Fréttablaðið - 04.02.2014, Blaðsíða 10
4. febrúar 2014 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 10
SKIPULAGSMÁL Hugmynd um
nýtt kaffihús við Elliðaár neðan
Stekkjarbakka var hafnað hjá
skipulagsfulltrúa að svo stöddu
þar sem ekki er gert ráð fyrir slík-
um rekstri í deiliskipulagi Elliða-
árdals og heildarendurskoðun
skipulagsins stendur fyrir dyrum.
Einstaklingar sem vildu fá að
reisa kaffihús með útiverönd kváð-
ust telja vanta veitingastað í dal-
inn og „að hann myndi jafnvel ýta
undir meiri aðsókn að Elliðaár-
dalnum“, eins og segir í umsögn
skipulagsfulltrúans. Reksturinn
ætti að stórum hluta að byggja á
gangandi umferð.
Á lóðinni sem umsækjendurn-
ir höfðu í huga stendur nú gam-
alt, ónotað verkstæði. Skipulags-
fulltrúi segir engan byggingarreit
á lóðinni og að húsið hafi verið
byggt fyrir tíma deiliskipulags-
ins. „Samkvæmt gildandi skipu-
lagi er ekki gert ráð fyrir húsnæði
í dalnum sem gæti nýst sem kaffi-
hús, en í stefnu aðalskipulags um
borgargarða þá má gera ráð fyrir
veitingaaðstöðu á slíkum svæðum,“
segir skipulagsfulltrúi sem kveð-
ur fleiri staði fyrir veitingastaði
í Elliðaárdalnum hafa komið til
umræðu í gegnum árin.
„Hefur þarfagreining ekki átt
sér stað hvort slík starfsemi sé
æskileg fyrir dalinn, né hver er
besta staðsetningin,“ segir skipu-
lagsfulltrúi sem vísar hugmynd-
inni inn í fyrirhugaða vinnu við
heildarendurskoðun deiliskipu-
lags Elliðaárdalsins sem vonast
sé til að hefjist á þessu ári. - gar
Ráðast í heildarendurskoðun skipulags í Elliðaárdal:
Kaffihúsi við Elliðaár
hafnað að svo stöddu
KAFFIHÚSIÐ Allt að 80 gestir áttu að geta komist fyrir úti og inni í kaffihúsi sem
átti að reisa rétt hjá Árbæjarstíflu. Hér að ofan má sjá tölvumynd af hinu fyrirhug-
aða húsi. MYND/PLÚS-ARKITEKTAR
TILBOÐSDAGAR
Lagerheinsun
HÖNNUN FYRIR LÍFIÐ
MENNING „Á Hörmungardögum
ætlum við að njóta þess að vera
eins og við erum og leyfa okkur
að leggja grímurnar okkar til
hliðar örskamma stund, enda
engin ástæða til að þykjast vera
endalaust í stuði og vera ávallt
upp á sitt besta, allra síst á milli
þorra og góu,“ segir um svokall-
aða Hörmungardaga sem brátt
verða haldnir á Hólmavík.
„Dagskráin býður okkur upp
á að kynnast nánar hörmungar-
ástandi víða um heim sem og að
minnast hörmulegra aðstæðna í
okkar eigin sögu,“ segir áfram.
Meðal annars verði morðgáta
sviðsett í nágrenni Hólmavík-
ur og hægt verður að „bragða á
vondu kaffi í misgóðum félags-
skap“.
- gar
Hörmung á Hólmavík:
Morð sviðsett í
Strandabyggð
KJARAMÁL „Fundur kennara í Menntaskólanum
í Reykjavík haldinn 3. febrúar 2014 harmar þá
stöðu sem upp er komin í kjaramálum fram-
haldsskólakennara. Fundurinn lýsir yfir fullum
stuðningi við forystu FF og hvetur til aðgerða
til að knýja fram úrbætur. Við núverandi stöðu
verður ekki unað lengur.“
Þessi samþykkt kennaranna í Menntaskólan-
um í Reykjavík var samhljóma ályktunum sem
fjöldi annarra kennarafélaga sendi frá sér að
loknum samstöðufundum um kjaramál í skólun-
um í gær. Kennarar lýsa yfir vonbrigðum með
viðbrögð samninganefndar ríkisins og skiln-
ingsleysi stjórnvalda á stöðu kennara. Bent er
á að slök starfskjör ógni nýliðun og grafi undan
gæðum skólastarfs.
„Þetta var enginn æsingafundur. Við höld-
um ró okkar en erum í startholunum ef með
þarf,“ sagði Kolbrún Elfa Sigurðardóttir,
kennari í Menntaskólanum í Reykjavík, að
loknum samstöðufundi kennara þar.
Framhaldsskólakennarar benda á að nær
sautján prósenta munur sé á dagvinnulaun-
um þeirra og viðmiðunarhópa hjá ríkinu og
vilja leiðréttingu. Ríkið hefur hafnað kröfu-
gerð framhaldsskólakennara og hefur boðið
þeim 2,8 prósenta launahækkun. Samningar
framhaldsskólakennara runnu út um mánaða-
mótin og var kjaradeilu þeirra við ríkið vísað
til ríkissáttasemjara í síðustu viku.
Kolbrún Elfa segir að framhaldsskólakenn-
arar reyni auðvitað að semja. „Það er enginn
áfjáður í að fara í verkfall en það kemur fljót-
lega í ljós hvort samningahljóð er í ríkinu.“
Samband íslenskra framhaldsskólanema
hefur hvatt nemendur til að standa með
kennurum og berjast fyrir leiðréttingu launa
þeirra. „Við þurfum að standa með framhalds-
skólakennurum. Kennarastarfið er gríðarlega
vanmetið miðað við þá miklu ábyrgð sem það
felur í sér,“ segir Laufey María Jóhannsdótt-
ir, formaður sambandsins. Hún bætir því við
að nemar hafi boðað til baráttufundar fyrir
utan Alþingishúsið kl. 15 á fimmtudaginn.
ibs@frettabladid.is
Í startholunum ef með þarf
Á samstöðufundum framhaldsskólakennara í gær var lýst yfir stuðningi við samninganefnd og hvatt til að-
gerða til að knýja fram úrbætur. Nemendur hvetja til baráttu fyrir leiðréttingu kennaralauna og boða útifund.
SAMSTÖÐU-
FUNDUR Kenn-
arar í Mennta-
skólanum
í Reykjavík
funduðu um
kjaramál í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
HÓLMAVÍK Ástæðulaust að vera alltaf í
stuði. FRÉTTABLAÐIÐ/GARÐAR
Kennarastarfið er
gríðarlega vanmetið miðað
við þá miklu ábyrgð sem
það felur í sér.
Laufey María Jóhannsdóttir,
formaður Sambands íslenskra
framhaldsskólanema.