Fréttablaðið - 15.03.2014, Blaðsíða 94
15. mars 2014 LAUGARDAGUR| MENNING | 62
SUNNUDAG
LAUGARDAG
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
LAUGARDAGUR 15. MARS 2014
Sýningar
14.00 Opnun málverkasýningar Erlu
Þorleifsdóttur og Stefáns Bjarnasonar
í anddyri Grensáskirkju, í dag frá 14.00
til 17.00.
15.00 Listamannaspjall í tengslum
við sýninguna Hljómfall litar og línu,
Hafnarhúsi. Dodda Maggý ræðir við
gesti um verk sitt DeCore (aurae) á
sýningunni.
Bókmenntir
10.30 Árleg barna- og unglingabókaráð-
stefna í Menningarmiðstöðinni Gerðu-
bergi í dag kl. 10.30 til 13.30. Aðgangur
ókeypis.
Tónlist
16.00 Perlur og pilsaþytur er yfirskrift
tónleika sem Kvennakór Kópavogs
stendur fyrir í Kaldalónssal í Hörpu
þann 15. mars. Fluttar verða léttar og
sígildar dægurperlur frá miðri síðustu
öld sem voru fyrst fluttar af vinsælum
dægurlagastjörnum þess tíma. Stjórn-
andi kórsins er Gróa Hreinsdóttir.
Undirleikur er í höndum Árna Heiðars
Karlssonar á píanó og Birgis Bragasonar
á bassa. Haldnir verða tvennir tónleikar
kl. 16.00 og kl. 20.00. Miðaverð kr.
3.000.
16.00 Kvennakórinn Vox feminae flytur
íslensk sönglög og Vínarljóð í Salnum
í Kópavogi laugardaginn 15. mars kl.
16.00 Einsöngvari með kórnum er
Sigrún Pálmadóttir sópran, Kristján Karl
Bragason leikur á píanó og Hafdís Vig-
fúsdóttir á flautu. Listrænn stjórnandi
er Margrét Jóhanna Pálmadóttir.
20.00 Perlur og pilsaþytur er yfirskrift
tónleika sem Kvennakór Kópavogs
stendur fyrir í Kaldalónssal í Hörpu
þann 15. mars. Fluttar verða léttar og
sígildar dægurperlur frá miðri síðustu
öld sem voru fyrst fluttar af vinsælum
dægurlagastjörnum þess tíma. Stjórn-
andi kórsins er Gróa Hreinsdóttir.
Undirleikur er í höndum Árna Heiðars
Karlssonar á píanó og Birgis Bragasonar
á bassa. Haldnir verða tvennir tónleikar
kl. 16.00 og kl. 20.00. Miðaverð kr.
3.000.
22.00 SúEllen heldur áfram að fylgja
eftir plötunni Fram til fortíðar sem
kom út síðasta sumar. Hljómsveitin
hélt vel heppnaða tónleika á Græna
hattinum síðasta haust og ætlar nú
að heimsækja okkur aftur. Dagskráin
samanstendur af bestu lögum sveitar-
innar frá 1987-2004 og að sjálfsögðu
lögum af nýju plötunni ásamt einhverju
óvæntu. Tónleikarnir fara fram á Græna
hattinum Akureyri og hefjast klukkan
22.00.
22.00 Ellen Kristjánsdóttir, Eyþór Gunn-
arsson og dætur þeirra skemmta á Café
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
SUNNUDAGUR 16. MARS 2014
Félagsvist
14.00 Félagsvist í Breiðfirðingabúð
sunnudaginn 16. mars kl. 14. Allir
velkomnir.
Sýningar
15.00 Listamaðurinn Berglind Jóna
Hlynsdóttir spjallar við gesti um
sýninguna en hún hefur m.a. í verkum
sínum afbakað pólitískar táknmyndir
og vörumerki, til að mynda lógó föllnu
íslensku bankana. Hún veltir fyrir sér
rétti fólks til að takast á við táknmyndir
fyrirtækja í umhverfinu. Gestaspjallið
hefst kl. 15 og fer fram á íslensku.
Aðgangur er 1.300 kr. Sýningin fer
fram í Listasafni Reykjavíkur á Kjarvals-
stöðum.
15.00 Sunnudaginn 16. mars kl. 15
tekur Haraldur Jónsson þátt í leiðsögn
og ræðir við gesti um verk sín á
sýningunni H N I T í Hafnarborg. Í
framhaldi af leiðsögninni verður fluttur
gjörningurinn L I T sem Haraldur hefur
unnið í tengslum við sýninguna. Sunnu-
dagur 16. mars er jafnframt lokadagur
sýningarinnar, en sýningin er opin frá
12-17 alla daga fram að sýningarlokum.
20.00 Síðasta sýning á Ómar æskunnar
með Ómari Ragnarssyni verður í Gafl-
araleikhúsinu sunnudaginn 16. mars kl.
