Fréttablaðið - 15.03.2014, Síða 46
| ATVINNA |
Staða aðstoðarskólastjóra við Öldutúnsskóla
er laus til umsóknar.
Öldutúnsskóli er heildstæður grunnskóli þar sem 530
nemendur stunda nám. Hornsteinar skólastarfsins eru
virðing, virkni, vellíðan.
Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem er tilbúinn
til að taka þátt í að stjórna og leiða gott, faglegt samstarf
og hafa að leiðarljósi að gott skólastarf má ávallt bæta.
Skólinn hefur í áraraðir haft á að skipa góðu fagfólki og
þar ríkir jákvæðni og góður starfsandi.
Mikil áhersla er lögð á samvinnu, teymisvinnu og skapandi
hugsun og starfsgleði. Í skólanum er unnið samkvæmt
SMT-skólafærni og hugmyndafræði Olweus. Eins er skólinn
á grænni grein og hefur flaggað Grænfánanum fjórum
sinnum, síðast í mars 2014.
Umsækjandi þarf að hafa leiðtogahæfileika og góða og
víðtæka þekkingu á skólastarfi og metnaðarfulla skólasýn.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Kennarapróf, kennslu- og stjórnunarreynsla
• Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar æskileg.
• Frumkvæði og samstarfsvilji.
• Góðir skipulagshæfileikar.
• Hæfni í mannlegum samskiptum.
• Reiðubúinn til að leita nýrra leiða í skólastarfi.
• Reynsla og/eða þekking á SMT-skólafærni og Olweus.
Umsókninni skal fylgja greinargóð skýrsla um störf
umsækjanda og menntun, stjórnunarreynslu og hver þau
verkefni sem hann hefur unnið við og varpað geta ljósi á
færni hans til að sinna stjórnunarstarfi.
Allar upplýsingar um stöðuna veitir Valdimar Víðisson,
skólastjóri í síma 555 1546/664 5898 eða í gegnum netfangið
valdimar.vidisson@oldutunsskoli.is
Umsókn ber að skila á Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar,
Linnetsstíg 3, 220 Hafnarfjörður.
Umsóknarfrestur er til 1. apríl 2014
Í samræmi við jafnréttisstefnu Hafnarfjarðar eru karlar jafnt
sem konur hvattir til að sækja um stöðuna. Laun og kjör eru
samkvæmt samningum KÍ og launanefndar sveitarfélaga.
Sviðsstjóri fræðsluþjónustu
Skólaskrifstofa Hafnarfjarðar
Aðstoðarskólastjóri
Laust er til umsóknar starf verkefnisstjóra á gæðadeild
Landspítala. Starfið er laust frá 1. maí 2014 eða eftir
samkomulagi.
Hlutverk gæða- og sýkingavarnardeildar er að veita
forystu, leiðsögn og umgjörð um öryggis- og gæðamál
spítalans í samvinnu við önnur svið og stuðla þannig að
bættri þjónustu við sjúklinga.
Verkefni gæða- og sýkingavarnardeildar eru m.a.; Gæði
klínískrar þjónustu, úttektir, eftirlit og umbætur, atvika-
skráning vegna sjúklinga, úrvinnsla, umbætur og eftirfylgni,
kvartanir og kærur, fagleg þróun sjúkraskrár, sýkingarvarnir
og efling opinnar gæða- og öryggismenningar.
Helstu verkefni og ábyrgð
» Umsjón og úrvinnsla gagna úr gagnagrunni atvikaskráninga
» Þátttaka í gæða- og þróunarverkefnum deildarinnar í
samvinnu við yfirlækni
» Þátttaka í vísindastarfi og gæðarannsóknum
Hæfnikröfur
» Menntun á sviði heilbrigðisvísinda sem nýtist í starfi
» Reynsla af gæðastjórnun og/eða verkefnastjórnun
» Góð tölvufærni og þekking á rafrænum kerfum Landspítala
» Góð færni í mannlegum samskiptum og öguð vinnubrögð
Umhyggja • Fagmennska • Öryggi • Framþróun
Laun samkvæmt samningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra. Sótt er um starfið
rafrænt á; www.landspitali.is, undir „laus störf“. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun
um ráðningu hefur verið tekin. Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar á spítalanum.
Nánari upplýsingar
» Umsóknarfrestur er til og með 31. mars 2014.
» Starfshlutfall er 100% eða eftir samkomulagi.
» Með umsókn skal leggja fram náms- og starfsferilskrá
ásamt gögnum um vísindavinnu og ritsmíðar. Jafnframt
skal leggja fram afrit af prófskírteinum og starfsleyfi.
» Viðtöl verða höfð við umsækjendur og byggist ákvörðun
um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum.
» Upplýsingar veitir Elísabet Benedikz, yfirlæknir, netfang
ebenedik@landspitali.is, sími 543 1000.
GÆÐA- OG
SÝKINGAVARNARDEILD
Verkefnisstjóri
Lyf- og skurðlækningasvið bjóða nýútskrifuðum hjúkrunar-
fræðingum upp á sérstakt starfsþróunarár.
Skipulag þess er með þeim hætti að hjúkrunarfræðingur
ræður sig í 80-100% starf á deild innan lyf- eða skurð-
lækningasviðs.
