Fréttablaðið - 04.02.2014, Page 16

Fréttablaðið - 04.02.2014, Page 16
4. febrúar 2014 ÞRIÐJUDAGUR| TÍMAMÓT | 16TÍMAMÓT Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@365.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000. Okkar ástkæri SVEINBJÖRN RAGNAR DANÍELSSON (BIMBI) lést þann 1. febrúar á Landspítalanum við Hringbraut. Minningarathöfn fer fram miðvikudaginn 5. febrúar kl. 13.00 í Garðakirkju. Jarðsungið verður í Hvalba á Suðurey, Færeyjum. Aðstandendur. PÉTUR PÉTURSSON lést á Karólínska sjúkrahúsinu í Stokkhólmi miðvikudaginn 29. janúar. Jóna Björk Jónsdóttir Hjördís Ágústsdóttir Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÞÓRA ÁGÚSTSDÓTTIR fyrrum húsfreyja á Melum í Hrútafirði, lést á hjúkrunarheimilinu Grund miðviku- daginn 24. janúar. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju föstudaginn 7. febrúar kl. 13.00. Jón Hilmar Jónsson Sigríður Karvelsdóttir Ágúst Frímann Jónsson Kristín Björnsdóttir Helga Jónsdóttir Ólafur Þorsteinsson Ingunn Jónsdóttir Ísar Guðni Arnarson Elísabet Jónsdóttir Sigurgeir Ólafsson Guðlaug Jónsdóttir Karl Kristján Ásgeirsson barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður og afa, JÓNS KRISTINS GÍSLASONAR Skerseyrarvegi 3c, Hafnarfirði. Börn, tengdabörn og barnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, GUÐBJÖRG FRIÐÞJÓFSDÓTTIR BOGGA Melabraut 46, Seltjarnarnesi, andaðist 1. febrúar síðastliðinn á Landspítalanum í Fossvogi. Þröstur Elíasson Lilja Þrastardóttir Skúli Þorsteinsson Helgi Leifur Þrastarson Guðrún Rós Maríusdóttir og barnabörn. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, EINAR EGGERTSSON skipstjóri, lést á líknardeild Landspítalans þriðjudaginn 28. janúar. Útför hans fer fram frá Langholtskirkju fimmtudaginn 6. febrúar kl. 13.00. Eggert Ólafur Einarsson Magnea Einarsdóttir Þorsteinn Sverrisson Unnur Einarsdóttir Jóhannes Helgason Áslaug Einarsdóttir Gunnlaugur Helgi Jóhannsson og fjölskyldur. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi okkar, HANNES PÁLMASON lést í faðmi fjölskyldunnar á Sólvangi fimmtudaginn 30. janúar. Jarðarförin fer fram í kyrrþey að ósk hins látna. Ágústa Þorbergsdóttir Pálmi Hannesson Sigríður Sigurhansdóttir Trausti Hannesson Anna Björg Gunnarsdóttir Haukur Hannesson Lizbeth Ruiz Bocanegra Elfa Hannesdóttir Jóhann Konráð Birgisson barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, amma og tengdamamma, HERTA KRISTJÁNSDÓTTIR lést miðvikudaginn 29. janúar. Útför hennar fer fram frá Neskirkju föstudaginn 7. febrúar klukkan 16. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vilja minnast hennar er bent á söfnun UNICEF til hjálpar börnum í Sýrlandi. Súla, Bjössi og Lína, barnabörn og tengdabörn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og sambýlismaður, STEFÁN ARNGRÍMSSON kynningarstjóri RARIK, Hringtúni 5, Dalvík, lést þann 27. janúar á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri umvafinn ástvinum. Útför hans fer fram frá Dalvíkurkirkju föstudaginn 7. febrúar kl. 14.30. Wilaiwan Jampasa Ingibjörg Stefánsdóttir Arngrímur Stefánsson Harpa Stefánsdóttir Elfa Dröfn Stefánsdóttir Jón Ingi Stefánsson Stefán Ari Stefánsson Margrét Lóa Stefánsdóttir tengdabörn og barnabörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir, stjúpfaðir, tengdafaðir, afi og langafi, EINAR JÓNSSON húsgagnabólstrari Sólvangsvegi 3, Hafnarfirði, áður Móabarði 18, lést fimmtudaginn 30. janúar á hjúkrunarheimilinu Sólvangi í Hafnarfirði. Jarðarförin fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði föstudaginn 7. febrúar kl. 11.00. Þóra Valdimarsdóttir Hörður Einarsson Ólöf Þórólfsdóttir Jón Hjörtur Einarsson Margrét Þorvaldsdóttir Guðríður Einarsdóttir Gunnar Kristjánsson Ingigerður Sigurgeirsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og sambýlismaður, ÞORKELL VALDIMARSSON Efstaleiti 10, Reykjavík, lést hinn 27. janúar sl. á Landspítalanum í Fossvogi. