Fréttablaðið - 04.02.2014, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 04.02.2014, Blaðsíða 14
4. febrúar 2014 ÞRIÐJUDAGURSKOÐUN HALLDÓR FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRI: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Álfrún Pálsdóttir alfrun@frettabladid.is VIÐSKIPTI: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is MENNING: Friðrika Benónýsdóttir fridrikab@frettabladid.is DÆGURMÁL: Lilja Katrín Gunnarsdóttir liljakatrin@frettabladid.is VÍSIR: Kristján Hjálmarsson, kristjan@visir.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRAR: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is, Mikael Torfason mikael@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÁ DEGI TIL DAGS Ár hvert 4. febrúar er alþjóðadagur krabba- meins, og þann dag eru tekin fyrir tiltek- in viðfangsefni á þessu sviði og þeim gerð skil með mismunandi hætti í fjölmörgum löndum. Í ár er lögð áhersla á að vinna gegn ýmsum bábiljum og vanþekkingu, en það að auka þekkingu er sannreynd leið til að ná betri árangri í forvörnum og meðferð krabbameins. Krabbameinsfélag Íslands vinnur að þekk- ingaröflun, þekkingarsköpun og þekkingar- miðlun. Eitt af markmiðum félagsins sam- kvæmt lögum þess frá upphafi er að efla krabbameinsrannsóknir, m.a. með söfnun og vísindalegri úrvinnslu upplýsinga og með rekstri vísindasjóðs. Undanfarin ár (eftir hrun) hafa ekki verið veittir styrkir úr tveimur sjóðum í umsjón félagsins, Krist- ínarsjóði og Ingibjargarsjóði, en Krabba- meinsfélagið hefur veitt rannsóknarstyrki t.a.m. með framlögum úr Mottumars. Jafn- framt hefur á hverju ári verið lagt fjármagn til rannsókna, m.a. á vegum Krabbameins- skrárinnar. Krabbameinsfélagið hefur á undanförnum árum lýst því yfir að hluti söfnunarfjár muni renna til rannsókna á krabbameini. Stuðning- ur almennings og fyrirtækja við verkefni félagsins hefur nú gert kleift að stofna öflug- an vísindasjóð, sem veiti styrki til íslenskra krabbameinsrannsókna sem munar um. Und- irbúningur er hafinn að stofnun sjóðsins. Nýtur félagið ráðgjafar margra sérfróðra einstaklinga við það verk, til að tryggja að lögformlega sé að verki staðið og að sjóðurinn verði eins skilvirkur og unnt er þegar hafist er handa við styrkveitingar. Stofnskrá verð- ur lögð fram á næstu mánuðum og styrkir auglýstir til umsóknar á grundvelli hennar. Leitað verður til fyrirtækja um stofnframlög til viðbótar við framlag félagsins. Það er stjórn Krabbameinsfélagsins mikið ánægjuefni að kynna þessa ákvörðun á alþjóðadegi krabbameins og færa jafnframt miklar þakkir öllum þeim, sem styrkt hafa félagið með margvíslegum hætti á undan- förnum árum. Sá stuðningur verður nú til að efla rannsóknir á sviði krabbameina hér á landi, en án velvildar almennings í land- inu og trausts gætu þessi áform ekki orðið að veruleika. Ný tækifæri til krabba- meinsrannsókna HEILBRIGÐIS- MÁL Jakob Jóhannsson yfi rlæknir geislameðferðar krabbameina á Landspítala og formaður stjórnar Krabbameinsfélags Íslands ➜ Stuðningur almennings og fyrir- tækja við verkefni félagsins hefur nú gert kleift að stofna öfl ugan vísindasjóð. Þ rír fjórðuhlutar íslenzkra kjósenda vilja fá að greiða atkvæði um framhald aðildarviðræðna við Evrópu- sambandið samhliða sveitarstjórnarkosningunum í vor, samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2 sem var gerð í síðustu viku. Yfirgnæfandi meirihluti stuðningsmanna allra flokka vill kosningu um málið í vor. Fyrst var sagt frá þessum niðurstöðum í þætti Mikaels Torfa- sonar, Minni skoðun, á Stöð 2 á sunnudag. Þar var líka rifjað upp loforðið sem Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, gaf kjósendum í þætti á Stöð 2 fyrir kosningar; að málið yrði útkljáð með atkvæðagreiðslu á fyrri hluta kjörtímabilsins. Bjarni var í þættinum minntur á þessi ummæli sín og spurður hvort halda ætti atkvæðagreiðsl- una í vor. Ástæða er til að staldra við tvennt í svörunum. Annars vegar sagði Bjarni: „Ég held að það verði ekki. Svona atkvæðagreiðsla þarf að eiga sér ákveðinn aðdraganda.