Fréttablaðið - 15.03.2014, Page 10

Fréttablaðið - 15.03.2014, Page 10
15. mars 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 10 STJÓRNMÁL Þingmenn túlka ræðu Bjarna Benediktssonar, efnahags- og fjármálaráðherra, um þjóðarat- kvæðagreiðslu á tvo vegu. Annars vegar að Bjarni hafi verið að rétta fram sáttarhönd, hins vegar að hann og ríkisstjórnin séu á flótta undan til- lögu Gunnars Braga Sveinssonar um að draga aðildarumsókn Íslands að ESB til baka. Í ræðu sinni á Alþingi í fyrrakvöld sagði Bjarni að til álita kæmi að efna til þjóðaratkvæða- greiðslu varðandi ESB. „Það er enginn sérstakur ásetn- ingur ríkisstjórnarinnar að halda málinu frá þjóðinni,“ sagði Bjarni. Þó væri ekki sama hver spurningin væri ef málið yrði borið undir þjóð- ina. „Ég vil gera mjög skýran greinar- mun á tvennu, annars vegar því að bera það mál undir þjóðina sem hér er til umræðu í þinginu, að draga aðildarumsóknina til baka, og hins vegar því að spyrja þjóðina hvort nú sé ekki góður tími til að ljúka aðild- arviðræðunum. Þetta eru tveir ólík- ir hlutir,“ sagði Bjarni. Spurningin í þjóðaratkvæðagreiðslu ætti að snú- ast um hvort þjóðin væri sammála því að draga umsóknina til baka. Bjarni sagðist alltaf hafa viljað að þjóðin kæmi að málinu, en á grund- velli þess sem Alþingi ákvæði. Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, telur að Bjarni hafi verið að lýsa því yfir að hann sé reiðubúinn að skoða ýmsar leiðir í málinu, þar á meðal tillögu VG um að gera hlé á viðræðunum og taka þær ekki upp aftur nema að undan- genginni þjóðaratkvæðagreiðslu. „Ég lít svo á að sú krafa sem er uppi um þjóðaratkvæðagreiðslu sé lýðræðiskrafa. Krafan snýst ekki um að Ísland gangi í ESB. Ég túlka orð Bjarna á þann hátt að aðkoma þjóðarinnar að þessu máli sé tryggð,“ segir Katrín. Guðmundur Steingrímsson, for- maður Bjartrar framtíðar, segir að að lögð verði áhersla á það í vinnu utanríkismálanefndar að ná sáttum. „Ég ætla að leyfa mér að túlka ræðuna á þann hátt að Bjarni hafi verið að rétta fram sáttarhönd. Það er vel hægt að ná lýðræðislegri lendingu,“ segir Guðmundur. Árni Páll Árnason, formað- ur Samfylkingarinnar, horfir allt öðrum augum á ræðuna. „Ræðan gróf enn frekar undan tillöguflutningi ríkisstjórnarinn- ar. Það talar enginn fyrir þess- ari tillögu Gunnars Braga eins og hún er lögð fram. Allir ráðherrar Sjálfstæðisflokksins voru þöglir í umræðunni. Það blasir við að tillag- an er munaðarlaus, það vill enginn bera ábyrgð á henni. Tillagan ber í sér svo mikla brigð á gefnum lof- orðum að hún ber dauðann í sér,“ segir Árni Páll. johanna@frettabladid.is Þjóðaratkvæði er hugsanlegt Fjármálaráðherra segir koma til greina að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB-mál. Meginmáli skipti hvaða spurningar yrði spurt. Sumir þingmenn telja að Bjarni hafi rétt fram sáttarhönd. Aðrir eru á öðru máli. Fyrstu umræðu um þingsályktunartillögu Gunnars Braga Sveinssonar um að draga umsókn Íslands að Evrópusambandinu til baka lauk klukkan hálf fjögur aðfaranótt föstudagsins. Tillagan fer nú til umfjöllunar í utanríkismálanefnd Alþingis. Tillaga Pírata um að halda ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu vegna málsins og tillaga Vinstri grænna um að gera formlegt hlé á aðildarviðræðum voru einnig afgreiddar án umræðu og sendar til utanríkismálanefndar. Umræðan um þingsályktunartillögu Gunnars Braga var löng og ströng á Alþingi. Alls ræddu þingmenn tillöguna í nær 24 klukkustundir. 77 þingræður voru haldnar og tóku þær nær sjö tíma. Mestur tíminn fór í andsvör, athugasemdir og umræður um fundarstjórn forseta eða hátt 17 klukkustundir. ESB-tillögur til utanríkismálanefndar Við aðstoðum með ánægju. Þegar fjölskyldan stækkar getur nýrri, sparneytnari og öruggari bíll gert gæfumuninn. Með faglegri ráðgjöf og góðri þjónustu hjálpum við þér að fjármagna það sem upp á vantar til að þú getir uppfært fjölskyldubílinn. Við fjármögnum nýja fjölskyldubílinn Suðurlandsbraut 14 > sími 440 4400 > www.ergo.is > ergo@ergo.is MALASÍA, AP Farþegaþotunni, sem hvarf á flugi frá Kúala Lúmpúr til Kína, var snúið við og flogið aftur yfir Malasíu. Ljóst virðist að kunn- áttumaður í flugi hafi snúið vélinni við. Þeir sem vinna að rannsókn máls- ins virtust orðnir nokkuð vissir um þetta í gær. Vélinni virðist hafa verið flogið í áttina að Andaman-eyjum á Ind- landshafi, en ekki er vitað til þess að hún hafi lent neins staðar. Þá hefur kenning bandarísks námsmanns um örlög vélarinn- ar vakið athygli, en hann telur að sprunga hafi komið á skrokk vél- arinnar með þeim afleiðingum að sjálfkrafa var slökkt á öllum tækja- búnaði öðrum en þeim sem knúði vélina áfram. Áhöfn jafnt sem far- þegar hefðu þá misst meðvitund á skammri stund. - gb / sjá síðu 30 Enn engar skýringar á hvarfi farþegaþotunnar: Vélinni var snúið við LEIT HALDIÐ ÁFRAM Leitin hefur færst yfir á Indlandshaf. FRÉTTABLAÐIÐ/AP FYRSTU UMRÆÐU LOKIÐ Umdeild þingsályktunartillaga Gunnars Braga Sveinsson- ar um að draga umsókn Íslands að Evrópusambandinu til baka er komin til umfjöll- unar í utanríkismálanefnd Alþingis. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.