Fréttablaðið - 04.02.2014, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 04.02.2014, Blaðsíða 4
4. febrúar 2014 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 4 FJÖLMIÐLAR Álf- rún Pálsdóttir hefur tekið við starfi ritstjórn- arfulltrúa á Fréttablaðinu. Í starfi sínu verður Álfrún með yfirumsjón yfir helgarblaði Fréttablaðsins, dægurmáladeildinni og Lífinu. Álfrún er þrítug og hóf fyrst störf hjá Fréttablaðinu árið 2006 og hefur starfað við dægurmála- deildina með hléum síðan. Hún er menntuð í fjölmiðla- og kynja- fræði. Breytingar á Fréttablaðinu: Álfrún yfir dægurmálum ÁLFRÚN PÁLSDÓTTIR 13 sinnum fleiri íslenskir karlmenn gengust undir ófrjósemisaðgerðir árið 2012 en árið 1982 þegar 37 manns fóru undir hnífinn miðað við 483 karla árið 2012. Á sama tíma fækkaði ófrjósemisaðgerðum á konum úr 581 í 123. STANGVEIÐI „Þó við komum lask- aðir út úr síðasta ári, þá virðist nú nokkuð bjart fram undan,“ segir Bjarni Júlí- usson í pistli þar sem hann kynnir þá ákvörðun að gefa ekki kost á sér áfram sem formaður Stanga- veiðifélags Reykjavíkur. Bjarni var fyrst formaður SVFR árin 2004 til 2007 og var síðan kall- aður til aftur frá 2010. „Ég var reiðubúinn að einhenda mér í þetta eins árs verkefni af því mér finnst vænt um Stangaveiði- félag Reykjavíkur,“ segir Bjarni. Árin hafi reyndar orðið þrjú. „Félagið hefur gengið í gegnum ýmsar hremmingar, aflabrest, stórminnkandi spurn eftir veiði- leyfum, ásamt oft á tíðum flóknum samskiptum við veiðiréttareigend- ur.“ - gar Eitt ár varð þrjú hjá SVFR: Bjarni yfirgefur formannsstólinn BJARNI JÚLÍUSSON Elísabet Margeirsdóttir veðurfréttamaður Veðurspá Fimmtudagur 8-18 m/s, stífastur SA-til. DREGUR ÚR VINDI Frostlaust á láglendi og fremur milt, einkum syðra á landinu í dag. Víða rigning eða skúrir en úrkomulítið norðvestan til. Svipað veður á morgun og léttir aðeins til en heldur stífari norðaustanátt á fimmtudag og kólnar. 3° 10 m/s 4° 12 m/s 6° 13 m/s 8° 18 m/s Á morgun 5-13 m/s, hvassast syðst. Gildistími korta er um hádegi 2° 1° 1° 0° -2° Alicante Basel Berlín 16° 7° 7° Billund Frankfurt Friedrichshafen 7° 7° 7° Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas 1° 1° 21° London Mallorca New York 9° 16° 2° Orlando Ósló París 26° 2° 8° San Francisco Stokkhólmur 12° 1° 4° 7 m/s 7° 8 m/s 4° 7 m/s 4° 9 m/s 2° 5 m/s 2° 8 m/s -1° 12 m/s 5° 2° 4° 3° 2° VINNUMARKAÐUR Fimmti hver starfandi Íslendingur er með mikla vinnufíkn samkvæmt nýrri rannsókn Capacent. Í rannsókn- inni voru vinnufíkn, kulnun og helgun í starfi mæld á íslenskum vinnumarkaði. Hildur Jóna Bergþórsdóttir, vinnusálfræðingur og ráðgjafi hjá Capacent, segir niðurstöðurn- ar styðja við þær kenningar sem hafa verið gerðar um vinnufíkn og sýni fram á sterk tengsl á milli vinnufíknar og kulnunar í starfi. „Sumir halda því fram að vinnufíkn sé góð því það þýði að starfsmaðurinn sé duglegur, taki að sér fleiri verkefni og sé með fullkomnunaráráttu. Kenningar um vinnufíkn hafa ýtt undir þessa skoðun. En með okkar niðurstöð- um sýnum við fram á að vinnu- fíkn er ekki góð og það á ekki að ýta undir það hjá starfsfólki að vera öllum stundum í vinnunni,“ segir Hildur. Hún segir einkenni vinnufíkla vera að þeir noti vinnuna sem afsökun til að þurfa ekki að sinna einkalífi sínu og flýja þannig fjölskyldu og vini. Þeir eru með áráttu til að vinna sífellt meira, hafa mörg járn í eldinum og skapa sér álag í starfinu. Þeir fá kvíða ef þeir eru ekki í vinnunni, vinna oft lengur en aðrir og þurfa sífellt staðfestingu á eigin virði. „En þeir eru ekkert endilega betri starfsmenn. Samkvæmt niðurstöðum okkar fá vinnufíkl- ar sjaldnar hrós eða viðurkenn- ingu í starfi sínu. Helgun í starfi einkennir góða starfsmenn. Þeir eru með háa framleiðni og standa sig vel án þess að vera sífellt í vinnunni. Vinnufíklar falla ekki endilega undir þann hóp.“ Hildur segir mikilvægt fyrir helgun í starfi og að ná fram því besta í starfsmanni sé að tryggja að starfsmaður haldi jafnvægi á milli einkalífs og starfsins. „Því kemur fylgni á milli vinnufíknar og kulnunar í starfi ekki á óvart. Þegar fólk kulnar eða brennur út í starfi þá verður það bjargarlaust. Það veit ekki á hvaða verkefnum það á að byrja og veit ekki til hvers er ætlast af þeim.