Fréttablaðið - 04.02.2014, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 04.02.2014, Blaðsíða 32
4. febrúar 2014 ÞRIÐJUDAGUR| MENNING | 24 BAKÞANKAR Söru McMahon Fregnir herma að Philip Seymour Hoff- man hafi látist úr of stórum skammti eiturlyfja á sunnudaginn, en rannsak- endur á vettvangi fundu sprautu í hand- legg hans og umslag með efni sem virtist vera heróín. Hoffman hafði um árabil átt við fíkni- vanda að etja. Árið 2006 sagði hann í við- tali í fréttaskýringaþættinum 60 minutes að hann hefði hætt að neyta áfengis og fíkniefna mörgum árum áður, eða þegar hann var 22 ára gamall. Á síðasta ári fór leikarinn góðkunni þó í meðferð í um það bil tíu daga eftir að hann ánetjað- ist lyfseðilsskyldum lyfjum sem leiddi síðar til þess að hann fór aftur að nota heróín. Philip Seymour Hoffman hefur unnið leiksigra á ferlinum. Hann vann mikið með leikstjóranum, handritshöfundinum og framleið- andanum Paul Thomas Anderson í myndum á borð við The Mast- er, Magnolia og Boogie Nights, hann hlaut Óskarsverðlaunin fyrir leik sinn í Capote, mynd byggðri á ævi rithöfundarins Trumans Capote, og vakti eftir- tekt í hlutverki sínu í kvikmynd- inni Happiness, í leikstjórn Todds Solondz, þar sem hann lék hinn pervisna og einkar ógeðfellda Allen. Þá þótti hann skara fram úr í hlutverki CIA-fulltrú- ans Gusts Avrakotos í kvikmyndinni The Talented Mr. Ripley, og svo mætti lengi telja. Þannig bætist Hoff- man í hóp þeirra hæfi- leikaríku listamanna sem deyja fyrir a ldur fram. - ósk Einn dáðasti leikari sinnar kynslóðar Philip Seymour Hoff man lést á sunnudaginn í íbúð sinni í Greenwich Village á Manhattan. Hann var 46 ára gamall og hafði lengi átt við fíknivanda að etja. ALLEN Philip Seymour Hoffman lék hlutverk Allens í kvikmyndinni Happiness í leikstjórn Todds Solondz. CAPOTE Hoffman lék titilhlutverkið í myndinni, sem byggð er á ævi Trumans Capote, og hlaut Óskarsverðlaunin fyrir besta leik í aðalhlutverki. LANCASTER DODD Úr kvikmyndinni The Master. SCENT OF A WOMAN Hoffman lék á móti Chris O‘Donnell og Al Pacino í myndinni. Hoffman var í sambandi með búningahönnuðinum Mimi O‘Donnell síðustu fimmtán ár ævi sinnar. Þau kynntust þegar þau unnu að leikverkinu In Arabia We‘d All be Kings sem Hoffman leikstýrði, árið 1999. Þau eignuðust son, Cooper, árið 2003 og tvær dætur, Tallulah, sem fæddist 2006 og Willa, fædda 2008. Í minningargrein í New York Times var Hoffman lýst sem þybbnum, þreytulegum manni með ljóst, og gjarnan ógreitt hár. Í minningar- greininni sagði enn fremur að Hoffman væri þekktur fyrir að klæðast krumpuðum fötum sem menn tengdu frekar við atvinnulausan leikara en stjörnu. Hann breytti gjarnan útliti sínu fyrir hlutverk sem hann tók að sér, breytti um hárlit og þyngdi sig eða létti. Hann var þekktur fyrir að helga sig hlutverkum sínum al- gjörlega, stundum óþarflega mikið. ➜ Einkalífið Philip Seymour Hoffman var dáður í leikhúsi, bæði sem leik- ari og leikstjóri, en hann kom fram í og leik- stýrði mörgum verkum á ferlinum. Hann hlaut þrjár til- nefningar til Tony-verðlauna, tvær fyrir besta leik í aðalhlut- verki í verk- unum True West (2000) og Death of a Salesman (2012), og eina fyrir besta leik í aukahlutverki í Long Day‘s Journey into Night (2003). ➜ Leikhúsið Hoffman lék í myndum á borð við Scent of a Woman (1992),Twister (1996), Boogie Nights (1997), The Big Le- bowski (1998), Patch Adams (1998), Magnolia (1999), The Talented Mr. Ripley (1999), Almost Famous (2000), Red Dragon (2002), 25th Hour (2002), Punch-Drunk