Fréttablaðið - 15.03.2014, Side 32

Fréttablaðið - 15.03.2014, Side 32
15. mars 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 32 Kristín S. Bjarnadóttir og Sóley María Hauksdótt-ir eru brosmildar þrátt fyrir að vera ósofnar eftir margra klukku-tíma ferðalag þegar þær hitta blaðamann. Planið var að hvílast á fluginu á leiðinni heim enda um næturflug frá Bandaríkj- unum að ræða og fyrir lá að keyra heim í Eyjafjörðinn í framhaldinu en einn farþeginn féll í yfirlið um borð og það kom í hlut Kristínar, hjúkrunar fræðingsins, að hlúa að farþeganum á leiðinni heim. Hjálp- semi og náungakærleikur mæðgn- anna er einmitt ástæða ferðalags- ins yfir hafið. „Þetta byrjaði allt þegar ég sá viðtal við Geir í Kastljósinu árið 2007. Margir spyrja mig af hverju ég sé að þessu, af hverju er ég að gera þetta fyrir ókunnugan mann? En viðtalið var átakanlegt, þarna eru framin mannréttindabrot alla daga og þetta sat í mér. Ég hugs- aði strax að þennan mann vantaði meiri mannlega tengingu út fyrir múrana og sem betur fer voru fleiri en við sem brugðust við,“ segir Kristín. Sjö ár eru síðan hún og fjöl- skylda hennar hófu bréfaskipti við Geir Gunnarsson, íslenskan mann sem hlaut tuttugu ára dóm fyrir alvarlega líkamsárás. Geir situr í Greensville-fangelsinu í Virginíu- fylki og hefur afplánað 16 ár af dómnum. Nítján mánuðir eru eftir en þá snýr Geir aftur til Íslands enda óheimilt að dvelja lengur í Bandaríkjunum. „Geir er löngu búinn að taka út sína refsingu og er breyttur maður í dag, hann er hlýr og gefandi maður með erfiða reynslu.“ Strangar öryggiskröfur Eftir margra ára bréfaskriftir hittu þær mæðgur Geir í fyrsta skipti fyrir viku. Ferðalagið var skipulagt í þaula og búið var að fá undanþágu fyrir mæðgurnar að heimsækja Geir í fangelsið tvo daga í röð. Þær gistu hjá móður Geirs, Guðrúnu Thoris- son, og láta vel af dvölinni. Bróð- urdóttir Geirs, Shelby Thorisson, var einnig með þeim en þær Sóley María eru jafnaldrar og hafa verið pennavinkonur síðustu misserin. „Við smullum strax allar saman og nutum samverunnar, vel og inni- lega.“ Allar fjórar heimsóttu þær Geir í fangelsið saman, heimsókn sem að þeirra sögn var tilfinninga- rússíbani. „Við vorum bæði spenntar fyrir að hitta Geir en örlítið kvíðnar yfir því hvað tæki á móti okkur í fang- elsinu sjálfu,“ segir Sóley María sem þurfti að fjárfesta í víðum buxum vegna heimsóknarinnar en gestir þurfa að fylgja ströngum reglum varðandi fataval og fram- komu innan veggja fangelsisins. „Það var alveg ótrúlegt að koma í fangelsið, í þá auðn og mannlegan kulda sem þar er. Ég var stöðvuð í fyrsta öryggistékkinu af fimm og var látin fara út peysunni,“ segir Kristín. „Síðan var ég gagnrýnd fyrir að það sæist í berar axlirn- ar á mér. Fleiri öryggisverðir voru kallaðir til og stóðu yfir mér hrist- andi hausinn. Ég benti þeim ítrek- að á það augljósa, að ef ég fengi að vera í peysunni þá sæist ekki í axlirnar. Að lokum var yfirmaður kallaður til og útskýrði fyrir mér að ég hefði haft peysuna þannig að hún væri meira eins og jakki en ekki peysa, því hún hefði ekki verið rennd alveg upp í háls þegar ég sást koma í henni utan af plani. Ég varð að lofa að hafa peysuna rennda upp í höku allan tímann og aldrei koma svona aftur. Þau Guðrún og Geir höfðu varað okkur við duttlungun- um þarna, sem snúast um að sýna vald sitt þannig að þetta kom okkur ekki á óvart,“ segir Kristín. Langþráður hittingur Þær mæðgur játa því að salurinn sem þær hittu Geir í líkist því sem sjá má í bandarískum bíómynd- um. Stólar og lág borð úr plasti í stórum sal þar sem fangar sitja og taka á móti gestum. „Þetta er til að koma í veg fyrir að eitthvað gerist milli fanga og gesta undir borði. Þess vegna eru borðin bara upp að hnjám,“ segir Sóley María. Stundin þegar þau hittust loksins er þeim öllum ógleymanleg og ein- kenndist af tærri gleði og væntum- þykju. Geir sagðist hafa lifað á til- hugsuninni um heimsóknina síðustu mánuði. Fyrri heimsóknin varði í sex klukkustundir og daginn eftir náðu þær að dvelja hjá honum í fimm og hálfa klukkustund. „Það var eins og við hefðum