Fréttablaðið - 15.03.2014, Blaðsíða 52
| ATVINNA |
Tónlistarstjóri
Ástjarnarkirkju
Leitað er að fjölhæfum tónlistarmanni til þess að verða
tónlistarstjóri Ástjarnarkirkju í Hafnarfirði í fullu starfi.
Ástjarnarsókn nær yfir Áslands, Ása og Vallahverfi og er
íbúafjöldi þeirra um 7000 manns. Helgihald fer fram í kapellu
safnaðarins á framtíðar kirkjulóð að Kirkjuvöllum 1. Leitað er að
einstaklingi með reynslu af kirkjustarfi, frumkvæði og hugsjón
fyrir nýsköpun helgihalds auk hefðbundinnar kirkjutónlistar.
Starfsskyldur eru m.a.
• tónlistarflutningur við vikulegt helgihald
• æfing og efling kirkjukórs og barnakórs
• stuðningur við barna- og æskulýðsstarf
Tónlistarstjórinn starfar náið með sóknarpresti að mótun helgi-
halds og safnaðarstarfs komandi ára með sérstakri áherslu á
barna- og unglingastarf.
Nánari upplýsingar veita séra Kjartan Jónsson sóknarprestur,
kjartan.jonsson@kirkjan.is og Geir Jónsson formaður
sóknarnefndar geirj@ms.is.
Umsóknir ásamt ferilskrá skal senda til Ástjarnarkirkju, Kirkju-
völlum 1, 221 Hafnarfirði, Merkt “Tónlistastjóri Ástjarnarkirkju”
fyrir 1. apríl n.k.
Forstöðusjúkraþjálfari
Laus er til umsóknar staða forstöðusjúkraþjálfara á
Reykjalundi endurhæfingarmiðstöð SÍBS frá 1. maí
2014 eða samkvæmt nánara samkomulagi. Um er að
ræða 100% stöðu við stjórnun og klínískt starf.
Forstöðusjúkraþjálfari gegnir leiðandi hlutverki í sínum
faghóp um fagleg málefni, framþróun og endurmenntun.
Hann annast daglegan rekstur sjúkraþjálfunardeildarinnar
og leiðir skipulagningu starfa innan meðferðarteyma og
þvert á meðferðarteymi þar sem það á við.
Hæfniskröfur eru:
• Íslensk löggilding sem sjúkraþjálfari
• Víðtæk reynsla af klínisku starfi og stjórnun
• Leiðtogahæfileikar, jákvætt viðmót og góð hæfni
í mannlegum samskiptum
• Brennandi áhugi á öllum þáttum sjúkraþjálfunar
Umsókn skal fylgja staðfestar upplýsingar um nám
og fyrri störf ásamt stuttri lýsingu á því hvers vegna
sótt er um stöðuna.
Umsóknarfrestur er til 29. mars 2014.
Umsókn skal skilað til Guðbjargar Gunnarsdóttur,
mannauðsstjóra gudbjorg@reykjalundur.is
Upplýsingar um starfið veitir Sigrún Benediktsdóttir,
forstöðusjúkraþjálfari sigrunben@reykjalundur.is
í síma 585 2160 og Guðbjörg í síma 585 2143
Reykjalundur, endurhæfingarmiðstöð SÍBS.
Sími 585 2000 – www.reykjalundur.is
Vegna aukinna verkefna óskum við eftir að ráða
sölufulltrúa / ráðgjafa sem er til í að verða einn af
okkar úrvals sérfræðingum í þeim raf- og rafeinda-
tækjum sem fyrirtækið selur.
Starfið felst í ráðgjöf, sölu og þjónustu raf- og
rafeindatækja, sbr. aðgangskerfa (fyrir hótel, fyrirtæki
og einstaklinga), dyrasíma, rafsegla, rafeindastýrðra
læsinga ofl.
Vélar & verkfæri ehf. var stofnað árið 1942 en á sér
sögu aftur til ársins 1919. Fyrirtækið er rótgróið og
traust fjölskyldufyrirtæki sem hefur verið Framúr-
skarandi fyrirtæki í 4 ár í röð. Fyrirtækið selur
hágæðavörur frá leiðandi framleiðendum í heiminum
sbr. Assa, Abloy, Chamberlain / LiftMaster, Dorma, Eff
Eff, Siemens ofl.
Hæfniskröfur:
• Sveinspróf á sviði rafeindavirkjunar
eða rafvirkjunar er æskilegt
• Gott vald á ensku. Vald á Norðurlandamáli
(sænsku, dönsku eða norsku) er kostur
• Góð tölvukunnátta
• Geta til að vinna sjálfstætt og skipulega
undir álagi, þjónustulund, góð framkoma,
stundvísi og frumkvæði.
• Reynsla af sambærilegum störfum er kostur
• Hreint sakavottorð
Umsóknir með ferilskrá sendist á
starf@vv.is fyrir 25. mars
Ráðgjafi, opinn fyrir tækni
Þjónustufulltrúi
í þjónustuveri
Orkuveita Reykjavíkur auglýsir eftir
starfskrafti með ríkan þjónustuvilja.
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/O
R
K
6
81
83
0
3/
14
Orkuveita Reykjavíkur óskar eftir öflugum liðsmanni til starfa í almennt
þjónustuver fyrirtækisins. Þjónustuver Orkuveitunnar þjónustar viðskiptavini
Orkuveitunnar, Orku náttúrunnar, Gagnaveitu Reykjavíkur og Hitaveitu
Mosfellsbæjar.
Þjónustuverið skiptist í almennt þjónustuver og tæknilegt þjónustuver.
Starfs- og ábyrgðarsvið:
• Ráðgjöf og úrlausn erinda viðskiptavina
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Stúdentspróf og/eða sambærilegt nám/reynsla
• Þjónustuvilji og færni í mannlegum samskiptum
• Tölvufærni
• Góð enskukunnátta
• Kostur að viðkomandi sé pólsku- eða rússneskumælandi
• Metnaður, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
Orkuveitan er fjölbreyttur og
lifandi vinnustaður fólks með
mikla þekkingu. Fyrirtækið
hefur að markmiði að vera í
fremstu röð hvað snertir
öryggi og vinnuumhverfi og
möguleika starfsfólks til að
samræma vinnu og
fjölskylduábyrgð.
Umsóknarfrestur er til og með
26. mars 2014.
Umsjón með ráðningunni
hefur Birna Bragadóttir,
starfsþróunarstjóri OR.
Við hvetjum jafnt konur sem
karla til að sækja um.
Umsókn um starfið þarf að fylgja
ítarleg starfsferilsskrá og
kynningarbréf þar sem gerð er grein
fyrir ástæðu umsóknar og
rökstuðningur fyrir hæfni í starfið.
Sótt er um á: www.or.is
15. mars 2014 LAUGARDAGUR8