Fréttablaðið - 04.02.2014, Page 8
4. febrúar 2014 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 8
Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
3
0
N
M
6
13
0
22
Skíði
Einnig gisting á ótrúlegu verði,
frá kr. 44.500
Gistu á Skihotel Speiereck.
Netverð á mann frá kr. 44.500 m.v. 2
fullorðnir og 2 börn í herbergi með
hálfu fæði.
Netverð á mann frá kr. 59.400 m.v. 2
fullorðnir í herbergi með hálfu fæði.
8. febrúar í 7 nætur án skíðasetts.
B
ir
t
m
e
ð
yr
f
yr
ir
va
i
ra
u
m
p
re
n
tv
ill
u
il
r.
H
e
im
s
e
rð
e
rð
fe
rð
ð
v
evevev
rð
g
ð
g
rð
g
rð
g
e
tu
r
e
tu
r
e
tu
r
e
tu
b
re
b
r
b
ys
t t st
án
f
rrrriririrriririrrrrryrr
va
ra
vav
.
ðððð
ir
áá
ili
sk
i
s
a
sss
a
s
jajaj
é
r
r
r
rrr
ééé
é
tt
ttt
é
tt
é
ttt
éé
tt
é
ttt
é
t
é
t
é
l
ti
l
ti
l
ti
l
ti
liit
e
ið
le
iðð
le
ið
lel
ré
tt
é
tttttt
é
tt
in
g
a
in
g
a
in
g
a
in
g
aa
n
g
a
inii
sssssssssssssssssssss
á
sá
s
á
sá
ss
á
lík
u
lík
u
lík
u
lík
u
líklíkílílílílllllllllll
AA
t
. A
t
A
t
A
tt
A
t
A
ttt
A
tt
A
t
A
t
A
t
A
t
A
t
A
t
A
t
A
t
A
t
. A
t
A
t
A
t
A
t
A
t
A
t
A
t
A
t
. AA. AAAA
h
. a
h
. a
h
. a
h
.
hhhhhhhhhhhhhhhhhhhh
ð
34.900
Flugsæti frá kr.
Sjá aðra gistimöguleika og tilboð á
heimsferdir.is
Þú kaupir 2 flugsæti en
greiðir aðeins fyrir 1.
Einstakt tilboð á allra síðustu
sætunum til Austurríkis
8. febrúar og 1. mars
SÝRLAND Hryðjuverkasamtökin
al-Kaída sverja af sér tengsl við
samtökin Íslamskt ríki í Írak og
Austurlöndum nær (ISIS), sem
hafa látið mikið að sér kveða í
borgarastyrjöldinni í Sýrlandi og
átökum milli trúarhópa í Írak síð-
ustu misseri.
Á vef BBC segir að skilaboð
hafi verið látin út ganga frá mið-
stjórn al-Kaída þar sem tekið
var fram að ISIS ætti sannarlega
ekki aðild að samtökunum.
Ayman al-Zawahiri, leiðtogi
al-Kaída, hafnaði samruna ISIS
við annan hóp herskárra íslam-
ista, al-Nusra, í Sýrlandi. Síðan
þá hefur ISIS staðið í miklum
erjum við aðra uppreisnarhópa
í Sýrlandi, meðal annars þá sem
eru stuttir af Vesturlöndum, með
miklu mannfalli. - þj
Erjur hryðjuverkamanna:
Al-Kaída sver af
sér ISIS-hópinn
EVRÓPUMÁL Spilling í aðildarríkj-
um Evrópusambandsins grefur
undan trúverðugleika í viðskipt-
um og kostar að minnsta kosti 120
milljarða evra, eða nærri 19 þús-
und milljarða króna.
Þetta kemur fram í nýrri
skýrslu sem Cecilia Malmström,
innanríkisstjóri ESB, kynnti í
gær. Þetta er í fyrsta sinn sem
framkvæmdastjórnin tekur saman
skýrslu um vandann, sem Malm-
ström segir svo víðtækan að
„undrum sætir“.
Hún segir nauðsynlegt að grípa
til aðgerða til að breyta þessu, en
viljann til þess hafi vantað.
„Við erum einfaldlega ekki að
gera nógu mikið. Það gildir um öll
aðildarríkin,“ segir Malmström.
