Fréttablaðið - 04.02.2014, Blaðsíða 20
FÓLK|HEILSA
Skammtímamegrunarkúr
sem samanstendur af
800 hitaeiningum getur
læknað áunna sykursýki
í of feitum einstaklingum.
Þetta sýna niður-
stöður nýlegrar rann-
sóknar sem gerð var við
Newcastle-háskóla.
Niðurstöðurnar gætu
markað tímamót fyrir
milljónir sjúklinga sem
þróað hafa með sér syk-
ursýki af tegund tvö.
Rannsakendur segja
niðurstöðurnar spenn-
andi þar sem sjúklingar
í úrtakshópi losnuðu við
lífshættulegan sjúkdóm
aðeins vikum eftir að
hafa tamið sér 800 hita-
eininga mataræði.
Yfirleitt er ekki mælt
með skyndimegrunar-
kúrum en þegar farið var
eftir mataræði rannsókn-
arinnar losnaði hratt um
fitu á lifur og nýrum.
Eðlilegt fituhlutfall í
heilbrigðum einstaklingi
er um tuttugu prósent.
Í offitusjúklingum getur
hlutfall fitu hins vegar
náð 40 prósentum í
kringum lífsnauðsynleg líffæri og hamlað framleiðslu insúlíns.
Roy Taylor, prófessor við Newcastle-háskóla, stjórnaði rannsókn-
inni: „Góðu fréttirnar eru þær að sé feitmeti skorið niður í mataræði
snarminnkar fita utan á lifur og nýrun geta hafið sitt starf á ný.“
Rannsóknin var gerð í því skyni að sjá hvort heimilislæknar gætu
notað sömu aðferð til að snúa við sykursýki-2 í sjúklingum.
„Við höfum vísbendingar um að árangurinn haldist en þurfum
stærri rannsókn til að sannreyna það,“ segir Taylor.
Sykursýki af tegund 2 er vaxandi heilbrigðisvandamál á heimsvísu.
Nýlega opinberaði Óskarsverðlaunahafinn Tom Hanks að hann þjáð-
ist af sykursýki-2 sem án meðhöndlunar getur leitt til blindu, aflim-
unar, nýrnabilunar og heilablóðfalls.
LÆKNAR MEGRUN
SYKURSÝKI TVÖ?
HOLLUSTA Fitu- og hitaeiningasnautt fæði getur
fljótt læknað áunna sykursýki, samkvæmt rannsókn
Newcastle-háskóla. NORDICPHOTOS/GETTY
Lukka segir 5:2 mjög við-ráðanlegan kúr og gefur hér uppskrift að góðum
föstu-degi. Fyrri hluta dags
væri til dæmis hægt að gæða
sér á chia-tei og bláberja-
súkku laðihristingi. „Hristing-
urinn er einn af mínum uppá-
halds enda
hollusturéttur
í nautnadul-
búningi. Hann
er svakalega
ljúffengur og ef
ég nota frosin
bláber finnst
mér þessi hrist-
ingur jafnvel
betri en rjómaís,“ segir Lukka
glaðlega. Chia-teið er einnig í
uppáhaldi. „Það er svo orkugef-
andi og samt svo létt í maga.“
Um kvöldið mætti síðan
kokka upp girnilega tómat-
súpu með kúskússalati. „Mér
finnst æðislega gott að fá heita
súpu á kvöldin, sérstaklega á
þessum árstíma. Tómatsúpan
er saðsöm og fyllandi án þess
að innihalda margar hitaein-
ingar,“ segir Lukka sem reynir
ávallt að velja trefjaríkan mat
þar sem hann fyllir betur og
kemur meltingunni á myljandi
ferð.
VIÐRÁÐANLEGIR FÖSTU-DAGAR
HEILSA Unnur Guðrún Pálsdóttir, betur þekkt sem Lukka í Happi, gaf nýverið út bókina 5:2 mataræðið. 5:2 mataræðið byggir á því
að tvo daga vikunar takmarki fólk inntöku hitaeininga við 500 eða 600 á dag.
LUKKA
Chia-te
fyrir 2
94 kcal pr. skammt
4 bollar skvísute frá Arctic mood
eða annað gott jurtate
1/4 rauðrófa eða 1/4 dl af tilbúnum
rauðrófusafa
3 msk. chia-fræ
Lagið fjóra bolla af vel sterku tei.
Setjið rauðrófuna í safapressu og
pressið. Setjið chia-fræin í bland-
ara og hellið teinu og rauðrófusaf-
anum yfir. Blandið á minnsta hraða
í nokkrar sekúndur eða þar til
fræin hafa dreifst jafnt um drykk-
inn. Stöðvið blandarann og látið
standa í um eina mínútu. Blandið
aftur á minnsta hraða í nokkrar
sekúndur. Endurtakið þar til fræin
hafa drukkið í sig vökva og hætt að
setjast í yfirborðið þegar blandarinn
er stöðvaður. Má drekka bæði heitt
eða kalt.
Bláberja- og
súkkulaðihristingur
fyrir 2
192 kcal pr. skammt
2 dl vatn
1 pk. cordyceps þurrkaðir sveppir,
má sleppa
1 handfylli grænkál
1 handfylli eikarlauf
1 msk. hreint kakóduft
1 msk. kókosolía
4 dl frosin bláber
kakónibbur (cacao nibs), dökkt
gæðasúkkulaði eða kókos, að smekk
Setjið allt hráefni nema bláberin í
blandara og maukið. Hellið síðan
frosnum bláberjum út í og blandið
vel. Hellið í glas og sáldrið uppá-
haldshnetunum ykkar yfir drykk-
inn, hráum kakónibbum, fínt skornu
dökku gæðasúkkulaði eða kókos.
Tómatsúpa með
kúskússalati
fyrir 4
147 kcal pr. skammt
6 tómatar
1 dós niðursoðnir tómatar
2 meðalstórar gulrætur
1-2 hvítlauksrif
8 dl grænmetissoð
Skerið gulrætur í smáa bita og saxið
hvítlauk smátt. Mýkið gulrætur
og hvítlauk í örlitlu vatni í potti í
nokkrar mínútur. Skerið tómata í
bita og bætið út í pottinn. Bætið
grænmetissoðinu og niðursoðnu
tómötunum út í og látið sjóða í um
það bil 15 mínútur. Maukið súpuna í
blandara. Berið fram með 1/2 bolla
af kúskússalati.
Kúskússalat
3 dl kúskús
25 g rauð paprika
2 msk. fersk basilíka
2 dl kjúklingabaunir
Sjóðið kúskús samkvæmt leiðbein-
ingum á pakka. Saxið papriku og
basilíku smátt. Blandið baunum
og grænmeti saman við kúskús og
berið fram með súpunni.
TÓMATSÚPA MEÐ
KÚSKÚSSALATI
BLÁBERJA- OG
SÚKKULAÐIHRISTINGUR
CHIA TE
MYNDIR/HEMMI
Skipholti 29b • S. 551 0770
Vertu velkomin! Fylgstu með okkur
á facebook.com/Parisartizkan
Nú rýmum við fyrir vorvörunni.
Nýjar sendingar vikulega.
RÝMINGASALA
HAFIN!