Fréttablaðið - 15.03.2014, Síða 110
15. mars 2014 LAUGARDAGUR| LÍFIÐ | 78
„Ég festist í flugsysteminu í Þjóð-
leikhúsinu. Ég er svo sem ekki
fyrsti leikarinn til að lenda í því.
Amma mús hefur átt í pínulitlum
erfiðleikum með þetta í Dýrun-
um í Hálsaskógi,“ segir leikarinn
Stefán Karl Stefánsson. Hann lenti
í því að festast í flugkerfi leikhúss-
ins í miðri sýningu á Spamalot í
senu þar sem hann flýgur inn á
sviðið sem galdrakarlinn Tumi.
„Senan á að vera vandræða-
leg frá hendi höfundarins en hún
varð raunverulega vandræðaleg
og hættuleg á köflum,“ segir Stef-
án Karl með bros á vör. „Vírar sem
toga mig inn og út af sviðinu fest-
ust þannig að í fyrsta lagi komst
ég ekki inn á sviðið. Síðan þegar
ég loksins komst inn á sviðið rauk
ég upp í loft og út aftur. Ég sveifl-
aðist utan í leikmyndina, upp og
niður, hægri og vinstri og sner-
ist allur í vírunum,“ bætir hann
við. Meðleikarar hans á sviðinu
skemmtu sér konunglega yfir þess-
um spaugilegu hrakförum
hans.
„Senan á að vera
tvær til þrjár mínút-
ur en endaði miklu
lengri og því þurfti
ég að fylla upp í
götin með skelli-
hlæjandi leikara á
sviðinu. Ég efast um
að þeir hafi heyrt það
sem ég sagði, þeir
hlógu svo mikið.
Maður reyn-
ir alltaf eins
l a ng t og
það nær
að redda
hlutun-
um en
ég var hálf hjálparlaus, hangandi
í tveimur línum og komst hvorki
lönd né strönd.“
Spamalot hefur vakið lukku
meðal íslenskra leikhúsgesta
og er nóg af sýningum eftir.
Stefán Karl er hvergi banginn
og flýgur óhræddur á sviðið í
kvöld.
„Ég slapp ómeiddur og
örlítið niðurlægður. Þetta
var mjög skemmtilegt og
áhorfendur vældu úr hlátri.
Það þýðir ekkert að vera loft-
hræddur og ég fæ nóg af tæki-
færum til að leika senuna eins
og hún á að vera í nánustu
framtíð.“ - lkg
Slapp ómeiddur en niðurlægður
Leikarinn Stefán Karl festist í fl ugkerfi Þjóðleikhússins í miðri sýningu.
ÓHRÆDDUR Stefán
Karl stígur aftur
á sviðið í kvöld,
hvergi banginn.
„Þetta var töluverður hringur og
það gekk rosalega vel,“ segir Sig-
ríður Thorlacius, söngkona Hjalta-
lín, en sveitin lauk fyrir skömmu
tónleikaferðalagi um Evrópu.
Sveitin spilaði á by:Larm í Nor-
egi, á fjórum stöðum í Þýskalandi,
Lúxemborg, Brussel og Amster-
dam. „Við vorum úti í tíu daga og
vorum einnig viðstödd Norrænu
tónlistarverðlaunin,“ bætir Sig-
ríður við en hún var valin söng-
kona ársins á Íslensku tónlistar-
verðlaununum í gærkvöldi.
Þetta er fyrsta stóra tónleika-
ferðalagið sem sveitin fer í um
þrjú ár en hún hefur þó farið út
undanfarið í styttri ferðir.
Hún er þessa dagana eina stelp-
an í sveitinni því Rebekka Björns-
dóttir fagottleikari hefur lítið
komið fram með sveitinni síðan
platan Enter 4 kom út en hún er
búsett í New York. „Ég fagna því
alltaf þegar ég hitti stelpur á tón-
leikaferðalögum. Ég þyrfti eigin-
lega að fara að nálgast fótbolta-
spjöld og flautu til að hafa hemil
á piltunum. Þetta eru góðir og
gáfaðir menn og gæti því verið
verra,“ segir Sigríður létt í lund.
Hjaltalín hefur látið lítið á sér
bera að undanförnu en meðlim-
ir sveitarinnar eru orðnir þyrst-
ir í að búa til tónlist saman. „Við
erum öll þyrst í að gera meira
og erum að byrja að vinna að
nýju efni. Það gerði okkur gott
að bakka aðeins.“ Fram undan
eru stærstu tónleikar sem sveit-
in hefur haldið hér á landi. „Við
verðum með tónleika 16. apríl í
Eldborg. Þetta verða stærstu tón-
leikar sem við höfum haldið og
við hlökkum mikið til,“ segir Sig-
ríður og bætir við að talsverðar
líkur séu á að nýtt efni verði flutt
á tónleikunum. Aðaláhersla tón-
leikanna verður á efni plötunnar
Enter 4 sem hlotið hefur fádæma
góðar viðtökur en þó verður farið
yfir feril sveitarinnar.