alltaf þekkst. Geir var mjög ein- lægur og innilegur. Þó hann hefði sagt okkur frá kvöldinu örlaga- ríka í bréfum áður, hafði hann þörf fyrir að fá að fara í gegnum það með okkur aftur, fullur iðr- unar og svo innilega meðvitaður um að ekkert væri hægt að taka til baka. Hann var hógvær og sagð- ist stundum efast um að hann ætti skilið þá hjálp sem hann fær frá fjölskyldu og vinum. Það er mikill einmanaleiki í fangelsinu og marg- ar óskrifaðar reglur. Það er engum treystandi og engin augnsambönd mynduð,“ segir Kristín. Mikil þörf fyrir einkalíf Geir hlakkar til að öðlast frelsið og geta búið einn þegar hann losnar enda er hann aldrei einn í fangels- inu og alls staðar hávaði, meira að segja í heimsóknarsalnum var klið- urinn yfirþyrmandi. Eftir að hafa búið við þær aðstæður í 16 ár, í klefa með tveimur rúmum og klósetti við rúmið, er þörfin fyrir einkalíf orðin mikil. Lífið innan veggja fangelsis- ins er orðið bærilegra fyrir Geir núna þegar hann sér fyrir endann á dvölinni. Hann hefur láglauna- vinnu á lagernum og er búinn að klára tveggja ára grunnnám í við- skiptafræði. Þær mæðgur segjast ríkari eftir að hafa hitt Geir og hefur Sóley verið beðin um að halda fyrirlest- ur í skólanum sínum, Brekkuskóla á Akureyri. Og Geir bað fyrir skila- boð til unglinganna: „Aldrei brjóta af ykkur, aldrei lenda í fangelsi.“ „Samfélagið hefur líka breyst heilmikið síðan Geir var dæmdur, eins og til dæmis tölvunotkun. Geir kann lítið á tölvur og internet, enda ekki haft aðgang að slíku. Það er því gleðilegt að hann er nú byrjaður á tölvunámskeiði sem hluta af undir- búningi fyrir að losna út á næsta ári. Geir hlakkar annars mest til litlu hlutanna, að geta gert allt þegar hann vill, rétt eins og bara að opna dyr sjálfur, hann hefur ekki opnað dyr í 16 ár,“ segir Kristín en þær mæðgur verða meðal fjölskyldu og vina sem verða Geir til stuðn- ings þegar hann kemur til Íslands á næsta ári. „Nú förum við á fullt að undirbúa heimkomuna. Hann á náttúrulega ekkert, ekki einu sinni föt. Þegar hann var dæmdur var hann 25 ára gamall og margt hefur breyst.” Fyrir velunnara Geirs hefur verið stofnaður styrktarreikningur til að undirbúa heimkomu hans. Guðrún, móðir Geirs, og Stella Friðgeirs- dóttir, frænka hans, fara með pró- kúru. Reikningsnúmer: 515-14-612840 Kennitala: 630307-0900 Eins og við hefðum alltaf þekkst Mæðgurnar Kristín S. Bjarnadóttir og Sóley María Hauksdóttir ferðuðust á dögunum til Bandaríkjanna í fyrsta sinn. Áfanga- staðurinn var Greensville-fangelsið í Virginíufylki þar sem pennavinurinn til margra ára, fanginn Geir Gunnarsson, var heimsóttur. HJÁLPSEMI OG NÁUNGAKÆRLEIKUR Það er margt sem situr eftir hjá mæðgunum Kristínu Bjarnadóttur og Sóleyju Maríu Hauksdóttur eftir ferðalagið vestur um haf. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL ÓGLEYMANLEGT FERÐALAG MÆÐGNANNA Í GREENSVILLE-FANGELSIÐ Í VIRGINÍU FJÓRMENNINGARNIR Sóley María og Kristín hér ásamt móður Geirs, Guð- rúnu Thorisson, og bróðurdóttur hans, Shelby, en þær hýstu mæðgurnar og fóru með þeim í heimsókn í fangelsið. JAFNALDRAR Sóley María og Shelby hér fyrir utan fangelsið. Sóley þurfti að fjárfesta í víðum buxum fyrir heim- sóknina en sírenur byrjuðu að væla á Kristínu þegar hún tók þessa mynd. FANGELSIÐ Gestir þurftu að fara í gegnum þrjú örygg- ishlið til að komast inn í fangelsið sem er umvafið þremur lögum af gaddavír, eða hnífavír eins og Kristín orðaði það. 16 ÁR Geir hefur setið inni í Greensville-fangelsinu í 16 ár og á 19 mánuði eftir. Þá verður hann sendur beint til Íslands. FYRIR UTAN FANGELSIÐ Kristín ásamt móður Geirs, Guðrúnu, en þær fengu undanþágu til að heimsækja Geir tvo daga í röð og eyddu alls með honum 11 og hálfum klukkutíma sem voru fljótir að líða að þeirra sögn. Margir spyrja mig af hverju ég sé að þessu, af hverju er ég að gera þetta fyrir ókunnugan mann? En viðtalið var átakanlegt, þarna eru framin mann- réttindabrot alla daga og þetta sat í mér. Kristín Bjarnadóttir hjúkrunarfræðingur Álfrún Pálsdóttir alfrun@frettabladid.is
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.