Fréttablaðið - 04.02.2014, Blaðsíða 30
4. febrúar 2014 ÞRIÐJUDAGUR| MENNING | 22
Hollywood hefur logað eftir að
Dylan Farrow, dóttir bandaríska
kvikmyndaleikstjórans Woody
Allen, birti opinskátt bréf á blogg-
vef New York Times um helgina. Í
bréfinu segir hún að faðir hennar
hafi misnotað hana frá því hún muni
eftir sér og þar til hún varð sjö ára.
Hún segir alvarlegasta atvikið
hafa átt sér stað á heimili móður
sinnar þegar hún var sjö ára.
„Woody Allen leiddi mig upp á háa-
loft í húsinu okkar. Hann sagði mér
að leggjast á magann og leika mér
með leikfangalest bróður míns.
Síðan misnotaði hann mig.“
Bréfið hefur farið eins og eldur
í sinu um alheimsvefinn en málið
kom fyrst upp árið 1992 þegar
Woody og leikkonan Mia Farrow
skildu eftir að hún fann nektar-
myndir sem hann hafði tekið af
Soon-Yi Previn, tvítugri kjördóttur
Miu. Woody var ekki ákærður og
málinu vísað frá.
„Ég var látin rifja upp atvikið
trekk í trekk fyrir framan marga
mismunandi lækna til þess að
sannreyna að ég væri ekki að ljúga.
Ásakanir á hendur valdamiklum
mönnum um kynferðisofbeldi eiga
það frekar til að sigla í strand. Sér-
fræðingar voru reiðubúnir að ráð-
ast á trúverðugleika minn. Og það
voru læknar reiðubúnir að afvega-
leiða barn sem hafði verið misnot-
að,“ skrifar Dylan en misnotkunin
hafði djúpstæð áhrif á hana.
„Ég var haldin sektarkennd yfir
því að hafa leyft honum að vera
nálægt öðrum litlum stúlkum. Ég
var dauðhrædd við snertingu karl-
manna. Ég þróaði með mér átrösk-
un og fór að skera sjálfa mig. Þessi
þjáning var gerð enn verri af Holly-
wood. Allir nema örfáir skelltu
skollaeyrum við ásökununum.
Flestum fannst auðveldara að láta
sem ekkert hefði gerst. Að segja að
enginn vissi í raun hvað hefði átt sér
stað. Leikarar hylltu hann á verð-
launahátíðum og hann var í sjón-
varpi og tímaritum. Í hvert sinn
sem ég sá andlit kvalara míns – á
veggspjaldi, stuttermabol eða í sjón-
varpinu – þurfti ég að fela ótta minn
þar til ég gat farið í felur þar sem ég
brotnaði saman.“
- lkg
„Síðan misnot-
aði hann mig“
Dylan Farrow, dóttir kvikmyndaleikstjórans Woody
Allen, sakar hann um misnotkun í opinskáu bréfi .
1980 Woody Allen byrjar með leikkonunni Miu Farrow.
Þau giftust aldrei og bjuggu hvort
í sínu lagi. Þau eiga
saman soninn Satchel
Farrow og ætt-
leiddu saman tvö
börn, Dylan og
Moshe Farrow.
1992 Woody og Mia skilja eftir að hún finnur
nektarmyndir sem hann hafði tekið
af Soon-Yi Previn, tvítugri kjördóttur
sinni. Þau hófu samband og eru enn
saman í dag. Við tóku langdregnar
lagadeilur um forræði yfir börnunum
þremur sem leikstjórinn og Mia áttu
saman.
1993 Saksóknari í Connecticut rannsakar meinta mis-
notkun Woody á Dylan. Leikstjórinn var
ekki kærður og sagði ríkissaksóknarinn
Frank S. Maco að hann tryði því að
Woody hefði misnotað Dylan en vildi
ekki kæra hann til að vernda ungu
stúlkuna. Þessi ákvörðun Franks var
umdeild en hann stendur enn við hana.
