Fréttablaðið - 04.02.2014, Blaðsíða 34
4. febrúar 2014 ÞRIÐJUDAGUR| SPORT | 26SPORT
KÖRFUBOLTI Í síðustu viku var
greint frá því að Körfuknattleiks-
samband Íslands hefði sagt fram-
kvæmdastjóranum Friðriki Inga
Rúnarssyni upp störfum. Ástæð-
an væri hagræðing í rekstri sam-
bandsins en formaðurinn, Hannes
S. Jónsson, segir að ákvörðunin
hafi verið afar erfið, en nauðsyn-
leg.
„Hér er gerð sú eðlilega krafa að
við höldum úti öflugu afreksstarfi
en raunin er sú að það verður
bara dýrara og dýrara með hverju
árinu. Það sama má segja um
unglingalandsliðin okkar,“ segir
Hannes í samtali við Fréttablaðið.
KKÍ er á góðri leið með að ganga
frá styrktarsamningum við nokk-
ur fyrirtæki sem ætti að skila
sambandinu meiri tekjum og fagn-
ar Hannes því. Hann bætir við að
rekstur sambandsins hafi verið „í
lagi“ í fyrra en meira komi til.
„KKÍ skuldar í dag um átján
milljónir króna og við þurfum að
vinna áfram að því að grynnka á
þeim. Við viljum svo halda áfram
að sinna okkar afreksstarfi og
bæta í það. Þá urðum við að grípa
til hagræðingar og niðurstaðan
var að gera það á skrifstofunni.“
Hannes segir að stjórnarmenn
KKÍ muni taka á sig aukna ábyrgð
og fleiri verkefni til að fylla í
skarðið sem Friðrik Ingi skilur
eftir sig. „Staðan verður svo skoð-
uð aftur í haust fyrir næsta rekstr-
arár,“ bætir Hannes við.
Nóg framboð af verkefnum
Körfuboltahreyfingin hefur dafn-
að ágætlega á Íslandi undanfar-
in ár og sífellt fleiri bætast í hóp
ungra og efnilegra leikmann.
Hannes segir að það sé enginn
skortur á verkefnum fyrir yngri
landslið Íslands en að það sé hins
vegar ekki hægt að taka þátt í
þeim öllum.
„Ástæðan er einföld. Við vilj-
um ekki senda enn fleiri reikn-
inga inn á heimili til foreldranna,“
segir Hannes en það hefur lengi
tíðkast að fjölskyldur leikmanna
yngri landsliðanna taka þátt í
þeim kostnaði sem fylgir æfinga-
og keppnisferðalögum að stórum
hluta.
Miðað við ársveltu KKÍ kemur
rúmlega helmingur inn frá
atvinnulífinu með styrktarsamn-
ingum við fyrirtæki. Sambandið
fær tekjur frá Íslenskri getspá
og af því að rukka félög um móts-
og félagaskiptagjöld. Þá fær sam-
bandið styrki frá ríkinu sem er
úthlutað í gegnum ÍSÍ, aðallega í
gegnum afrekssjóð og með svoköll-
uðum sérsambandsstyrk.
Hannes segir að alls nemi inn-
koma KKÍ frá ríkinu tæpum tíu
milljónum króna. Það sé litlu
minna en áætlað er að fjölskyldur
leikmanna yngri landsliða greiða
á þessu ári.
„Í öllum hinum vestræna heimi
og sérstaklega í þeim löndum sem
eru í kringum okkur kemur ríkið
að íþróttastarfinu með mun sterk-
ari hætti en raunin er á Íslandi,“
segir Hannes og bendir á að þær
hækkanir sem síðustu tvær rík-
isstjórnir hafi komið með dugi
skammt.
Þurfum 3-400 milljónir
„Það þarf meira til en að auka
framlagið um nokkrar milljónir
með nokkurra ára millibili. Það er
fljótt að fara þegar því er dreift á
næstum 30 sérsambönd innan ÍSÍ.
Ef vel á að vera þá þarf framlag
ríkisins í afreksíþróttir hér á landi
að nema 3-400 milljónum króna.
Ég veit að þetta er há upphæð en
þetta er engu að síður raunin,“
segir Hannes.
Á dögunum var úthlutað úr
afrekssjóði ÍSÍ fyrir árið 2014 og
námu styrkveitingar til sérsam-
banda tæpum 92 milljónum króna.
Framlag ríkisins í sjóðinn var 70
milljónir og hækkaði um fimmtán
milljónir á milli ára.
Þess má geta að kostnaðaráætl-
anir þeirra sérsambanda sem sóttu
um styrk úr sjóðnum námu rúm-
lega 891 milljón króna.
Hannes segir að framlag ríkis-
ins í afreksíþróttir skili sér aftur
í samfélagið með margvísleg-
um hætti. „Stjórnmálamennirnir
þurfa einfaldlega að taka af skarið
og gera þetta almennilega því allt
kostar þetta mikinn pening ef vel
á að vera,“ segir Hannes.
eirikur@frettabladid.is
Foreldrar borga meira en ríkið
Formaður KKÍ segir að miklu meira fj ármagn þurfi frá ríkisvaldinu til að reka almennilegt afreks- og upp-
byggingarstarf í íþróttinni hér á landi. „Stjórnmálamenn þurfa að þora að taka af skarið,“ segir hann.