Samhliða starfinu er skipulögð fræðsla í formi fyrirlestra og
umræðufunda og einnig markviss stuðningur, handleiðsla
og ráðgjöf. Gera má ráð fyrir að um 10% af starfshlutfalli
viðkomandi sé helgað starfsþróun.
Starfsþróunarárið hefst formlega þann 1. október nk. og
lýkur í byrjun júní 2015. Áætlað er að 30 hjúkrunarfræðingar
verði teknir inn, 15 frá hvoru sviði.
Markmið starfsþróunarársins
» Auka nýliðun hjúkrunarfræðinga á Landspítala
» Styrkja og efla faglegar áherslur og fjölbreytni í hjúkrun
» Stuðla að auknum gæðum hjúkrunar
Umhyggja • Fagmennska • Öryggi • Framþróun
Laun samkvæmt samningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra. Sótt er um starfið
rafrænt á; www.landspitali.is, undir „laus störf“. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun
um ráðningu hefur verið tekin. Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar á spítalanum.
Nánari upplýsingar
» Umsóknarfrestur er til og með 7. apríl 2014.
» Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af
prófskírteinum og hjúkrunarleyfi.
» Ákvörðun um ráðningu í starfið byggist á innsendum
gögnum og viðtölum.
» Upplýsingar veita Þórdís Wium, mannauðsráðgjafi skurð-
lækningasviðs, thordisw@landspitali.is, sími 824 5625 og
Þórgunnur Hjaltadóttir mannauðsráðgjafi lyflækningasviðs,
torghjal@landspitali.is, sími 824 5625.
LYF- OG SKURÐLÆKNINGASVIÐ
Starfsþróunarár hjúkrunarfræðinga
Störf hjúkrunarfræðinga á heila-, tauga- og bæklunar-
skurðdeild eru laus til umsóknar. Störfin eru laus frá 1. maí
2014 eða samkvæmt samkomulagi.
Boðið verður upp á sérstakt starfsþróunarár fyrir ný-
útskrifaða hjúkrunarfræðinga næsta haust í formi fyrir-
lestra, umræðufunda, handleiðslu og ráðgjafar.
Helstu verkefni og ábyrgð
» Hjúkrunarfræðingur ákveður, skipuleggur og veitir
hjúkrunarmeðferð í samráði við skjólstæðinga og ber
ábyrgð á meðferð, samkvæmt starfslýsingu
Hæfnikröfur
» Íslenskt hjúkrunarleyfi
» Faglegur metnaður
» Góð samskiptahæfni
» Sjálfstæði í vinnubrögðum
Umhyggja • Fagmennska • Öryggi • Framþróun
Laun samkvæmt samningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra. Sótt er um starfið
rafrænt á; www.landspitali.is, undir „laus störf“. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun
um ráðningu hefur verið tekin. Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar á spítalanum.
Nánari upplýsingar
» Umsóknarfrestur er til og með 31. mars 2014.
» Starfshlutafall er 60-100% vaktavinna.
» Ákvörðun um ráðningu byggist á innsendum gögnum og
viðtölum.
» Upplýsingar veitir Dröfn Ágústsdóttir, deildarstjóri,
netfang drofna@landspitali.is, sími 824 5946.
SKURÐLÆKNINGASVIÐ
Hjúkrunarfræðingar
Forstöðumaður búsetukjarna fyrir geðfatlaða
Velferðarsvið Reykjavíkurborgar auglýsir til umsóknar stöðu forstöðumanns tveggja búsetukjarna fyrir geðfatlaða í hverfi
Árbæjar og Grafarholts. Um er að ræða 100% starf og heyrir forstöðumaðurinn undir framkvæmdastjóra Þjónustumiðstöðvar
Árbæjar og Grafarholts.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Sólveig Ingibjörg Reynisdóttir í síma 411 1200 eða með því að senda fyrirspurnir á
solveig.reynisdottir@reykjavik.is
Umsækjendur eru vinsamlega beðnir að sækja um starfið á heimasíðu Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is/storf
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Fagleg ábyrgð á þjónustunni út frá hugmyndafræði
Velferðarsviðs – VSL
• Fjárhagsleg ábyrgð á rekstri búsetukjarnanna
• Yfirumsjón með daglegri þjónustu
• Ber ábyrgð á gerð starfs- og rekstraráætlana
og framkvæmd þeirra
• Stjórnun starfsmannamála og ábyrgð á framkvæmd
starfsmannastefnu
• Samstarf við samstarfsaðila og hagsmunasamtök
• Þátttaka í þverfaglegum teymum á þjónustumiðstöðinni
• Þátttaka í mótun og uppbyggingu á skipulagi búsetunnar
Hæfniskröfur:
• Háskólamenntun á sviði heilbrigðis-, mennta eða
félagsvísinda, meistaranám æskilegt
• Þekking og reynsla af stjórnun
• Þekking og reynsla af vinnu með geðfötluðum
• Þekking og reynsla af vinnu með líkamlegar fatlanir
og/eða vímuefnavanda kostur
• Mikil færni í mannlegum samskiptum
• Sjálfstæði í vinnubrögðum
• Skipulagshæfileikar, frumkvæði, áhugi og metnaður
í starfi
• Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur
Reykjavíkurborgar
Vakin er athygli á stefnu Reykjavikurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir
borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Velferðarsvið
15. mars 2014 LAUGARDAGUR2