Fréttablaðið - 15.03.2014, Blaðsíða 80
15. mars 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN KRAKKAR | 48
Brandarar
Teikningar og texti: Bragi Halldórsson
87
„Þetta líst mér vel á,“ sagði Kata. „Epli! Nú fær maður eitthvað almennilegt
að borða.“ „Því miður Kata mín,“ sagði Lísaloppa. „Þú mátt borða þau ef þú
getur leyst þrautina,“ sagði Konráð. „Heyrið þið mig nú,“ sagði Kata ergileg.
ég segi bara svona,“ sagði Konráð. „Allt í lagi,“ sagði Kata. „En þá fæ ég
Lísaloppa. „Mín vegna líka,“ bætti Konráð við. „Allt í lagi, hver er þrautin,“
spurði Kata „Þrautin er þessi,“ sagði Lísaloppa. „Dragðu þrjár línur á milli
eplanna þannig að til verði sjö reitir og eitt epli í hverjum þeirra.“
Getur þú hjálpað Kötu að leysa þessa þraut?
Villi litli kom hlaupandi til mömmu sinnar og sagði óðamála: „Mamma,
mamma! Ég felldi stóran stiga sem stóð upp við húsgaflinn.“
„Af hverju ertu að segja mér það?“ spurði mamma. „Farðu heldur og
láttu hann pabba þinn vita af því.“
„Pabbi veit af því. Hann hangir í þakrennunni.“
„Mamma! Get ég fengið lítinn bróður?“
„Nei, Dísa mín, af hverju biður þú mig um það?“
„Æ, það er svo tilbreytingarlaust til lengdar að stríða kettinum.“
„Pabbi! Hvar er Eiffelturninn?“
„Það veit ég ekki, sonur sæll. En spurðu hana mömmu þína, það var
hún sem tók til síðast.“
Sigrún, af hverju skrifaðir þú
bókina Kroppurinn er krafta-
verk? „Til að hjálpa börnum að
líða vel í líkamanum sínum og
bera virðingu hvert fyrir öðru
óháð því hvernig þau líta út.“
Finnst þér of lítil kennsla um
líkamann í skólanum? „Við
þurfum að gera meira af því að
ræða um fjölbreytileikann. Við
erum öll mismunandi í útliti en
eins og Pollapönkarar segja, þá
erum við eins inn við beinið, og
eigum öll rétt á því að það sé
komið vel fram við okkur. Það
er enginn líkami betri en annar,
við erum öll frábær eins og við
erum.“
Hvað þurfum við að gera til að
kroppnum okkar líði sem best?
„Hugsa fallega til hans og passa
vel upp á hann. Passa að hann
fái nóga næringu, hreyfingu
og hvíld og bera virðingu fyrir
honum eins og hann er.“
Hvernig sendir líkaminn okkur
skilaboð? „Hann sendir okkur
skilaboð í gegnum það hvernig
okkur líður. Allar kenndir líkam-
ans eru skilaboð til okkar, eins
og þegar við meiðum okkur,
þá finnum við sársauka. Þegar
við þurfum mat þá verðum við
svöng og þegar við þurfum hvíld
verðum við þreytt.“
Hvað er skemmtilegast við
líkamann? „Líkaminn er frá-
bært fyrirbæri sem getur gert
óteljandi skemmtilega hluti. Allt
sem krakkar gera, gera þau með
líkamanum sínum, eins og að
teikna, hjóla og fara í kollhnís.
Það skemmtilegasta er samt
örugglega að hlæja.“
Hvað eigum við að
segja við sjálf
okkur þegar
við stöndum
fyrir fram-
an spegil-
inn? „Að við
séum ein-
stök.“
Þú sendir börnunum þínum,
Silju, Rökkva og Pétri, kveðju í
bókinni. Hvað eru þau gömul?
„Þau eru þriggja, níu og þrettán
ára.“
Hjálpuðu þau þér með bókina?
„Já, þau hjálpuðu mér mikið
með að ákveða hvað ætti að
vera í bókinni og hvað ekki.
Það er mjög gott að ráð-
færa sig við krakka svo
maður geri ekki ein-
hverja vitleysu!“
Við erum öll frábær
Sigrún Daníelsdóttir sálfræðingur segir að við eigum öll að bera virðingu fyrir
líkama okkar og líka annarra. Hún hefur skrifað fallega bók um það, Kroppurinn
er kraft averk, sem Björk Bjarkadóttir teiknaði fl ottar myndir í.
SÁLFRÆÐINGURINN „Það er mjög
gott að ráðfæra sig við krakka svo
maður geri ekki einhverja vitleysu,“
segir Sigrún. MYND/ERNIR
ÚR: KROPPURINN ER KRAFTAVERK „Hugsaðu þér ef mannfólkið væri blóm. Væri ekki leiðinlegt ef öll blómin í heiminum
væru eins?“ spyr Sigrún í bókinni. MYND/BJÖRK BJARKADÓTTIR