Fréttablaðið - 04.02.2014, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 04.02.2014, Blaðsíða 28
4. febrúar 2014 ÞRIÐJUDAGUR| MENNING | 20 BÆKUR ★★★ ★★ Rökkurhæðir 5: Gjöfin Birgitta Elín Hassell og Marta Hlín Magnadóttir BÓKABEITAN Gjöfin er fimmta og nýjasta bókin í bókaflokknum um krakkana í Rökkurhæðum. Bækurnar eru sjálfstæðar sögur sem tengjast á þann hátt að sögu- sviðið er borgin Sunnuvík, nánar tiltekið íbúðahverfi sem kallast Rökkurhæð- ir. Þó bækurnar séu ekki framhaldssögur, þá tengjast þær á einn eða annan hátt og aðal- persónur úr einni bók geta birst sem auka- persónur í annarri og dýpkað skilning lesandans á þessu dularfulla hverfi þar sem skuggalegir atburðir eiga sér stað. Það er þó alls ekki nauðsynlegt að hafa lesið aðrar bækur í bókaflokknum til að hafa gaman af lestrinum. Gjöfin segir frá Þórhalli, myrkfælnum ung- lingspilti, sem ver mestum frítíma sínum í tölvunni. Hann býr einn í blokkaríbúð með mömmu sinni í Rökkurhæðum, en foreldrar hans skildu stuttu áður en sagan hefst. Nú er komið að fyrstu jólunum einn með mömmu og Þórhallur er hreint ekki spenntur. Hann gerir sér þó vonir um að foreldrar hans ausi yfir hann dýrum jólagjöfum til þess að bæta upp fyrir ömurleikann sem þau hafa kallað yfir hann. Það reyn- ist þó ekki raunin heldur fær hann alls konar ömurlegar jólagjafir frá þeim, að hans mati. Gjöfin frá mömmu hans leynir þó verulega á sér, bæði á góðan hátt og slæman og sendir hann af stað í hremm- ingar sem reynast vera upp á líf og dauða. Aðalpersónan, Þórhallur, er vel sköpuð og trúverðug. Það sama má segja um aðrar persónur í bókinni þó það mæði minna á þeim. Stærst- an hluta bókarinnar er Þór- hallur einn síns liðs. Bókin er vönd- uð og vel skrif- uð. Sagan er hrollvekja, ekki síst vegna þess að sögupersónurnar eru saklausar dregn- ar inn í óhugnanlega atburðarás gegn þeirra vilja, en ekki af því þær voru að ögra örlögunum á nokkurn hátt. Þetta eru ósköp venjulegir íslensk- ir unglingar sem eiga sér einskis ills von. Hrollvekj- ur fela gjarnan í sér yfir- náttúruleg fyrirbæri eða óútskýr- anlega atburði og þessi saga ætti ekki að valda neinum vonbrigðum að því leyti. Fléttan er bæði frum- leg og spennandi. Hún er þó dálítið flókin á köflum, svo fullrar athygli er krafist af lesandanum og í sögu- lok hefur lesandinn ekki fengið svar við öllum spurningum sínum svo hugsanlegt er að það verði gæsahúð á hnakkanum þegar hann lokar loks bókinni. Og kannski væri ekki óvitlaust að hafa kveikt á næt- urljósinu, bara þessa einu nótt. Halla Þórlaug Óskarsdóttir NIÐURSTAÐA: Vel skrifuð unglinga- hrollvekja sem heldur lesandanum vel við efnið. Hrollvekja úr hvers- dagslífi unglings TÓNLIST ★★★ ★★ GUÐNÝ GUÐMUNDSDÓTTIR FIÐLULEIK- ARI LÉK VERK EFTIR ÍSLENSK OG ERLEND TÓNSKÁLD. MEÐ HENNI LÉK RICHARD SIMM Á PÍANÓ OG JÚLÍA MOGENSEN Á SELLÓ. LAUGARDAGUR 1. FEBRÚAR Í NORÐURLJÓSUM HÖRPU Á MYRKUM MÚSÍKDÖGUM. Í tónleikaskránni á Myrkum músík- dögum þar sem Guðný Guðmunds- dóttir fiðluleikari kom fram, stóð að heildartími tónleikanna yrði um 60 mínútur. Það stóðst ekki, dagskráin var um 90 mínútna löng. Kannski spilaði Guðný hægar en hún ætlaði sér – ég veit það ekki. Ég veit hins vegar að sumar tón- smíðarnar á efnisskránni hefðu ekki þurft að vera þarna. In Vultu solis (Í andliti sólarinnar) sem Karólína Eiríksdóttir samdi árið 1980, hefur ekki elst vel. Tónlist- in virkaði langdregin og tilgangs- laus. Hugsanlega hefði Guðný getað spilað með meiri tilfinningu, gætt túlkunina sæluvímu eins og titill- inn gaf mögulega vísbendingu um að ætti að gera. Sennilega hefði þó verið best að sleppa verkinu – það gerði ósköp lítið fyrir dagskrána. Teikn fyrir einleiksfiðlu sem Áskell Másson samdi um svipað leyti kom ekki heldur nægilega vel út. Maður ímyndar sér að tón- smíð sem