Fréttablaðið - 15.03.2014, Side 36
15. mars 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 36
Fallegustu nýbyggingar landsins
Ýmislegt spennandi hefur gerst í íslenskum arkitektúr á síðustu árum. Fréttablaðið fékk vel valinn
hóp fagaðila til að velja fallegustu nýbyggingar landsins sem eiga það sameiginlegt að vera byggðar
eftir árið 2007. Sundlaugin á Hofsósi er þar efst á blaði þar sem byggingin er talin einstaklega vel
heppnuð og bera virðingu fyrir náttúrudýrðinni í umhverfinu.
1. Sundlaugin á Hofsósi – Arkitektar: Basalt / VA: Jóhann Harðarson, Marcos Zotes Lopes, Rósa Dögg Þorsteinsdóttir,
Stefanía Sigfúsdóttir, Sigríður Sigþórsdóttir (2010).
Arkitektúr sem í sjálfu sér er upplifun. Falleg lausn
þar sem virðing er borin fyrir umhverfi og náttúru. Unnið
er vel með samspil þess náttúrulega og manngerða og
góð tilfinning fyrir hlutföllum, efnum, notkun og tilgangi.
Byggingin er hógvær í landslaginu en myndar um leið
sterkt samspil við umhverfið, haf og land.
Elísabet V. Ingvarsdóttir
Laugin og þjónustuhúsið eru hugvitssamlega felld inn
í landið. Í einfaldleik sínum nær mannvirkið að magna
áhrif umhverfisins þar sem vatnsflötur laugarinnar kallast
á við hafflöt Skagafjarðar og eyjarnar við sjónarrönd.
Pétur H. Ármannsson
Sundlaugin á Hofsósi eftir Basalt arkítekta. Tekin í
notkun 2010. Mögnuð bygging þar sem sundlaugin
nánast snertir hafið og sjónsteyptir veggirnir flæða
meðfram umhverfinu.
Freyr Einarsson
Sundlaugin við Hofsós býður upp á einstaka upplifun.
Auðmýkt gagnvart umhverfinu og landslagi fjarðar, fjalla og
Drangeyjar einkenna verkið. Öll staðarmyndun er til
fyrirmyndar og upphefur fallegt útsýnið, en sjónrænt rennur
sundlaugarvatnið og sjórinn saman í eitt þegar horft er frá
laugarkerinu í átt til Drangeyjar. Bygging og landslag fléttast
saman í sannfærandi heild og þakið á byggingunni rennur
inn í bæjarumhverfið og myndar skemmtilegt útisvæði.
Sigrún Birgisdóttir
2. Háskólinn á Akureyri, skipulag og kennsluhúsnæði, 4. áfangi. Arkitektar: Gláma-Kím arkitektar (2010–2012)
Eldri og yngri byggingar mynda sannfærandi heild þar
sem mikil alúð er lögð í mótun rýmis og öll útfærsluatriði.
Sterk grunnhugmynd að skipulagi bygginga, samsett úr
minni einingum sem unnt var að byggja í hóflegum
áföngum.
Pétur H. Ármannsson
Háskólinn á Akureyri er byggður við og utan um eldri
byggingar að Sólborg í nokkrum áföngum. Einstaklega vel
hefur tekist til við flæði milli eldri og nýrri byggingarhluta
og að skapa umhverfi sem þjónar vel háskólasamfélaginu.
Sérstaða verksins felst í hversu vel hefur verið unnið með
að skapa heildrænt yfirbragð með vandaða útfærslu á
rýmum og efnisvali ásamt því að viðhalda vönduðum
vinnubrögðum á löngum framkvæmdatíma.
Sigrún Birgisdóttir
3. Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ – Arkitektar: Aðalheiður Atladóttir og
Falk Krüger hjá a2f Arkitektum (2014)
Fyrst og fremst athyglisverð bygging sem þjónar vel tilgangi sínum, tekur
mið af umhverfinu og er byggð með vistvæn sjónarmið að leiðarljósi. Skipulag
rýma og tengsl þeirra á milli bera vott um góðan skilning á starfseminni og
eru hvetjandi til nýbreytni og sveigjanleika í kennsluháttum. Efnisval er áhuga-
vert jafnt utan sem innan, hljóðvist er áberandi góð og eiga verk Bryndísar
Bolladóttur sem skreyta skólastofur og önnur rými sinn þátt í því.
Elísabet V. Ingvarsdóttir
4. Safnasafnið á Svalbarðsströnd
– Arkitekt: Ragnheiður Ragnarsdóttir
(2007)
Falleg heildarlausn þar sem gott
samspil er á milli tveggja eldri húsa
við nýja byggingu sem tengir þær
saman. Hún hefur að geyma óvænta
og áhugaverða þætti sem skapa
sjónræna upplifun með samspili við
gróinn garðinn í kring. Vandað verk
þar sem góður skilningur er á
starfsemi safnsins og verkefninu í
heild og vel unnið með samspil
einkarýmis og safns.
Elísabet V. Ingvarsdóttir
5. Kaffihúsið í Lystigarði Akureyrar– Arkitektar: Kollgáta– Logi Már Einars-
son og Ingólfur Freyr Guðmundsson (2012)
Bygging sem nær að tengjast viðkvæmu, sögulegu umhverfi með góðum
hlutföllum og vönduðu efnisvali. Heildarform hússins vísar til eldri byggðar á
Akureyri en um leið ber útfærsla þess samtíð sinni vitni.
Pétur H. Ármannsson
6. Háskólatorg – Arkitekt: Hornsteinar arkitektar í samvinnu við Teiknistofu
Ingimundar Sveinssonar (2007)
Velheppnuð bygging og skipulag sem virkar mjög vel, ekki síst fyrir
kúltúrinn í Háskólanum. Tengingin við gömlu byggingarnar er snjöll og býr til
skemmtilegt flæði sem sameinar allar deildir á torginu sem hefur valdið
straumhvörfum fyrir menningu Háskólans.
Freyr Einarsson
Álitsgjafar:
Elísabet V. Ingvarsdóttir - Hönnunarfræðingur/hönnuður og kennari
Pétur H. Ármannsson - Arkitekt
Freyr Einarsson - Sjónvarpsstjóri 365 miðla
Sigrún Birgisdóttir - Deildarforseti hönnunar- og arkitektúrdeildar Listaháskóla Íslands
Álfrún
Pálsdóttir
alfrun@frettabladid.is
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
MYND/AUÐUNN
MYND/AUÐUNN
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
MYND/RAFN SIGURÐSSON
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI