Fréttablaðið - 20.03.2014, Qupperneq 12
20. mars 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 12
Í hugum almennings hefur Krímskagi alltaf verið
mikilvægur hluti af Rússlandi.
Vladimir Pútín,
forseti Rússlands
KRÍMSKAGI,AP Grímuklæddir rúss-
neskumælandi hermenn hertóku
bækistöðvar úkraínska sjóhersins
á Krímskaga eftir að hópur vopn-
aðra aðgerðarsinna hafði áður ráð-
ist þangað inn.
Yfirvöld á Krímskaga tóku einnig
til fanga yfirmann úkraínska sjó-
hersins og eru einnig sögð hafa
komið í veg fyrir að varnarmálaráð-
herra Úkraínu og aðrir embættis-
menn ríkisstjórnarinnar gætu
ferðast þangað.
Úkraínski herinn, sem er fámenn-
ari en sá rússneski á Krímskaga,
hefur verið undir miklum þrýst-
ingi síðan svæðið varð að nafninu
til hluti af Rússlandi á þriðjudaginn
eftir að atkvæðagreiðsla fór fram.
Nokkur hundruð vopnaðra
aðgerða sinna mættu engri mót-
spyrnu þegar þeir réðust inn í
bækistöðvar sjóhersins í borginni
Sevastopol, þar sem floti Rússa í
Svartahafi er með heimahöfn. Alls
hafa tugir þúsunda hermanna undir
stjórn Rússa náð yfirráðum á Krím-
skaga.
Vladimir Pútín, forseti Rússlands,
bætti í gær Krímskaga við opinbert
kort af Rússlandi. „Í hugum almenn-
ings hefur Krímskagi alltaf verið
mikilvægur hluti af Rússlandi,“
sagði Pútín í ávarpi.
Anders Fogh Rasmussen, aðalrit-
ari NATO, sagði í ræðu sinni í gær
að framrás Rússa í Úkraínu væri
mesta ógnin við öryggi í Evrópu
síðan í kalda stríðinu. Joe Biden,
varaforseti Bandaríkjanna, varaði
við því að Bandaríkin og Evrópa
muni beita frekari refsiaðgerðum
gegn Rússlandi. Nú þegar hefur
refsiaðgerðum verið beitt gegn hópi
rússneskra og úkraínskra embættis-
manna fyrir að hafa stutt atkvæða-
greiðsluna um að Krímskagi slíti
sig frá Úkraínu. „Ef Rússland held-
ur áfram að skipta sér af Úkraínu
erum við tilbúnir með frekari refsi-
aðgerðir,“ sagði Barack Obama
Bandaríkjaforseti. freyr@frettabladid.is
Réðust inn í bæki-
stöðvar sjóhersins
Grímuklæddir rússneskumælandi hermenn réðust inn í bækistöðvar úkraínska
sjóhersins á Krímskaga. Tugir þúsunda hermanna undir stjórn Rússa á svæðinu.
© GRAPHIC NEWS
Athugasemd: Valdir embættismenn
Myndir: AP, Getty Images, Western Military District press service, A. Savin, Facebook
SSR = Samveldi sjálfstæðra ríkja
Evrópusambandið, Bandaríkin og Kanada hafa komið á ferðabanni og fryst
eignir rússneskra og úkraínskra embættismanna sem hafa átt stóran þátt í
því að losa Krímskaga undan yfirráðum Úkraínu
ESB (21 manneskja í banni) Bandaríkin (11) Kanada (10)
Leonid Slutsky
Yfirmaður
SSR-þingnefndar-
innar
Sergey Aksyonov
Forsætisráðherra
Krímskaga
Aleksandr Vitko
Yfirmaður herflota
Rússa í Svartahafi
Sergey Gazyev
Ráðgjafi forsetans
Vladimirs Pútíns
Vladimir
Konstantinov
Forseti þingsins
á Krímskaga
Viktor
Janukovitsj
Fyrrverandi
forseti Úkraínu
Sergey Zheleznyak
Háttsettur í
Dúmunni, neðri
deild þingsins.
Valentina
Matvijenko
Forseti efri deildar
rússneska þingsins
Vladislav Surkov
Aðstoðarmaður
Vladimirs Pútíns
Andrey
Klishas
Þingmaður í efri
deild þingsins
Dmitri Rogozin
Aðstoðarforsætis-
ráðherra Rússlands -
háttsettasta mann-
eskjan sem er beitt
refsiaðgerðum
R Í K I S S T J Ó R N R Ú S S L A N D S
Ú K R A Í N S K I R E M B Æ T T I S M E N NH E R I N N
Refsiaðgerðir gegn rússneskum embættismönnum
FUNDI
HUGMYND
VEISLU
FYRIR
EÐA
SMÁ
Miniborgarar
Ef það er veisla eða fundur framundan þá eru
veislubakkarnir frá American Style skemmtileg
og bragðgóð tilbreyting á veisluborðið.
Allar pantanir fara fram á www.americanstyle.is
Mikilvægt er að panta tímanlega
Smáborgarar fyrir stórborgara