Fréttablaðið - 15.03.2014, Síða 93
LAUGARDAGUR 15. mars 2014 | MENNING | 61
WWW.OPERA.IS
ÓPERUKYNNING FYRIR SÝNINGU: Höfundar óperunnar kynna verkið fyrir
sýningu í boði Vinafélags Íslensku óperunnar kl. 19:15 hvert sýningarkvöld.
15. MARS KL. 20 - UPPSELT
16. MARS KL. 20 - UPPSELT
22. MARS KL. 20 - UPPSELT
28. MARS KL. 20 - NÝ SÝNING
29. MARS KL. 20 - UPPSELT
6. APRÍL KL. 20 - LAUS SÆTI
MIÐASALA Í HÖRPU OG Á HARPA.IS
MIÐASÖLUSÍMI 528 5050
Ragnheiður – ópera eftir
Gunnar Þórðarson
og Friðrik Erlingsson
NÝ SÝNING 28. MARS KOMIN Í SÖLU!
Úr ummælum gagnrýnenda:
Framúrskarandi sviðsetning stórfenglegrar óperu
… Gæsahúð hvað eftir annað … Bravissimo
– Jónas Sen, Fréttablaðið
Stórkostlegt
– Dagný Kristjáns, Djöflaeyjan
Tær snilld
– Hugrún Halldórsdóttir, Stöð 2
Söguleg stund
– Silja Aðalsteins, TMM
Ótrúleg upplifun...frábær sýning... stórkostleg tónlist
– Lísa Pálsdóttir, RÚV
Glæsileg frumraun … fagmennska, fágun og öryggi
– Hlín Agnars, DV
Ummæli Óperugesta á netmiðlum:
Stórkostlegt kvöld...fallegasta og stílhreinasta
óperusýning sem ég hef séð á Íslandi í langan tíma
– Kristinn Sigmundsson, óperusöngvari
Sannkallaður stórviðburður í íslenskri menningarsögu
– Jakob Frímann Magnússon, tónlistarmaður
Magnað meistaraverk –tónlistarsögulegur viðburður
– Eiður S. Guðnason, sendiherra
6 stjörnu sýning, sem enginn má missa af
… STÓRKOSTLEGT!!!
–Gerrit Schuil, píanóleikari
ÞÓRA EINARSDÓTTIR
VIÐAR GUNNARSSON
ELMAR GILBERTSSON
JÓHANN SMÁRI SÆVARSSON
ELSA WAAGE
GUÐRÚN JÓHANNA ÓLAFSDÓTTIR
BERGÞÓR PÁLSSON
ÁGÚST ÓLAFSSON
BJÖRN INGIBERG JÓNSSON
KÓR OG HLJÓMSVEIT
ÍSLENSKU ÓPERUNNAR
„Ég þarf að slökkva á útvarpinu.
Það má náttúrlega ekki fréttast að
virðulegur organisti sé að hlusta
á popp á Bylgjunni,“ segir Kári
Þormar dómorganisti hlæjandi
þegar hringt er í hann vegna tón-
leikanna Siðlausra söngva sem
hann stjórnar tvívegis í Lang-
holtskirkju á morgun. Þar verður
flutt tónverk Carls Orff, Carmina
Burana, sem Kári segir reyndar
klassíska popptónlist og fjalla um
fallvaltleika gæfunnar.
„Þetta er tilraunaverkefni,“
segir Kári. „Við erum með Dóm-
kórinn í Reykjavík og kór Mennta-
skólans í Reykjavík, um 45 manns
í hvorum hópi, og þriðja kynslóðin
er drengir úr Skólakór Kársness,“
lýsir hann og segir hafa heppn-
ast vel að steypa þessum kórum
saman. Það sé ekkert sjálfgefið.
Alls taka yfir 100 manns þátt í
flutningnum. Með kórunum syngja
einsöngvararnir Hallveig Rúnars-
dóttir sópran, Þorbjörn Rúnars-
son tenór og Jón Svavar Jósefsson
bassa baritón og undirleikur er í
höndum píanóleikaranna Helgu
Bryndísar Magnúsdóttur og Krist-
ins Arnar Kristinssonar auk sex
manna slagverkssveitar.
Kári er stjórnandi Dómkórsins
og MR-kórsins og segir forna hefð
fyrir samstarfi þeirra. „Pétur Guð-
johnsen, fyrsti dómorganistinn,
sem fæddist fyrir um 200 árum,
var fyrsti söngkennari Lærða skól-
ans, forvera MR. Martin Hunger
dómorgainsti endurreisti svo kór
MR á sínum tíma og tengir í raun
þessa þrjá kóra saman því hann
studdi líka vel við Kársneskór-
inn sem konan hans, hún Þórunn
Björnsdóttir, stjórnar.“
gun@frettabladid.is
Carmina
Burana
klassískt
popp
Dómkórinn og kór Menntaskólans í Reykjavík, ásamt
drengjum úr kór Kársnesskóla, einsöngvurum og
undirleikurum fl ytja Carmina Burana í Langholts-
kirkju á morgun, sunnudag, klukkan 17 og 20.
KÁTUR KÁRI Það var létt yfir æfingunni sem ljósmyndarinn leit inn á í Langholts-
kirkju. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Leiksýningin Stóru börnin eftir
Lilju Sigurðardóttur, sem frum-
sýnd var 2. nóvember síðast-
liðinn, snýr aftur í Tjarnarbíó í
mars vegna mikillar eftirspurn-
ar. Fjórum aukasýningum hefur
verið bætt við, nánar tiltekið 20.,
21., 22. og 23. mars.
Sýningin hlaut mikið lof gagn-
rýnenda og var meðal annars
valin leiksýning haustsins af
Símoni Birgissyni í Djöflaeyj-
unni. Þá gaf Jón Viðar Jóns-
son sýningunni fjórar stjörnur
í Fréttablaðinu og valdi Rúnar
Guðbrandsson leikstjóra ársins.
Í uppsetningu Lab Loka fer
úrvalslið leikara með hlutverkin
undir stjórn Rúnars Guðbrands-
sonar, það er að segja þau Lilja
Guðrún Þorvaldsdóttir, Árni
Pétur Guðjónsson, Birna Haf-
stein og Stefán Hallur Stefáns-
son.
Aðstandendur sýningarinnar
vilja undirstrika að þar sem kyn-
ferðislegur undirtónn er í verk-
inu telst það ekki við hæfi barna.
Stóru börnin snúa aft ur
Sýning Lab Loka á Stóru börnunum eft ir Lilju
Sigurðardóttur verður sýnd aft ur í Tjarnarbíói.
HÖFUNDUR-
INN Stóru
börnin eru
fyrsta leikrit
Lilju Sigurðar-
dóttur.
FRÉTTABLAÐIÐ/
STEFÁN