Fréttablaðið - 20.03.2014, Page 24

Fréttablaðið - 20.03.2014, Page 24
20. mars 2014 FIMMTUDAGURSKOÐUN HALLDÓR FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRI: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Álfrún Pálsdóttir alfrun@frettabladid.is VIÐSKIPTI: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is MENNING: Friðrika Benónýsdóttir fridrikab@frettabladid.is DÆGURMÁL: Lilja Katrín Gunnarsdóttir liljakatrin@frettabladid.is VÍSIR: Kolbeinn Tumi Daðason, kolbeinntumi@365.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRAR: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is, Mikael Torfason mikael@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÁ DEGI TIL DAGS Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is Aðalfundur BGS 2014Icelandair Hótel Reykjavík Natura fimmtudaginn 3. apríl kl. 14:00 Kl. 14:00 – 15:30 Sérgreinafundir Almenn verkstæði og varahlutir Málningar- og rét tingarverkstæði Sölusviðin Kl. 15:30 – 15:45 Kaffihlé Kl. 15:45 – 16:00 Setning fundar: Jón Trausti Ólafsson formaður BGS. Kl. 16:00 – 16:30 Erindi: Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra Kl. 16:30 – 17:00 Venjuleg aðalfundarstörf Dagskrá skv. 8. gr. laga BGS 1. Skýrsla stjórnar. 2 . Reikningar skýrðir og bornir upp til samþykktar. 3. Kosning stjórnar. 4 . Önnur mál. Stjórn BGS Mér var boðið í heimsókn í kjúklingabú fyrirtækisins Matfugls á Kjalarnesi fyrir skömmu. Ástæðan var skrif mín og ræða á Alþingi þar sem ég bað menn um að gæta að velferð dýra og fara eftir nýjum lögum í þeim efnum. Í kjölfarið höfðu forráðamenn Matfugls samband við mig og buðu mér að skoða fyrirtæki sitt, sem ég þáði með þökkum. Ég fékk að skoða öll húsin þeirra og fugl á mismunandi aldri til að kanna aðbúnaðinn í heild. Fuglinn hafði nægt rými samkvæmt stöðlum í lögum, lýsing var tempruð eftir því hvaða tími sólar- hringsins var, loftskipti góð, gott aðgengi að mat og vatni fyrir fuglinn. Hrein- lætiskröfur voru einnig gríðarlegar og engin ammóníakslykt eins og búið var að vara mig við. Ég ræddi ítarlega við eigendur, fram- kvæmdastjóra og dýralækni búsins. Eigendurnir sögðu mér að það væri þeim mikið metnaðarmál að gæta að velferð dýranna og allir sem hjá fyrirtækinu störfuðu fengju sömu fyrirmæli. Þetta þótti mér gott að heyra og greinilegt að talað var af einlægni og ég hvatti þá áfram á þessari braut. Áhugaverð þótti mér eftirfarandi saga sem þeir sögðu mér: Eftirlitsmenn frá EFTA komu í heimsókn í kjúklingabúið og báðu um að fá að sjá lyfjaskrána. Dýralæknir búsins svaraði því til að engin slík skrá væri til. Eftirlitsmennirnir urðu mjög þungir á brún og sögðu að það væri ófrávíkjanleg skylda að halda slíka skrá. Dýralæknir búsins svaraði því til að ekki væri hægt að halda lyfjaskrá því kjúklingurinn fengi engin lyf, hann væri alheilbrigður. Þetta höfðu eftirlitsmenn EFTA aldrei heyrt áður og töldu algert einsdæmi. Þingmaður heimsækir kjúklingabú LANDBÚNAÐUR Elín Hirst alþingismaður ➜ Ég ræddi ítarlega við eigendur, framkvæmdastjóra og dýralækni búsins. Eigendurnir sögðu mér að það væri þeim mikið metnaðarmál að gæta að velferð dýranna og allir sem hjá fyrirtækinu störfuðu fengju sömu fyrirmæli. Þingmaður VG styður Dögun Ögmundur Jónasson, þingmaður og fyrrverandi ráðherra Vinstri hreyfingarinnar – græns fram- boðs, styður ekki framboð flokks síns í Reykjavík heldur hvetur fólk til að gleyma ekki Dögun með Þorleif Gunnarsson í broddi fylkingar. Ástæða sé fyrir félags- lega þenkjandi fólk sem nú horfi til þeirra framboða sem í boði eru á vinstri væng stjórn- málanna, sem vill kenna sig við félags- hyggju, að muna eftir Þorleifi. Þetta sagði Ögmundur á heimasíðu sinni í gær. Þar sagði hann mikinn missi fyrir VG að Þorleifi og afleitt væri að missa hann úr borgar- pólitíkinni og fá í staðinn meira af Pírötum, Bjartri framtíð, Framsókn eða Samfylkingu. Vinstri grænir hafa nú einn fulltrúa í borgarstjórn, Sóleyju Tómasdóttur, sem býður sig fram til áframhaldandi starfa en hún sigraði Líf Magneudóttur, sem