Fréttablaðið - 15.03.2014, Page 104

Fréttablaðið - 15.03.2014, Page 104
15. mars 2014 LAUGARDAGUR| SPORT | 72 Tilbúinn í viðræður við þýska landsliðið „Ég var í viðræðum við þýska sambandið áður en það réði Martin þannig það er ekkert skrítið að nafnið mitt hafi komið upp,“ segir Dagur Sigurðsson við Fréttablaðið um þann orðróm að Degi verði á ný boðið starf sem lands- liðsþjálfari Þýskalands í sumar. Það er vægast sagt heitt undir Martin Heuberger, þjálfara liðsins, sem mistókst að koma því á EM í Danmörku. Þjóðverjar voru frekar óheppnir í drættinum í umspilsleikina fyrir HM en þar mætir það Póllandi sem þykir sigurstranglegra. Komist Þýskaland ekki á HM þykir næsta víst að Heuberger verði rekinn og hefur Dagur verið orðaður við liðið á ný. „Ég myndi ekkert slá það frá mér og myndi alveg setjast niður með þeim. Ég myndi samt ekkert leggjast flatur fyrir þá,“ segir Dagur, sem á eitt ár eftir af samningi sínum við Füchse Berlín. Hann er hvergi banginn við þýska starfið þó þjálfarar fárra handboltalið séu undir meiri pressu. „Þetta virðist ekki vera skemmtilegasta starf í heimi en aftur á móti væri þetta mik- il áskorun. Þjóðverjar eru mikil handboltaþjóð og myndi alveg kitla að reyna hafa einhver áhrif,“ segir Dagur, sem áður stýrði austurríska landsliðinu samhliða því að þjálfa liðið Bregenz. Það kemur ekki til greina að þjálfa Þýskaland og Berlínarrefina. „Nei, ég myndi aldrei gera það samhliða því. Ég er búinn að prófa það og geri það ekki aftur,“ segir Dagur Sigurðsson. HANDBOLTI Dagur Sigurðsson, þjálfari þýska 1. deildar liðsins Füchse Berlín, hefur vakið mikla athygli fyrir langt viðtal sem hann fór í á þýska handboltavefmiðl- inum Handball-world.com. Þar bendir Dagur á beinar afleiðingar leikjaálagsins sem er gífurlegt hjá bestu handboltaliðum heims. Þar telur hann upp, ásamt blaðamanninum, nokkur alvarleg og mjög alvarleg meiðsli 24 leik- manna í efstu fimm liðum þýska boltans á síðustu tveimur árum. Þar á meðal eru Íslendingarn- ir Alexander Petersson og Aron Pálmarsson. „Við tókum bara skyttustöðurn- ar inn í þetta þannig að þarna er aðeins um að ræða toppinn á ísjak- anum,“ segir Dagur um málið við Fréttablaðið. „Þetta eru aðeins þrjár leikstöður og ekki um að ræða einhverjar tognanir heldur alvarleg meiðsli.“ NBA-leikjaálag Dagur rekur fjölgun meiðsla beint til aukins leikjaálags en fyrir utan það að leikirnir eru orðnir mun fleiri eru þeir einnig orðnir hrað- ari. „Evrópukeppni landsliðs hófst fyrir 20 árum og þar bættist við annað stórmót. Riðlakeppni Meist- aradeildarinnar er stærri og þá er komin riðlakeppni í hinar Evrópu- keppninnar. Svo þurfa meistar- arnir að fara á heimsmeistaramót félagsliða og fleira. Ofan á þá er hraða miðjan orðin svipað gömul og EM,“ segir Dagur en hlutirnir voru öðruvísi þegar hann var að byrja og lengi vel framan af ferl- inum. „Þá var engin hröð miðja. Maður gat tekið sér tíma í að fagna og hlaupið að áhorfendum og gefið öllum „five“. Nú er leikurinn hrað- ari og leikjaálagið eins og í NBA- deildinni. Munurinn er sá að NBA er með úrslitakeppni þannig að tímabilið þar er langt frá því að vera eins kraftmikið og í hand- boltanum. Enda eru leikmennirn- ir orðnir örmagna. Núna getum við tapað úti um allt. Við töpuðum í Eisenach og Minden og Kiel tap- aði í Magdeburg til dæmis. Það er bara vegna þess að leikmennirnir eru búnir á því,“ segir Dagur. 