1997
Woody og Soon-
Yi giftast. Þau
eiga saman
tvær ættleiddar
dætur, Bechet
Dumaine og
Manzie Tio.
2014
Dylan Farrow
segist hafa
verið mis-
notuð
kynferðislega í æsku
af leikstjóranum í opinskáu bréfi sem
birt er á bloggvef New York Times.
MEINT MISNOTKUN WOODY ALLEN KOM FYRST UPP Á YFIRBORÐIÐ ÁRIÐ 1992
Mikill þrýstingur hefur verið á leikara og leikkonur
sem unnið hafa með Woody að tjá sig um málið
sérstaklega þar sem Dylan fer fram á svör frá
fólki á borð við Cate Blanchett, Alec Baldwin
og Diane Keaton í bréfinu. Alec vill ekki
blanda sér í þetta fjölskyldumál en Cate
tjáði sig um málið á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Santa
Barbara á laugardagskvöldið. Hún er talin líkleg til að hreppa
Óskarinn fyrir leik sinn í Blue Jasmine, nýjustu mynd Woody.
„Þetta hefur augljóslega verið langt og sársaukafullt
ferli fyrir fjölskylduna, ég vona að hún leysi úr þessu og
finni frið.“
➜ Vonar að fjölskyldan leysi úr þessu og finni frið
Í hvert sinn sem ég sá
andlit kvalara míns– á
veggspjaldi, stuttermabol
eða í sjónvarpinu– þurfti
ég að fela ótta minn þar til
ég gat farið í felur þar sem
ég brotnaði saman.
Dylan Farrow
FJÖLSKYLDUHARMUR
Woody og Mia með börnin
árið 1986. Frá vinstri eru
Moshe, Dylan í fangi Miu,
Satchel og Soon-Yi.
Mannréttindi hversdagsins
föstudaginn 7. febrúar kl. 13.00 – 17.00 á Grand Hóteli
Málþingsstjóri: Bergur Þorri Benjamínsson, málefnafulltrúi Sjálfsbjargar landssambands fatlaðra.
Allir velkomnir, ekkert þátttökugjald. Síðasti skráningardagur er 6. febrúar.
Skráning, upplýsingar um túlkun og fleira á vef Öryrkjabandalags Íslands www.obi.is
MÁLÞING
Sveitarfélög og fatlaðir íbúar
Setning: Ellen Calmon, formaður Öryrkjabandalags Íslands
Ávarp: Eygló Harðardóttir félags- og húsnæðismálaráðherra
Aðferðafræði, þátttakendur og framkvæmd rannsóknarinnar
Guðbjörg Andrea Jónsdóttir, forstöðumaður Félagsvísindastofnunar
Reynsla fatlaðs fólks og öryrkja sem íbúa sveitarfélaga
Rannveig Traustadóttir, forstöðumaður Rannsóknaseturs í fötlunarfræðum
Reynslusögur íbúa
Arnar Helgi Lárusson, íbúi í Reykjanesbæ og Kári Auðar Svansson, íbúi í Reykjavík
Fyrirspurnir og umræður
Kaffihlé
Reynsla sveitarstjórnarfólks og starfsmanna sveitarfélaga
Hrafnhildur Snæfríðar- og Gunnarsdóttir, verkefnastjóri
Reynsla starfsfólks sveitarfélaga
Soffía Lárusdóttir, framkvæmdastjóri búsetudeildar Akureyrarbæjar
Fyrirspurnir og umræður
Viðhorf almennings til fatlaðs fólks, öryrkja og velferðarþjónustu sveitarfélaga
Guðbjörg Andrea Jónsdóttir, forstöðumaður Félagsvísindastofnunar
Fyrirspurnir og umræður
13.00
13.05
13.15
13.25
14.15
14.35
14.50
15.20
16.00
16.15
16.30
16.45
Kynntar verða niðurstöður nýrrar rannsóknar.
Dagskrá:
Rekstrarvörur
- vinna með þér