„Núgildandi lögum og stefnu er
ekki framfylgt nægilega vel, og
enn virðist vanta pólitíska stað-
festu um að útrýma spillingu.“
Í skýrslunni kemur fram að þrír
af hverjum fjórum íbúum Evr-
ópusambandsins telja að spilling
sé útbreidd í heimalandi sínu. Þá
telja þrjú af hverjum fjórum fyr-
irtækjum í aðildarríkjunum spill-
ingu vera útbreidda og 40 prósent
þeirra segja spillingu gera þeim
erfitt fyrir við að stunda viðskipti
í ESB-ríkjunum.
Um átta prósent íbúa Evrópu-
sambandsríkjanna segjast hafa
haft beina reynslu af spillingu
á undanförnum tólf mánuðum.
Flestir þeirra eru í Litháen, Sló-
vakíu og Póllandi, en fæstir í
Finnlandi, Danmörku, á Möltu og
í Bretlandi.
Spillingin er þó mjög misjöfn
eftir löndum og misjafnt til hvaða
aðgerða þyrfti að grípa til að
draga úr henni.
Sums staðar er það opinber
stjórnsýsla, sem er veikust fyrir,
annars staðar eru það fjármál
stjórnmálaflokka sem helst þarf
að huga að. Í atvinnulífinu er
ástandið sagt vera einna verst
meðal byggingafyrirtækja og upp-
lýsingatæknifyrirtækja.
Fyrir nokkrum dögum var
ákveðið að úr skýrslunni yrði
sleppt sérstökum kafla um spill-
ingu meðal stofnana Evrópusam-
bandsins sjálfs. Haft var eftir tals-
manni Malmströms að þetta hefði
verið ákveðið vegna þess að erfitt
væri að dæma í eigin sök.
gudsteinn@frettabladid.is
Vilja vantar
til breytinga
Spilling í aðildarríkjum Evrópusambandsins er svo
víðtæk „að undrum sætir“ segir innanríkisstjóri ESB.
Hún segir nauðsynlegt að grípa strax til aðgerða.
76% íbúa ESB-
ríkjanna telja spillingu
útbreidda í heima-
landi sínu.
56% íbúa ESB-
ríkjanna telja spillingu
hafa aukist í heima-
landi sínu undanfarin
þrjú ár.
81% íbúa ESB-ríkjanna
telur of náin tengsl
viðskipta og stjórnmála
leiða af sér spillingu.
23% íbúa ESB-
ríkjanna telja aðgerðir
stjórnvalda í heima-
landi sínu gegn spill-
ingu bera árangur.
8% prósent íbúa ESB-ríkjanna
segjast hafa upplifað
eða orðið vitni að
spillingu á síðustu tólf
mánuðum.
➜ Nokkrar helstu niðurstöður skýrslunnar
CECILIA MALMSTRÖM Innanríkisstjóri Evrópusambandsins segir spillingu grafa
undan trúverðugleika. NORDICPHOTOS/AFP
Enn virðist vanta
pólistíska staðfestu um að
útrýma spillingu.
Cecilia Malmström,
innanríkisstjóri ESB
RÚSSLAND, AP Sergei Gordejev,
nemandi við grunnskóla í Moskvu,
ruddist í gærmorgun inn í skóla-
stofu í skóla sínum vopnaður
byssum og myrti þar bæði sögu-
kennara sinn og einn lögregluþjón,
ásamt því að særa alvarlega annan
lögregluþjón.
Um tuttugu nemendur voru í
skólastofunni þegar þetta gerðist,
og hélt nemandinn þeim í gíslingu
í um hálftíma. Faðir nemandans
var strax kallaður á vettvang og
gegndi stóru hlutverki við að fá
son sinn til að láta nemendurna
lausa.
Pilturinn er sagður hafa verið
afburðanemandi, en talsmaður
lögreglunnar segir að svo virðist
sem hann hafi fengið andlegt áfall.
Skotárásir í skólum hafa verið
sjaldgæfar í Rússlandi, en árás-
in í gær vekur upp minningar um
gíslatökuna í Beslan árið 2004, en
þá létust 300 manns eftir að örygg-
issveitir réðust til atlögu gegn
árásarmönnunum.
- gb
Nemandi í tíunda bekk í Moskvu gerði skotárás á skólatíma í gær:
Myrti kennara og lögregluþjón
BÖRNUM FYLGT ÚT ÚR SKÓLANUM
Um tuttugu nemendum var haldið í
gíslingu í um hálftíma. FRÉTTABLAÐIÐ/AP