20.00. Sýningin er bráðfyndin úttekt
Ómars á æskuárum sínum, Reykjavík
stríðs- og eftirstríðsára, og alveg ein-
staklega skemmtilegum og sérkenni-
legum einstaklingum sem höfðu áhrif
á hann í æsku, og mótuðu viðfangsefni
hans, fólk og fyrirbæri, síðar meir. Þessi
kvöldstund með Ómari er einstök sýn
á líf þessa ástmögurs þjóðarinnar og
skemmtun á heimsmælikvarða.
Kvikmyndir
15.00 Kl. 15 verður Spaðadrottningin
(Pikovaja dama), ópera Tsjaikovskijs
sýnd í MÍR, Hverfisgötu 105. Listamenn
Kírov-óperunnar í Pétursborg, einsöngv-
arar, hljómsveit, dansarar og kór, flytja
undir stjórn Valeríjs Gergiev. Myndin
tekin á sýningu óperunnar í Marinskij-
leikhúsinu um 1990. Óperan er byggð á
skáldverki rússneska þjóðskáldsins Alex-
anders Púshkin. Aðgangur er ókeypis.
Kynningar
17.00 Andrea Jónsdóttir leikur og
kynnir lög af hljómplötum á Ob-La-Dí-
Ob-La-Da, Frakkastíg 8, sunnudaginn
16. mars kl. 17.00.
Tónlist
12.00 Auður Gunnarsdóttir, sópran, og
Ragnheiður Steindórsdóttir, leikkona.
Á efnisskrá tónleikanna eru verk eftir
Jón Ásgeirsson, Atla Heimi Sveinsson,
Robert Schumann, Johannes Brahms,
Serge Rachmaninoff og Franz Liszt.
Tónleikaröðin er skipulögð af Jónasi
Ingimundarsyni píanóleikara sem minn-
ist þess á árinu að fimmtíu ár eru liðin
frá því hann hóf þátttöku í opinberu
tónlistarlífi. Miðaverð er 2.900 krónur
og fara þeir fram í Salnum í Kópavogi.
12.15 Kammersveit Reykjavíkur, sem
í ár fagnar 40 ára afmæli sínu, flytur
Schubert-oktettinn á hádegistónleikum
í Kaldalóni sunnudaginn 16. mars kl.
12.15. Tónleikarnir taka um klukku-
stund. Miðasala á harpa.is, almennt
miðaverð 2.000 krónur en 1.000 fyrir
nema, eldri borgara og atvinnulausa.
14.00 Danski bassaleikarinn Richard
Andersson flutti til Íslands síðastliðið
haust. Hann hefur tekið drjúgan þátt í
starfsemi djassins á Íslandi og starfað
með fjölmörgum íslenskum djassleik-
urum. Í september síðastliðnum kom
hann á fót vikulegum djasskvöldum á
Hressó á sunnudagskvöldum þar sem
rjóminn af íslenskum djassleikurum
hefur spilað. Má þar nefna Eyþór
Gunnarsson, Scott McLemore, Snorra
Sigurðsson, Óskar Guðjónssson, Hilmar
Jensson, Matthías Hemstock, Einar
Scheving, Agnar Má Magnússon, Jón Pál
og Jóel Pálsson. Tónleikarnir fara fram í
Hljóðbergi í Hannesarholti. Miðaverð er
2.000 krónur.
16.00 Sinfóníuhljómsveit Norðurlands
býður upp á lifandi tónlist við kvik-
myndina Innflytjandinn eftir Chaplin. Í
„Bráðskemmtileg og sterk sýning þar sem
leikarar fara á kostum í vel skrifuðu verki.”
F.B. - F.bl.
„Galsafengin og frumleg ádeila”
H.A. - DV
,,Framvindan er fáránleg, fyndin og áhugaverð. …
Bláskjár er verk sem heldur áhorfendum á tánum.”
S.G.V. - M.bl.
,,Frábærlega skemmtilegt
og skrifað af miklum skáldskap”
G.S.E. - Djöflaeyjan.
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Allra síðustu sýningar!
lau 15/3 kl. 20 örfá sæti
Borgarleikhúsið
sun 16/3 kl. 20 lokasýning
Óskabörn
ógæfunnar
LEIKHÚS ★★★ ★★
Borgarleikhúsið
Leikarar: Þorvaldur Davíð Kristjáns-
son, Bergur Þór Ingólfsson, Bryn-
hildur Guðjónsdóttir, Jóhanna Vigdís
Arnardóttir, Nína Dögg Filippusdóttir,
Jóhann Sigurðarson, Arnar Dan
Kristjánsson, Sigurður Þór Óskarsson
og Maríanna Clara Lúthersdóttir.
Jakob Bjarnar Grétarsson
Sjónræn og vel gerð
sýning, vel leikin en sagan
stendur ekki vel undir svo
langri sýningu– sem hlýtur
að skrifast á leikgerðina.
Furðulegt
háttalag hunds
um nótt