heitir þessu nafni þurfi að einkennast af einhverju annar- legu. Teikn eru oftast fyrirboðar. En tónlistin nú hljómaði ekki eins og hún væri fyrirboði neins. Nema ferils Áskels sjálfs, sem hefur verið ævintýri líkastur síðan hann samdi þessa tónlist. Hann hefur vaxið gríðarlega sem tónskáld, eins og píanótríó nr. 2 (2011), sem hér var frumflutt, sýndi glögglega. Með Guðnýju þar var Richard Simm á píanó, en Júlía Mogensen á selló. Tónlistin var afar viðburðarík, full af lýrík og skáldskap, skemmtileg- um andstæðum og athyglisverðri framvindu. Hún var líka prýðilega flutt. Júlía spilaði af vandvirkni og raddfegurð, píanóleikur Richards var lungamjúkur og nákvæmur og Guðný sjálf lék á fiðluna af innlifun og þokka. Annað á tónleikunum heyrði ekki til jafn mikilla tíðinda. Kafli úr Station ary Front eftir Ken Steen var óttaleg langloka. Samkvæmt tónleikaskránni var hún hugleið- ing um veðrabrigði, en virtist ekki sérlega innblásin. Gamalt verk eftir Pál P. Pálsson, Expromptu, fyrir fiðlu og píanó, var hins vegar magnað. Það einkenndist af gríp- andi tónahendingum og hnyttnum takti. Guðný og Richard spiluðu verkið af leiftrandi fagmennsku, einlægni og tilfinningu, en samt aga og nákvæmni. Svipaða sögu er að segja um són- ötu nr. 2 eftir Bartók. Þar var allt á sínum stað. Fiðluleikarinn sýndi á sér sínar bestu hliðar sem maður hefur margoft upplifað á tónleik- um í gegnum tíðina. Þar á meðal er heiðarleiki. Guðný er fyrst og fremst músíkant sem kafar ofan í það sem hún fæst við hverju sinni. Hún miðlar tónlistinni af heillandi fölskvaleysi, án þess að egóið þvæl- ist fyrir. Richard var líka flottur við flygilinn, spilaði af öryggi og glæsileika. Útkoman var spennu- þrungin, nánast eins og í góðum reyfara. Þetta var Bartók einmitt eins og hann á að hljóma. Jónas Sen NIÐURSTAÐA: Guðný Guðmundsdóttir fiðluleikari, ásamt meðleikurum, spilaði af kostgæfni, en dagskráin var misjöfn. Heiðarlegur fiðluleikari GUÐNÝ GUÐMUNDSDÓTTIR fiðluleikari MENNING „Vanabindandi akstursánægja“ Ford Focus. 5 dyra frá 3.490.000 kr. Prófaðu vinsælasta bíl í heimi búinn sparneytinni EcoBoost vél sem hefur hlotið titilinn vél ársins, tvö ár í röð. Öflug 125 hestafla vélin skapar einstaka sparneytni 5,0 l/100 km og lágt CO2 114 g/km. Brimborg fagnar 50 árum í bílgreininni og af því tilefni fylgja ný Nokian vetrardekk að verðmæti 145.000 kr. öllum Ford Focus í febrúar. Nýttu tækifærið. Komdu og prófaðu Focus. Tryggðu þér eintak. ford.is Ford Focus 5 dyra/station, EcoBoost bensín 125 hö. 6 gíra beinskiptur. Eldsneytisnotkun í blönduðum akstri 5,0/5,1 l/100 km. CO2 losun 114/117 g/km. Brimborg Reykjavík Bíldshöfða 6 Sími 515 7000 Brimborg Akureyri Tryggvabraut 5 Sími 515 7050 Nýir og notaðir bílar: Söludeildir eru opnar alla virka daga kl. 9-17 og laugardaga kl. 12-16 Varahlutaverslun og verkstæðismóttaka er einnig opin laugardaga kl. 12-16 Viltu vita meira um Ford Focus? Ford Focus hefur svo margt. Hann er búinn 16“ álfelgum og meðal staðalbúnaðar er Ford SYNC raddstýrt samskiptakerfi með Bluetooth búnaði fyrir GSM síma og neyðarhringingu. Tölvustýrð miðstöð viðheldur því hitastigi sem þú velur og með aksturstölvunni fylgist þú með með lágri eyðslunni. 3,5 tommu upplýsingaskjár er í mælaborði og sérstakt hitaelement er í miðstöð. Hann er því mjög fljótur að hitna á köldum vetrarmorgnum. CO2 gildin eru óvenju lág fyrir bensínvél og hann fær frítt í stæði í miðborg Reykjavíkur. Start stop spartæknin er í öllum beinskiptum Ford Focus. Komdu í reynsluakstur. Við tökum vel á móti þér. Tökum allar tegundir bíla upp í nýja. Brimborg og Ford áskilja sér rétt til að breyta verði og búnaði án fyrirvara. Útbúnaður getur verið frábrugðinn mynd í auglýsingu. Station frá 3.640.000 kr.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.