„Við förum aftur út í maí og svo
erum við eitthvað að spila í sumar,
hér heima og úti,“ segir Sigríður
spurð út í frekara tónleikahald.
Nýjasta smáskífulag Hjalta-
lín, Letter To, er komið í spilun
á helstu útvarpsstöðvum lands-
ins en nú er myndband við lagið í
vinnslu. Talið er að myndbandið,
sem unnið er af Magnúsi Leifs-
syni verði frumflutt á næstunni.
Miðasala á tónleika Hjaltalín í
Eldborg fer fram á Midi.is.
gunnarleo@frettabladid.is
Hjaltalín snýr aft ur
Sveitin fór fyrir skömmu í sína fyrstu stóru tónleikaferð um Evrópu. Hún ætlar
sér stóra hluti á árinu og fyrirhugaðir eru stórtónleikar í Eldborg í apríl.
SÖNGKONA ÁRSINS Sigríður Thorlacius syngur hér á tónleikum með Hjaltalín
í Evrópu. Hún var kjörin söngkona ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum í
gærkvöldi. MYND/FLORIAN
KRAFTUR Högni Egilsson kraftmikill á
sviðinu. MYND/FLORIAN
GAMAN SAMAN Guðmundur Óskar og
Högni prúðbúnir á góðri stundur.
MYND/EINKASAFN
SPILA SAMAN Á SVIÐI
Heyrst hefur að Emilíana Torrini og
Lay Low ætli að taka lagið saman á
Hlustendaverðlaunahátíðinni sem fram
fer þann 21. mars. Þetta verður í fyrsta
skipti sem þær munu deila sviði hér
á landi en þær urðu góðar vinkonur
er Lay Low ferðaðist með henni árið
2010. Óhætt er að segja að áhugavert
verður að heyra hvaða lag þær taka
saman. Báðar eru þær
tilnefndar sem besta
söngkona ársins og
verður því án efa eftir-
minnilegt að sjá þær
saman á sviði. Hlust-
endaverðlaunin verða
í beinni útsendingu á
Stöð 2. - glp
„Ég hef séð að
fullt af stelpum
er sama þó ég sé
hommi. Þær vilja
samt giftast mér.
Og ég elska það.“
LEIKARINN NEIL
PATRICK HARRIS UM
KVENKYNSAÐDÁEND-
UR SÍNA Í VIÐTALI VIÐ
TÍMARITIÐ OUT.
„Bráðskemmtileg og sterk sýning þar sem
leikarar fara á kostum í vel skrifuðu verki.”
F.B. - F.bl.
„Galsafengin og frumleg ádeila”
H.A. - DV
,,Framvindan er fáránleg, fyndin og áhugaverð. …
Bláskjár er verk sem heldur áhorfendum á tánum.”
S.G.V. - M.bl.
,,Frábærlega skemmtilegt
og skrifað af miklum skáldskap”
G.S.E. - Djöflaeyjan.
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Allra síðustu sýningar!
lau 15/3 kl. 20 örfá sæti
Borgarleikhúsið
sun 16/3 kl. 20 lokasýning
Óskabörn
ógæfunnar
HITTI HASSELHOFF
Tónleikahaldarinn Ísleifur
Þórhallsson sótti ráðstefnuna
ILMC um lifandi tónlist í London á
dögunum. Liður í
ráðstefnunni voru
Arthur- tónlistar-
verðlaunin en
meðal þeirra sem
afhentu verð-
launin, óvænt, var
Baywatch-stjarnan
David Hasselhoff.
Ísleifur greip
tækifærið og fékk
mynd af sér með
kappanum sem
hann birti stoltur
á Facebook-síðu
sinni. - lkg
Ótrúlegt
úrval íbúða til sölu
eða leigu!
STÆRSTI
HÚSNÆÐISVEFUR
LANDSINS
INNRÁS GEIMVERA Á
ÍSLAND
Rithöfundurinn Hildur Knútsdóttir
leggur nú lokahönd á nýja bók, sem
að þessu sinni er unglingabók sem
fjallar um innrás geimvera á Ísland.
Hildur hefur sent frá sér þrjár bækur,
skáldsöguna Slátt sem kom út árið
2011 fékk góðar viðtökur og
barnabókinni Spádómnum
sem kom út ári síðar var
ekki síður vel tekið. Hildur
vakti þó örugglega mesta
athygli fyrir satíruna Hola
lovers– lífsstíls- og megr-
unarbók tískublaðsins,
hvernig á að þóknast
karlmönnum og vera
betri en aðrar konur.
- fbj