“ Hildur mun kynna niðurstöður rannsóknarinnar á ráðstefnu um vinnufíkn á miðvikudag. Rann- sóknin var byggð á mælitæki á vinnufíkn sem einn fremsti sér- fræðingur í Evrópu á þessu sviði, Hollendingurinn Wilmar Schau- feli, bjó til. Hann er heiðursgestur ráðstefnunnar og mun þar fjalla um rannsóknir sínar. erlabjorg@frettabladid.is Vinnufíkn leiðir til kulnunar í starfinu Mýtan um að starfsmaður með vinnufíkn sé góður starfsmaður var felld í nýrri rannsókn sem Capacent gerði á íslenskum vinnumarkaði. Starfsmenn sem eru með hæstu framleiðnina eru þeir sem halda jafnvægi á milli einkalífs og starfsins. Það á ekki að ýta undir það hjá starfsfólki að vera öllum stundum í vinnunni. Hildur Jóna Bergþórsdóttir, vinnusálfræð- ingur og ráðgjafi hjá Capacent VINNUFÍKN Fimmti hver Íslendingur glímir við vinnufíkn, að því er fram kemur í nýrri rannsókn. Mikil fylgni er milli vinnufíknar og kulnunar í starfi. NORDICPHOTOS/GETTY SJÁVARÚTVEGUR Boðað hefur verið til nýs fundar í makríldeilu Íslend- inga, Færeyinga, Norðmanna og Evrópusambandsins á morgun. Þetta kemur fram í kvöldfréttum RÚV í gær. Síðustu fundalotu lauk fyrir helgi án samkomulags. Sigurgeir Þorgeirsson, formaður íslensku samninganefndarinnar, segir fundi geta staðið fram að helgi. Fundurinn fer fram í Lundúnum og hafa Færeyingar þegar boðað komu sína. - bá Hittast í London á morgun: Enn er fundað um makrílinn PÓLITÍK Margrét Björnsdóttir, forseti bæjarstjórnar í Kópavogi, segist ekki kannast við að Sjálfstæðisflokkurinn þar í bæ sé klofinn. Hún undrast jafn- framt ummæli Margrétar Friðriksdóttur sem sækist eftir því að leiða lista flokksins í komandi bæjarstjórnarkosningum. Þetta kom fram í kvöldfrétt- um Stöðvar 2 í gær. Aðalsteinn Jónsson, bæjarfulltrúi flokksins, sagði í fréttum Bylgjunnar á laugardag að menn hlytu „hnífsstungur í bakið“ við starf í flokknum og Margrét Friðriksdóttir lýsti á sama tíma yfir áhyggjum af stöðu flokksins. „Að það séu einhver hyldýpi og hnífakast og agaleysi, eins og hefur komið fram, það bara kannast ég alls ekki við,“ segir Margrét Björnsdóttir. Samkvæmt heimildum fréttastofu ríkir mikill ágreiningur milli stuðn- ingsmanna Ármanns Kr. Ólafssonar bæjarstjóra og Gunnars I. Birgissonar bæjarfulltrúa, en Gunnar hefur verið sakaður um að reyna að kljúfa Sjálf- stæðisflokkinn með því að styðja tillögur minnihlutans í bæjarstjórn. - jjk, bá Forseti bæjarstjórnar segir Sjálfstæðisflokkinn í Kópavogi ekki klofinn: Kannast ekki við neitt hnífakast ÁGREININGUR Mikil spenna ríkir fyrir bæjarstjórnarkosningum í Kópavogi í vor. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA LÖGREGLUMÁL Viðskiptavinur Arion banka hótaði starfsmanni í útibúi bankans í Kringlunni líkamlegu ofbeldi í gær. Hótunin barst símleiðis og var lögregla kölluð út vegna málsins. „Við lítum svona mál mjög alvarlegum augum,“ segir Haraldur Guðni Eiðsson, upplýsingafulltrúi Arion banka. Þó að maðurinn hafi ekki verið á staðnum gera öryggisreglur bankans ráð fyrir að lögregla sé kölluð til ef slík hótun berst. Haraldur segir að ekki sé búið að taka ákvörðun um eftirmála. -js Taka hótanir mjög alvarlega: Hótaði starfs- manni ofbeldi AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundur@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is SVONA ERUM VIÐ er ódýrara! 15% AFSLÁTT UR Gildir fyrir allar pakkningastærðir og styrkleika af Nicotinell Fruit MENNING „Það væri ótrúlega mikill munur að geta farið í bíó í sínum heimabæ,“ segir í hugmynd um notkun Bæjarbíós sem send var inn á vefinn Betri Hafnarfjörður og tekin fyrir hjá menningar- og ferðamálanefnd. Tillöguhöfundur nefnir sérstaklega þrjúsýningar á sunnudögum fyrir börn. „Samstarf við Bíó Paradís væri áhugaverður kostur. Bjóða upp á þann möguleika að leigja salinn fyrir bíósýningar fyrir barnaaf- mæli og svo mætti áfram telja.“ Menningarnefndin segist nú vinna að því að gera Bæjarbíó að lifandi menningarmiðstöð. - gar Tillaga að betri Hafnarfirði: Vill fara í bíó í heimabænum BÆJARBÍÓ Hafnfirðingur einn vill að sýningar verði hafnar í Bæjarbíói. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.