“ Já, vissulega þarf aðdraganda. Samkvæmt lögum um fram- kvæmd þjóðaratkvæðagreiðslna þarf að boða slíka atkvæða- greiðslu með þriggja mánaða fyrirvara. Sömuleiðis er rétt að fyrir liggi skýrslan, sem ríkisstjórnin hefur látið gera um stöðu aðildarviðræðnanna og þróun mála í ESB. Samkvæmt samningi utanríkisráðuneytisins og Hagfræðistofn- unar Háskóla Íslands átti skýrslan að liggja fyrir 15. janúar. Hún hlýtur því að skila sér á allra næstu dögum. Varla verða í henni stórtíðindi, sem koma þingi og þjóð í opna skjöldu. Það er því vel framkvæmanlegt að Alþingi ræði skýrsluna og ákveði svo síðar í mánuðinum að halda þjóðaratkvæðagreiðslu, í góðan tíma fyrir sveitarstjórnarkosningarnar sem verða 31. maí. Hins vegar endurtók fjármálaráðherrann efnislega þau ummæli sín sem hann viðhafði á RÚV fyrir stuttu, spurður um kosningaloforðið, að bezt væri að klára breytingar á stjórnar- skránni þannig að tiltekið hlutfall kjósenda geti krafizt þjóðarat- kvæðagreiðslu. „Viljum við ekki bara komast frá þessari stöðu, að menn segi: Heyrðu, Bjarni, værir þú til í að leyfa okkur að kjósa um þetta eða hitt, hvort sem það er ESB eða Icesave eða hvað það á að heita, hvaða stóra mál? Við þurfum að komast á þann stað að klára þetta mál þannig að við færum réttinn til að kalla eftir þjóðaratkvæðagreiðslu til fólksins í landinu,“ sagði Bjarni. Það er líka rétt hjá honum. Við þurfum að komast á þann stað. En við erum ekki komin þangað og enginn veit hvenær breyting- um á stjórnarskránni verður lokið. Þess vegna hafði loforð hans fyrir kosningar efnislega þýðingu; ennþá er það svo að meirihluti Alþingis verður að ákveða að halda eigi þjóðaratkvæðagreiðslu af þessu tagi. Loforðið hljóðaði alls ekki upp á að beita sér fyrir breytingum á stjórnarskránni þannig að fólkið í landinu gæti á fyrri hluta kjörtímabilsins krafizt atkvæðagreiðslu! Ráðherrar ríkisstjórnarinnar hafa eftir kosningar reynt með ýmsum hætti að drepa því á dreif sem sagt var fyrir kosningar, að þjóðin fengi að ákveða framhald aðildarviðræðnanna. Þeir hafa lagt til að spurt yrði um eitthvað annað, sagt að það væri ómögu- legt að kjósa af því að ríkisstjórnin gæti orðið andsnúin niðurstöð- unni og að ESB hafi í raun sjálft slitið aðildarviðræðunum, sem var reyndar jafnóðum borið til baka. Þessi nýjustu undanbrögð eru afskaplega aum, svo ekki sé dýpra í árinni tekið. Þjóðin vill kjósa um aðildarviðræður í vor: Aum undanbrögð Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is Betra að vera bara inni Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálf- stæðisflokksins, hitti naglann á höfuðið í útvarpsþættinum Í bítið á Bylgjunni í gær. Þar ræddu hann og Svandís Svavarsdóttir, þing- flokksformaður Vinstri grænna, meðal annars Evrópumálin. Brynjar sagðist lítið gera annað á þinginu en að innleiða einhverjar reglur frá Evrópusambandinu í gegnum EES-samninginn. Aðspurður hvort hann yfirhöfuð þekkti þessar reglur eða hefði kynnt sér þær svaraði Brynjar því neitandi, þingmenn vissu í raun og veru ekkert hvað þeir væru að gera. Brynjar bætti við að hann spyrði sig óhjákvæmilega hvort ekki væri einfaldara að vera bara inni í Evrópu- sambandinu. Fleiri til Brussel Brynjar sagði einnig að þingið væri ekki með mannafla til að fylgjast með hvað væri verið að innleiða og til að ráða á því bót þyrfti að fjölga starfsliði úti í Brussel. Það væri hins vegar erfitt á sama tíma og skorið væri niður í starfsemi hins opinbera. Svandís tók í sama streng og Brynjar og sagði EES-samning- inn orðinn verulega mikinn pakka og taldi hann ganga of nærri stjórnar- skrá Íslands. Inn? Þingmennirnir tveir hitta þarna á nokkuð eldfimt málefni, nefnilega þá staðreynd að Íslendingar innleiða endalausa löggjöf frá sambandinu án þess að hafa nokkuð um það að segja hvernig hún verður. Varla eru þingmennirnir tveir að leggja það til að EES-samstarfinu verði slitið, svo það er erfitt að skilja orð þeirra á nokkurn annan veg en þann að þarna séu tveir þingmenn flokka sem eru yfirlýstir andstæðing- ar Evrópusambandsins að leggja til inngöngu í sambandið. fanney@frettabladid.is Samtök um sorg og sorgarviðbrögð NÝ DÖGUN www.nydogun. is www.sorg. is sorg@sorg. is Margrét Blöndal hjúkrunarfræðingur fjallar um áfallastreitu í kjölfar missis á opnu fræðslukvöldi Nýrrar dögunar n.k. fimmtudagskvöld 6. febrúar kl. 20 í safnaðarheimili Háteigskirkju. Aðgangur ókeypis. Allir velkomnir. Áfallastreita í kjölfar missis

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.