15 færri leikir Aukinn hraði í handboltanum hefur gert hann að sjónvarps- vænni íþrótt og fjöldi leikja leið- ir til hærri launa leikmanna sem fá margir hverjir ansi vel borg- að fyrir sín störf. Til að draga úr álaginu þyrfti engu að síður, að mati Dags, að fækka leikjum um fimmtán á hverju tímabili. „Líklega þyrfti deildin að vera 16 liða, Meistaradeildin þyrfti aðeins að minnka og stórmótið ætti auðvitað að vera á fjögurra ára fresti þannig leikmenn fái frí svona við og við. En til þess að þetta gerist þurfa allir að koma að borðinu og standa saman. Þ.e. þýska deildin, EHF og IHF. En ég þekki þennan bransa ágætlega og sé það ekkert gerast,“ segir Dagur sem hefur miklar áhyggj- ur af álaginu og hvað það er að gera mönnum eins og meiðslalist- inn sýnir. „Þetta hefur orðið til þess að menn hætta spila með landslið- um. Hjá Þýskalandi eru einhverjir 6-8 sterkir spilarar sem hafa ekk- ert spilað með því undanfarin ár í þeim tilgangi að reyna að lengja ferilinn. Menn eru einfaldlega að berjast fyrir því að halda ferlinum á lífi. Menn verða að fara að horfa á þetta frá sjónarhorni leikmann- anna,“ segir Dagur Sigurðsson. Erum á pari Berlínarrefir Dags eru í fimmta sæti þýsku 1. deildarinnar með 36 stig, fjórum stigum á eftir Ham- burg sem er í fjórða sætinu. „Við erum svona á pari má segja. Við erum með þessi fjögur stóru lið fyrir ofan okkur en undanfar- in ár hefur okkur tekist að vera fyrir ofan eitt þeirra allavega. Nú höfum við sjálfir lent í miklum meiðslavandræðum, sérstaklega þegar leikjaálagið var hvað mest, þannig að það hefur reynst mun erfiðara að geta strítt stóru liðun- um. Við þurfum að berjast fyrir 5. sætinu en við komumst í und- anúrslit bikarsins sem við vorum ánægðir með,“ segir Dagur Sig- urðsson. tom@frettabladid.is Menn berjast fyrir ferlinum Dagur Sigurðsson hefur miklar áhyggjur af álaginu á leikmönnunum hjá bestu liðum heims. Þeim þarf að fækka en til þess að svo verði þarf að standa saman. Refi rnir eru á pari eft ir erfi ða leiktíð vegna meiðsla. ÁHYGGJUFULLUR Dagur Sigurðsson vill minnka leikjaálagið til að vernda leikmennina. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY HANDBOLTI HK féll úr Olís-deild- inni í handbolta, svo framarlega sem fjölgun liða í deildinni bjargi því ekki í sumar, eftir tap gegn Haukum á heimavelli sínum í Digranesi á fimmtudaginn. HK-ingar, sem misstu nánast allt byrjunarlið sitt fyrir tímabil- ið og hafa átt afar erfitt uppdráttar í vetur, hafa aðeins unnið sér inn þrjú stig í deildinni með einum sigri og einu jafntefli. Fyrsta stiginu náði liðið strax í fyrstu umferð mótsins þegar það gerði nokkuð óvænt jafntefli við FH, 22-22, í Digranesi en fyrsti og eini sigurinn kom ekki fyrr en 21. nóvember þegar HK vann Fram á heimavelli, 22-19. Það stefnir allt í að HK, sem er búið að tapa átta leikjum í röð, jafni met Gróttu sem er slakasta liðið í sögu átta liða deildarinn- ar sem tekin var upp tímabilið 2006/2007. Metið yfir fæst stig í deildinni er aðeins tveggja ára gamalt en Gróttumenn áttu ekkert erindi í úrvalsdeildina tímabilið 2011/2012 og féllu með þrjú stig. Þeir voru sex stigum frá Aftureldingu sem náði sjöunda sæti og heilum 19 stigum frá öruggu sæti. HK-ingar hafa fjóra leiki til að næla sér í eitt stig og losna við að jafna árangur Gróttu sem slakasta liðið í sögu átta liða deildarinnar. Kópavogsliðið mætir ÍBV, Fram, FH og Akureyri í síðustu fjórum umferðunum. Markatala HK-liðsins er þó nú þegar orðin verri en hjá Gróttu fyrir tveimur árum. Grótta var með -124 í markatölu þegar liðið féll 2012 en HK er með -126 og má fastlega búast við að hún verði verri eftir fjóra leiki. - tom Liðin sem hafa fallið í átta liða deild: 2007: ÍR 10 stig (-77) 2008: ÍBV 9 stig (-232) 2009: Víkingur 7 stig (-86) 2010: Stjarnan 11 stig (-72) 2011: Selfoss 10 stig (-64) 2012: Grótta 3 stig (-124) 2013: Afturelding 12 stig (-49) *2014: HK 3 stig (-126) *Fjórir leikir eftir Árangur Gróttu 2011/2012: 1 sigur - 1 jafntefli - 19 töp 3 stig og markatalan - 124 HK Getur jafn- að slæmt met FALLNIR HK-ingar féllu í síðustu umferð deildarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL HLUSTAÐU HVAR SEM ER, HVENÆR SEM ER #BYLGJANBYLGJAN989 BAGGALÚTUR ER Í LOFTINU ÉG FELL BARA FYRIR FLUGFREYJUM VINSÆLT Á BYLGJUNNI
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.