skipar annað sæti listans, í prófkjöri með litlum mun. Má skilja þetta svo að Ögmundur vilji frekar framgang vinar síns Þorleifs en samflokks- kvenna sinna? Hlustað eftir viljanum Hvergerðingar munu, samhliða bæjarstjórnarkosningum í vor, greiða atkvæði um könnun um hvort bærinn skuli sameinast öðru sveitarfélagi. Bæjarstjórinn og sjálfstæðiskonan Aldís Hafsteinsdóttir hefur ekki vilj- að gefa upp afstöðu sína varðandi sameiningu en segir aðalatriðið vera að íbúarnir gefi vísbendingu. Hún segir fólk þurfa að meta hvort Hveragerði sé sjálfstætt sveitarfélag með eigin stjórn eða hvort það telji hag fólks betur borgið í samvinnu og stærra samfélagi. Hún muni bara vinna að því sem bæjarbúar vilja. Því miður hljóta bæjarbúar að spyrja sig hvort nokkuð sé að marka sjálfstæðis menn sem segjast bara vilja hlusta á fjöldann og fara að hans vilja. Það hefur virkað frekar illa hjá þingmönnum flokksins hingað til. fanney@frettabladid.is I llugi Gunnarsson menntamálaráðherra sagði í þættinum Í bítið á Bylgjunni í fyrradag að hægt væri að réttlæta að hækka laun kennara umfram almennar launabreytingar með því að breyta skólakerfinu og stytta nám til stúdents- prófs. Sambærilegar tillögur eru hluti af tilboði ríkisins til lausnar kjaradeilunni við framhaldsskólakennara. Forystumenn kennara hafa tekið þessum áformum illa. Aðal- heiður Steingrímsdóttir, formaður Félags framhaldsskólakennara, sagði til dæmis í samtali við DV, að það væri „ósæmilegt að bera slíka hluti inn á borð í kjarasamningsviðræðum“. En af hverju er það ósæmilegt? Er þessi leið ekki einmitt tækifærið til að hækka laun kennara, sem vissulega eru of lág? Staðan á vinnumarkaðnum og í fjármálum hins opinbera bendir ekki til að önnur leið sé fær. Á almenna vinnumarkaðnum féllust samtök launþega á að semja um hóflegar launahækk- anir gegn því að verðbólgunni yrði haldið í skefjum. Ef laun opinberra starfsmanna hækka langt umfram það sem þar var samið um er árangrinum í hættu stefnt. Hvorki ríkið né sveitarfélög eiga heldur peninga til að hækka laun starfsmanna sinna umfram það sem gerist á almenna markaðnum. Eigi að vera hægt að hækka laun kennara, hvort heldur er í grunn- eða framhaldsskól- um, þarf að breyta skólakerfinu, stytta námið og spara peninga. Einhver kann að spyrja hvort það sé framkvæmanlegt. Já, flest bendir til þess. Ísland rekur dýrara skólakerfi en mörg vestræn ríki, án þess að það skili betri árangri. Grunnskólinn hefur lengzt um ár, auk þess sem skólaárið lengdist, án þess að nemendurnir kunni meira þegar þeir hafa lokið honum. Nám til stúdentsprófs tekur 14 ár í stað 12 eða 13 í flestum OECD-löndum. Við getum ekki leyft okkur slíka sóun á tíma og peningum. Það er þess vegna hreint ekki ósæmilegt að ræða kjör fram- haldsskólakennara í samhengi við breytingar á skólakerfinu. Ef eitthvað er getur þurft að setja málið í enn víðara samhengi, því að það er ekki hægt að ráðast í styttingu framhaldsskólans án þess að taka það með í reikninginn að óskilvirknin er meiri á grunnskólastiginu en í framhaldsskólum. Raunar er fjöldi fordæma frá almenna vinnumarkaðnum um að hægt hafi verið að hækka laun í einstökum fyrirtækjum eða starfsgreinum umfram almennar launabreytingar með því að semja um breytingar á vinnufyrirkomulagi sem skiluðu aukinni framleiðni. Það er hægt að gera í skólakerfinu líka; þar gilda í grunninn ekki önnur lögmál. Stytting náms til stúdentsprófs mun aldrei eiga sér stað öðru- vísi en í góðu samstarfi stjórnvalda og starfsfólks skólanna, kennara þar með talinna. Vandséð er af hverju þessi kerfisbreyt- ing ætti ekki að vera keppikefli kennarastéttarinnar, sem hlýtur að leggja metnað sinn í að reka hagkvæmt og skilvirkt skólakerfi. Og það ætti að vera alveg sérstakur hvati til samstarfs um kerfis- breytingu að í henni felst bezta tækifærið til að bæta kjör kennara við núverandi aðstæður. Hagræðing í skólakerfinu getur skilað launahækkun: Kerfisbreyting er bezta tækifærið

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.