er átt við að vera með
að lágmarki 50 prósenta skotnýtingu, 40 prósenta
þriggja stiga nýtingu og 90 prósenta vítanýtingu.
KD þarf að laga aðeins vítanýtinguna sína til að ná
þessu aftur í ár. Það segir sig sjálft að það er erfitt
að stoppa mann sem getur búið til sitt eigið skot, er í
færi langt út fyrir þriggja stiga línu og nær ómögu-
legt er að blokka því hann hoppar svo hátt í stökk-
skoti sínu.
Oklahoma City Thunder vann þarna sinn níunda
sigur í röð, er efst í Vesturdeildinni og aðeins einum
sigurleik frá því að vera með besta árangurinn í allri
deildinni. Það eru því mörg rök fyrir því að KD verði
loksins kosinn besti leikmaður NBA-deildarinnar.
Þeir sem elskuðu einvígi Magic og Birds ættu að
fara að hlakka til að upplifa einvígi Kevins Durant
og LeBrons James. ooj@frettabladid.is
Durant-dagar í NBA-deildinni
Kevin Durant hefur skorað 30 stig eða meira í síðustu tólf leikjum og er aðeins sá þriðji sem nær því í NBA-deildinni undanfarna þrjá
áratugi. Eft ir einhliða uppgjör tveggja bestu körfuboltamanna heims stefnir allt í það að LeBron James þurfi að láta honum eft ir krún-
una sem besti leikmaðurinn í NBA. Einvígi KD og Lebrons er farið að minna á einvígi Magic og Birds á níunda áratugnum.
FLESTIR 30 STIGA LEIKIR Í RÖÐ Í NBA-DEILDINNI SÍÐUSTU 30 ÁR
Michael Jordan
CHICAGO BULLS 24 ÁRA
11 LEIKIR Í RÖÐ YFIR 30 STIG
FRÁ 13. FEBRÚAR TIL 4. MARS 1987
73% SIGURHLUTFALL
8 SIGRAR - 3 TÖP
40,6 STIG Í LEIK
5,4 FRÁKÖST Í LEIK
4,8 STOÐSENDINGAR Í LEIK
30-39 STIG - 6 LEIKIR
40-45 STIG - 3 LEIKIR
46-49 STIG - 0 LEIKIR
50 STIG EÐA MEIRA - 2 LEIKIR
Shaquille O´Neal
LOS ANGELES LAKERS 29 ÁRA
11 LEIKIR Í RÖÐ YFIR 30 STIG
FRÁ 28. MARS TIL 17. APRÍL 2001
82% SIGURHLUTFALL
9 SIGRAR - 2 TÖP
33,7 STIG Í LEIK
12,5 FRÁKÖST Í LEIK
3,4 STOÐSENDINGAR Í LEIK
30-39 STIG - 11 LEIKIR
40-45 STIG - 0 LEIKIR
46-49 STIG - 0 LEIKIR
50 STIG EÐA MEIRA - 0 LEIKIR
Kobe Bryant
LOS ANGELES LAKERS 24 ÁRA
16 LEIKIR Í RÖÐ YFIR 30 STIG
FRÁ 29. JANÚAR TIL 28. FEBRÚAR 2003
81% SIGURHLUTFALL
13 SIGRAR - 3 TÖP
40,4 STIG Í LEIK
4,9 FRÁKÖST Í LEIK
3,7 STOÐSENDINGAR Í LEIK
30-39 STIG - 5 LEIKIR
40-45 STIG - 8 LEIKIR
46-49 STIG - 1 LEIKUR
50 STIG EÐA MEIRA - 2 LEIKIR
Tracy McGrady
ORLANDO MAGIC 23 ÁRA
14 LEIKIR Í RÖÐ YFIR 30 STIG
FRÁ 5. MARS TIL 1. APRÍL 2003
57% SIGURHLUTFALL
8 SIGRAR - 6 TÖP
37,4 STIG Í LEIK
6,0 FRÁKÖST Í LEIK
5,5 STOÐSENDINGAR Í LEIK
30-39 STIG - 10 LEIKIR
40-45 STIG - 3 LEIKIR
46-49 STIG - 1 LEIKIUR
50 STIG EÐA MEIRA - 0 LEIKIR
Kevin Durant
OKLAHOMA CITY THUNDER 25 ÁRA
12 LEIKIR Í RÖÐ YFIR 30 STIG
FRÁ 7. JANÚAR 2014 - ENN Í GANGI
75% SIGURHLUTFALL
9 SIGRAR - 3 TÖP
38,0 STIG Í LEIK
6.3 FRÁKÖST Í LEIK
5,9 STOÐSENDINGAR Í LEIK
30-39 STIG - 8 LEIKIR
40-45 STIG -1 LEIKUR
46-49 STIG - 2 LEIKIR
50 STIG EÐA MEIRA - 1 LEIKUR
16
14
12
11
11
2012-13
1. LeBron James Miami Heat
2. Kevin Durant Oklahoma City Thunder
2011-12
1. LeBron James Miami Heat
2. Kevin Durant Oklahoma City Thunder
2010-11
1. Derrick Rose Chicago Bulls
2. Dwight Howard Orlando Magic
3. LeBron James Miami Heat
5. Kevin Durant Oklahoma City Thunder
2009-10
1. LeBron James Cleveland Cavaliers
2. Kevin Durant Oklahoma City Thunder
KOMINN TÍMI Á FYRSTA SÆTIÐ Kevin
Durant hefur spilað stórkostlega í
janúarmánuði en hann hefur skorað 36,9
stig að meðaltali í leik.
➜ Besti leikmaður NBA
undanfarin tímabil
NORDICPHOTOS/GETTY