Fréttablaðið - 15.03.2014, Page 84
15. mars 2014 LAUGARDAGUR| TÍMAMÓT | 52TÍMAMÓT
Elskuleg móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
STEINUNN J. STEINSEN
lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð laugardaginn 1. mars. Útförin
fer fram frá Kópavogskirkju fimmtudaginn 20. mars kl. 13.00.
Rúnar Steinsen Guðrún Guðmundsdóttir
Steinn Steinsen Ásta María Björnsdóttir
Anna Steinsen Sigurður Már Einarsson
Ragnheiður Steinsen
Rakel Steinsen
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir færum við öllum
sem sýndu okkur hlýhug og samúð við
andlát og útför okkar kæru
HLÍFAR ERLENDSDÓTTUR
Hátúni 10a, Reykjavík.
Sérstakar þakkir sendum við því starfsfólki í heimahlynningu sem
annaðist hana með hlýju, virðingu og vináttu.
Jóna María Eiríksdóttir Reynir Þorsteinsson
Kristján Hjaltested
Gerður, Frank og börn.
KARL JÓHANN GUÐMUNDSSON
leikari, þýðandi og orðsnillingur,
lést aðfaranótt 3. mars á dvalarheimilinu
Grund. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni
mánudaginn 17. mars, kl. 15.00.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Soffía Lára Karlsdóttir
Sigríður Helga Karlsdóttir Garðar Hansen
Steingerður Sigurjónsdóttir
Elskuleg móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
ÞÓRA SIGURÐARDÓTTIR
Lækjasmára 8, Kópavogi,
lést á Hrafnistu, Kópavogi, 27. febrúar sl.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Margrét Valsdóttir
Erla Valsdóttir Jón H. Karlsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Faðir okkar og bróðir,
GYLFI GUNNARSSON
þyrluflugmaður,
lést 19. október síðastliðinn í Sebring á
Flórída eftir skammvinn veikindi. Útförin fór
fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Fyrir hönd aðstandenda,
Sigrún Gylfadóttir
Hanne Sundt
Gerður Gunnarsdóttir
Gauti Gunnarsson
Sigurður Ólafur Gunnarsson
og fjölskyldur.
MERKISATBURÐIR
1493 Kristófer Kólumbus kemur til baka til Spánar úr fyrstu
Ameríkuferð sinni.
1905 Bæjarsíminn í Reykjavík er formlega opnaður. Leikið er á
fiðlu í símann af tilefninu.
1953 Þjóðvarnarflokkur Íslands er stofnaður. Flokkurinn starf-
ar í áratug.
1956 Söngleikurinn My Fair Lady er frumsýndur á Broadway.
1961 Suður-Afríka segir sig úr Breska samveldinu.
1964 Leikkonan Elísabeth Taylor og leikarinn Richard Burton
ganga í hjónaband.
1983 Litlu munar að farþegaþota frá Arnarflugi og herflugvél
rekist á rétt við Vestmannaeyjar.
2006 Bandarísk stjórnvöld tilkynna ríkisstjórn Íslands um þau
áform sín að kalla allar orrustuþotur sínar og björgunarþyrlur
heim frá Keflavík.
Þegar nokkrir fyrrverandi félagar hins
rómverska herforingja Júlíusar Sesars
óttuðust að hann ætlaði sér að afnema
lýðveldið og skipa sjálfan sig konung
lögðu þeir á ráðin um að myrða hann.
Fyrirsátin átti sér stað á þessum degi
44 f.Kr. þegar Sesar var á leið inn í
samkomuhús öldunga ráðsins en þá var
hann stunginn til bana af sínum eigin
þingmönnum.
Allt að sextíu háttsettir menn tóku þátt
í samsærinu en á meðal þeirra var Brút-
us, sonur hjákonu Sesars.
Segir sagan að þegar Sesar sá Brútus
meðal samsærismanna hafi hann mælt:
„Einnig þú, barn?“ Samkvæmt öðrum
heimildum féll hann án þess að mæla
orð. Shakespeare leggur Sesari lokaorðin
ódauðlegu í munn: „Et tu, Brute?“ sem
er latína og þýða má: „Þú líka, Brútus?“
ÞETTA GERÐIRT 44 F.KR.
Fyrirsát Júlíusar Sesars
LÍFSSTÍLL AÐ VERA SKÁTI Júlíus Aðalsteinsson, verkefnastjóri Bandalags íslenskra skáta.
„Þetta er svolítið merkilegt að starfs-
maður í frjálsum félagasamtökum nái
tuttugu ára starfsaldri og því vildum
við fagna því með óvæntu teiti þar
sem samstarfsmenn, sjálfboðaliðar
og aðrir sem hafa unnið með honum
í gegnum tíðina mættu og gerðu sér
glaðan dag,“ segir Dagbjört Brynjars-
dóttir, upplýsingafulltrúi Bandalags
íslenskra skáta.
Júlíus Aðalsteinsson, félagsmála-
stjóri Bandalags íslenska skáta, hefur
unnið fyrir æsku landsins síðastlið-
in tuttugu ár. Starf hans hefur verið
margþætt í gegnum árin en hann
hefur unnið að stuðningi við skáta-
foringja, aðstoðað við að stofna ný
skátafélög í öðrum sveitarfélögum og
sinnt öllum tengslum Bandalagsins við
skátafélögin í landinu ásamt öðru.
Æskulýðsstarf skáta hefur verið
starfrækt á Íslandi í hundrað ár en
var fyrst stofnað í Bretlandi árið 1907.
Dagbjört segir að markmið starfsins
snúist um að þroska börn og unglinga
til að verða sjálfstæðir einstaklingar
með því að prófa og upplifa aðstæður
sjálf.
„Þetta á alltaf að vera skemmtilegt
og spennandi félagsstarf með áskorun-
um til að prófa eitthvað nýtt. Við setj-
um okkur markmið og gerum okkur
grein fyrir því að við löbbum ekki á
Everest á einum degi. Náttúrunni
berum við virðingu fyrir og skiljum
ekki eftir okkur spor.“ Dagný segir
fjöldatölur skáta um allt land fremur
stöðugar en á sumrin sé mikil aðsókn
vegna ýmissa sumarnámskeiða. „Að
byrja í skátunum verður í raun eins
konar lífsstíll fyrir lífstíð,“ segir hún.
marinmanda@frettabladid.is
Skáti fyrir lífstíð
Júlíus Aðalsteinsson, félagsmálastjóri Bandalags íslenskra skáta, var heiðraður með teiti í
gær fyrir tuttugu ára starf hjá skátunum.
Ástkær faðir minn, afi, langafi og bróðir,
GUÐMUNDUR HALLDÓR SNÆHÓLM
lést þann 28. febrúar á Vífilsstöðum. Útförin
hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Við þökkum auðsýnda samúð og vinarhug.
Hrefna Gróa Snæhólm Ómar Ólafsson
Sunneva Jónsdóttir Snæhólm Stefán Halldór Fannbergsson
Guðmundur Ómarsson
Óttar Þór Ómarsson Snæhólm
Tryggvi Ómarsson
og langafabörn,
Arnar Freyr Stefánsson
Kristófer Jón Stefánsson
Hrefna Karen Stefánsdóttir
Edda Snæhólm