Love (2002) og Cold Mountain (2003) 2005 lék Hoffman titilhlut- verkið í Capote. Aðrar myndir sem hlutu lof gagnrýnenda eru Owning Mahowny (2003), Before the Devil Knows You‘re Dead (2007), Charlie Wilsons‘s War (2007),The Savages (2007), Synecdoche, New York (2008), Doubt (2008), Moneyball (2011), The Ides of March (2011) og The Master (2012). Árið 2010 leikstýrði hann sinni fyrstu kvikmynd, Jack Goes Boating. ➜ Kvikmyndir HER JACK RYAN SKÝJAÐ MEÐ KJÖTBOLLUM ...2 2D SKÝJAÐ MEÐ KJÖTBOLLUM ...2 3D 47 RONIN 3D BELIEVE SECRET LIFE OG WALTER MITTY SECRET LIFE OG WALTER MITTY LÚXUS THE HOBBIT 3D 48R THE HOBBIT 3D 48R LÚXUS HER DALLAS BUYERS CLUB EYJAFJALLAJÖKULL AUGUST: OSAGE COUNTY THE BOOK THIEF KL. 8 - 10.40 KL. 5.30 - 8 KL. 3.30 - 5.40 KL. 3.30 KL. 10.20 KL. 3.30 KL. 5.30 - 8 - 10.30 KL. 8 - 10.30 KL. 5.40 - 9 KL. 4.30 Miðasala á: og ÞRIÐJUDAGSTILBOÐIN GILDA EKKI Í BORGARBÍÓ KL. 6 - 9 KL. 5.30 - 8 - 10.30 KL. 6 KL. 8 - 10.35 KL. 6 - 9 NÁNAR Á MIÐI.IS HER DALLAS BUYERS CLUB THE BOOK THIEF AUGUST: OSAGE COUNTY KL. 8 - 10:15 KL. 8 - 10:15 KL. 5.45 KL. 5.45 ÓSKARSVERÐLAUNA TILNEFNINGAR 5 ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ ÁLFABAKKA AKUREYRI EGILSHÖLL KRINGLUNNI KEFLAVÍK SJÁ FLEIRI SÝNINGAR Á WWW.BIOPARADÍS.IS - Miðasala: 412 7711 - Hverfisgata 54 - bioparadis.is - Hluti af Europa Cinemas DALLAS BUYERS CLUB 5:30, 8, 10:20 47 RONIN 3D 8 LONE SURVIVOR 10:30 SKÝJAÐ MEÐ KJÖTBOLLUM 6 2D HOBBIT 2 3D 8 SECRET LIFE OF WALTER MITTY 5:30 þriðjudagstilboð þriðjudagstilboð sýnd í 3d 48 rammaS R SIGUR- VEGARI Hoffman á Óskars- verð launa - hátíðinni árið 2006. L íkt og eftirnafn mitt gefur til kynna á ég ættir að rekja til Írlands, nánar tiltekið Vestur-Írlands. Ég heimsótti föð- urlandið oft sem barn og þótti það alltaf jafn ævintýralegt, enda var Írland á níunda áratugnum töluvert ólíkt Írland- inu í dag. Í þá daga gengu hundar lausir um þorp og borgir (margir voru þeir heimilislausir), asnar drógu hlaðna vagna á þröngum sveitavegum sem á írsku nefnast „boreen“ og hestum mátti ríða út á ströndinni í litla sjávar- þorpinu Kilkee, þar sem fjöl- skyldan var vön að eyða sum- arleyfum sínum (hrossatað á ströndinni þótti ekkert tiltöku- mál í þá daga). ÉG er þekkt fyrir að vera svolítið hænd að dýrum og á það til að leggja lykkju á leið mína til þess eins að klappa ketti. Á Írlandi hafði ég ekki undan að kjassa öll þau dýr sem urðu á vegi mínum til og frá ströndinni. Oftast voru þetta hundar og þá yfir- leitt heimilislausir hundar. Þessi ræfils- legu grey urðu flest atlætinu afskaplega þakklát og það kom stundum fyrir að ég teymdi hundana með mér heim í von um að foreldrar mínir gæfu mér leyfi til að eiga þá. Hundarnir voru misvel á sig komnir, sumir litu þokkalega út, aðrir voru lúsétnir, haltir og með hvers kyns sýkingar, en það skipti mig engu máli. Mér þóttu þeir allir jafn laglegir og eigulegir, sýktir eður ei. En eins og gefur að skilja fékk ég aldrei „jáið“ sem ég þráði að heyra heldur var mér skipað að skila dýrinu aftur á sinn stað. Þetta þótti mér alltaf jafn yfirgengilega sorg- legt og voru kveðjustundirnar átak- anlegri en harmakvein Bamba í sam- nefndri mynd úr smiðju Disney. ÉG er hætt að lokka ókunnug dýr með mér heim, en ég er ekki laus við tilfinn- inguna um að fólk eigi alltaf að huga vel að dýrunum sínum, sama hvort það eru hundar, hestar, búfénaður eða hænsni. Ef ekki, þá gæti ég neyðst til að taka upp fyrri iðju. Barnalegur dýraþjófnaður

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.