BJÖRT FRAMTÍÐ Mikill uppgangur hefur verið í körfuboltanum hér á landi hjá bæði strákum og stúlkum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
visir.is
Allt um leiki
gærkvöldsins
ENSKI BOLTINN
MANCHESTER CITY - CHELSEA 0-1
0-1 Branislav Ivanovic (32.)
STAÐA EFSTU LIÐA
Arsenal 24 17 4 3 47:21 55
Man.City 24 17 2 5 68:27 53
Chelsea 24 16 5 3 44:20 53
Liverpool 24 14 5 5 58:29 47
Everton 24 12 9 3 37:25 45
Tottenham 24 13 5 6 31:32 44
Man.Utd. 24 12 4 8 39:29 40
KÖRFUBOLTI „Þetta er bara eins og
maður bjóst við,“ segir Teitur Örlygs-
son, þjálfari karlaliðs Stjörnunnar.
Bandaríkjamaðurinn Matthew James
Hairston var í gær úrskurðaður í
tveggja leikja bann fyrir olnboga-
skot í leik gegn Skallagrími fyrir
tíu dögum. Hairston fékk aðeins
óíþróttamannslega villu í leiknum
en dómari leiksins viðurkenndi fyrir
aganefnd að hefði hann haft annað
sjónarhorn hefði brottrekstrarvilla
orðið niðurstaðan.
„Ég hefði rekið hann út af þótt
ég hefði séð þetta frá bílastæðinu.
Þetta verðskuldaði það mikið leik-
bann,“ segir Teitur. Hann setur þó
spurningarmerki við störf aganefndar
sem virðist að einhverju leyti taka
ákvarðanir sínar út frá geðþótta.
Athygli vakti á dögunum þegar
Ragna Margrét Brynjarsdóttir, leik-
maður Vals, gaf leikmanni Snæfells
olnbogaskot. Ragna var ekki rekin
af velli og kærði Snæfell atvikið til
aganefndar. Um keimlík mál var að
ræða en Ragna Margrét slapp með
skrekkinn.
Teitur ítrekar að bann Hairston
hafi verið verðskuldað. „Viljum við
ekki allir að rétt sé bara rétt?“ segir
þjálfarinn. Hairston missir af næstu
tveimur leikjum Stjörnunnar gegn
Haukum og Grindavík. - ktd
Vilja ekki allir að rétt sé rétt?
FRÁKAST Hairston er fjölhæfur leik-
maður sem hefur reynst Stjörnunni vel.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
ÓL2014 María Guðmundsdóttir
meiddist illa á hné í stórsvigskeppni
í Þýskalandi í gær. Hún missir af
Vetrarólympíuleikunum í Sotsjí af
þeim sökum.
María hefur dvalið í Austurríki og
Þýskalandi við æfingar og keppni
undanfarnar vikur. Í gærmorgun
keppti hún í stórsvigi í Jenner í
Þýskalandi en féll illa í fyrri umferð-
inni. Óttast er að María hafi skaddað
liðbönd í hægra hné en skíðakonan
gekkst undir frumrannsókn hjá
læknum í Þýskalandi í dag.
María er á leið til Noregs þar sem
hún býr ásamt fjölskyldu sinni í
bænum Kongsberg í nágrenni Óslóar.
Þar mun hún gangast undir frekari
rannsóknir.
Ólympíufarar
Íslands verða því
fjórir en ekki
fimm í Rússlandi.
Alpafólkið Einar
Kristinn Kristgeirs-
son, Helga María
Vilhjálmsdóttir,
Brynjar Jökull
Guðmundsson
og skíðagöngu-
kappinn Sævar
Birgisson. -ktd
María meidd og draumurinn úti
HETJAN Branislav Ivanovic fagnar eina
marki gærkvöldsins ásamt landa sínum
Nemanja Matic. NORDICPHOTOS/AFP
BIKARKEPPNI
KARLA Í KÖRFU
GRINDAVÍK - ÞÓR Þ. 93-84 (59-50)
Grindavík: Sigurður Þorsteinsson 26/11 fráköst,
Earnest Clinch Jr. 23/13 stoðs., Ómar Örn Sævars-
son 19/16 fráköst/3 varin skot, Ólafur Ólafsson 11,
Jóhann Árni Ólafsson 8/10 fráköst/6 stoðs.
Þór Þ.:Mike Cook Jr. 31/5 fráköst, Ragnar Ágúst
Nathanaelsson 19/8 fráköst, Baldur Þór Ragnars-
son 11/5 fráköst, Tómas Heiðar Tómasson 10/6
fráköst,
TINDASTÓLL - ÍR 79-87 (41-35)
Tindastóll: Antoine Proctor 27/8 fráköst, Helgi
Freyr Margeirsson 18, Pétur Rúnar Birgisson 11/8
fráköst, Ingvi Rafn Ingvarsson 8, Darrell Flake 8/7
fráköst, Helgi Rafn Viggósson 7/9 fráköst.
ÍR: Nigel Moore 18/14 fráköst, Matthías Orri
Sigurðarson 17/8 fráköst/5 stoðsendingar, Hjalti
Friðriksson 15/10 fráköst, Ragnar Örn Bragason
15, Sveinbjörn Claessen 11,
Úrslitaleikurinn fer fram í Laugardalshöll þann
22. febrúar.