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Sigríður Elín Þorkelsdóttir Valdimar Þorkelsson Aron Árnason Svanhildur Benjamínsdóttir Ívar Orri Aronsson Þorkell Valdimarsson Heba Björg Aronsdóttir Matthías Valdimarsson Benjamín Gunnar Valdimarsson Kristjana B. Mellk „Mamma mín og pabbi voru bæði í frjálsum, og meira að segja langafi minn í móðurætt,“ segir Þórdís Eva Steinsdóttir, sem var ásamt Helga Guðjónssyni valin efnilegust unglinga af Framförum – Hollvinafélagi milli- vegalengda- og langhlaupara. „Langafi minn hét Sveinn Kr. Magnússon. Hann bjó í Hafnarfirði og keppti með FH eins og ég,“ segir hún. Þórdís Eva og Helgi voru í góðum hópi verðlauna- hafa, því meðal annarra sem hlutu verðlaun voru Aníta Hinriksdóttir og Kári Steinn Karlsson, en þau voru valin hlauparar ársins. Þórdís lítur upp til þeirra beggja og líka hlauparans Usains Bolt. Hún segir mjög hvetjandi að fá viðurkenn- ingu á borð við þessa. „Ég fékk ávaxta- körfu með fullt af ávöxtum í, gjafabréf, hlaupadagbók, sokkapar og peninga- verðlaun. Ég er ekki búin að ákveða hvað ég geri fyrir peninginn.“ Þórdís þakkar góðan árangur sinn því að hún æfir vel og er dugleg að keppa. „Ég er til dæmis búin að keppa þrjár helgar í röð og á þrjár eftir. Ég keppi í öllu; hlaupum, stökkum og köstum, en mest í hlaupum. 400 og 800 metra hlaup eru uppáhaldið mitt. Í fyrra setti ég 29 Íslandsmet. Ég setti líka eitt Íslandsmet á Reykjavíkurleik- unum um daginn og um síðustu helgi setti ég tvö.“ Einna eftirminnilegastir þykja Þór- dísi Gautaborgarleikarnir. „Þar vann ég þrenn verðlaun, ein í þrístökki, önnur í 600 metra hlaupi og þriðju í 200 metra hlaupi. Draumurinn er að kom- ast einhvern tímann á Ólympíuleikana, eða á eitthvert annað stórmót,“ segir Þórdís. Hún æfir ekki bara frjálsar, heldur líka fótbolta. „Ég æfi frjálsar fimm sinnum í viku og fótbolta fimm sinnum í viku, en ég mæti ekki á allar æfingar í frjálsum og heldur ekki í fótbolta. Ég reyni auðvitað að mæta á allar en hef bara ekki tíma. Ég get ekki valið hvort mér finnst skemmtilegra í fótbolta eða frjálsum. Ég er samt betri í frjálsum.“ Þórdís segir að það einfaldi valið lítið. „Bróðir minn er með mér í frjálsum og ein af bestu vinkonum mínum er líka í frjálsum. Svo eru hinar tvær bestu vinkonur mínar með mér í fótbolta.“ Þórdís er á fjórtánda ári og geng- ur í Setbergsskóla. „Uppáhaldsfagið mitt í skólanum eru íþróttir. Íþróttir eru aðaláhugamálið. Önnur áhugamál komast ekki fyrir,“ segir hún. Auk áðurnefndra hlaupara fengu Kristinn Þór Kristinsson og Helen Ólafsdóttir viðurkenningu fyrir mestu framfarirnar á árinu 2013. ugla@frettabladid.is Í fótspor langafa Þórdís Eva Steinsdóttir er efnilegur ungur hlaupari. Hún setti 29 Íslandsmet í fyrra. Fram- farir – Hollvinafélag millivegalengda- og langhlaupara veitti hlaupurum viðurkenningar. EFNILEG Þórdís Eva Steinsdóttir og Helgi Guðjónsson voru valin efnilegustu unglingarnir. MYND/ STEINN JÓHANNSSON. Uppáhaldsfagið mitt í skólanum eru íþróttir. Íþróttir eru aðaláhugamálið. Önnur áhugamál komast ekki fyrir. Þórdís Eva Steinsdóttir

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.