Fréttablaðið - 20.03.2014, Side 62
20. mars 2014 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 50
BAKÞANKAR
Atla Fannars
Bjarkasonar
Charles Barkley var hetjan mín þegar ég var lítill strákur á Selfossi. Ég
spilaði körfubolta, lét snoða á mér
höfuðið, keypti bolina hans og setti
Phoenix Suns-derhúfu á hausinn, þrátt
fyrir að vera augljóslega með allt of lágt
enni til að bera slíka húfu sómasamlega.
Barkley var enginn engill og fór óhefð-
bundnar leiðir, innan vallar sem utan.
Hann pantaði pitsur á varamannabekk-
inn í háskólaboltanum, reif kjaft, lamdi
menn á börum og tapaði háum fjárhæð-
um í spilavítum.
ÞEGAR körfuboltaáhuginn dofnaði
kom áhugi á tónlist í staðinn. Þá
byrjaði ég að líta upp til Philips
Anselmo, söngvara þunga-
rokksveitarinnar Pantera. Ég
lét mig dreyma um húðflúr á
hausinn og klæddist snjáðum
Converse-skóm. Á leiðinni í skólann
hlustaði ég á frábærar plötur á borð
við The Great Southern Trendkill og
Vulgar Display of Power. Ég skildi
ekki af hverju skólafélagar mínir
vildu ekki hlusta á þessa stórkost-
legu tónlist í stærðfræðitímum
enda fannst mér fátt meira töff en þegar
Anselmo rak upp eitt af sínum mögnuðu
öskrum.
ANSELMO var djúpt sokkinn eitur-
lyfjafíkill. Svo djúpt sokkinn að hann
lést einu sinni úr of stórum skammti
heróíns áður en hann var endurlífgaður
nokkrum mínútum síðar. Hann hvatti
aðdáendur sína beinlínis til að reykja
gras og bráðskemmtileg heimamynd-
bönd hljómsveitar innar sýndu taumlausa
áfengis- og fíkniefnaneyslu í bland við
uppátæki sem engin móðir yrði stolt af.
ÉG hefði betur valið mér aðrar fyrir-
myndir því þökk sé þeim þá nýti ég hvert
tækifæri sem gefst til að rífa kjaft. Ég get
ekki fundið lyktina af spilastokki án þess
að leggja allt mitt undir, tapa því og skuld-
setja fjölskyldu mína í leiðinni – kenni
óhóflegri áfengisneyslunni um það. Hnefa
mína nota ég ekki í annað en að endur-
raða andlitum óvina minna. Og reyndar
annarra sem verða á vegi mínum og fíkni-
efni stenst ég ekki. Það er fátt betra en
að sprauta sig með góðum skammti af
heróíni. Helst vil ég sprauta mig til ólífis.
Heróínneysla til fyrirmyndar
THE CONGRESS DARK TOUCH
SJÁ FLEIRI SÝNINGAR Á WWW.BIOPARADÍS.IS - Miðasala: 412 7711 - Hverfisgata 54 - bioparadis.is - Hluti af Europa Cinemas
THE BAG MAN 10:25
3 DAYS TO KILL 8, 10:20
THE MONUMENTS MEN 10:10
RIDE ALONG 6, 8
ÆVINTÝRI HR. PÍBODYS 3D 6
DALLAS BUYERS CLUB 5:45, 8
ÁLFABAKKA
AKUREYRI
EGILSHÖLL
KRINGLUNNI
KEFLAVÍK
AFTENBLADET EXPRESSEN
VARIETY ENTERTAINMENT WEEKLY
NEW YORK MAGAZINE
ONE CHANCE
300: RISE OF AN EMPIRE 3D
300: RISE OF AN EMPIRE 3DLÚXUS
ÆVINTÝRI HR. PÍBODYS ÍSL. TAL 2D
Ý Í ÍÆVINT RI HR. PBODYS SL. TAL 3D
THE MONUMENTS MEN
RIDE ALONG
ROBOCOP
Ý ÖSK JAÐ MEÐ KJ TBOLLUM 2 2D
SKÝJAÐ MEÐ KJÖTBOLLUM 2 3D
ONE CHANCE
SAVING MR. BANKS
Ý ÍÆVINT RI HR. PBODYS 2D/3D
3 DAYS TO KILL
THE MONUMENTS MEN
NYMPHOMANIAC PART 1
KL. 5.40 - 8 - 10.20
KL. 5.40 - 8
KL. 5.40 - 8 - 10.20
KL. 3.30 - 5.45
KL. 3.30
KL. 8
KL. 5.45 - 8 - 10.15
KL. 10.30
KL. 3.30
KL. 3.30
Miðasala á: og
KL. 5.40 - 8 - 10.20
KL. 6 - 9
KL. 5.50
KL. 8 - 10.30
KL. 10.30
KL. 8
NÁNAR Á MIÐI.IS
ONE CHANCE
3 DAYS TO KILL
Ý ÍÆVINT RI HR. PBODYS 3D
RIDE ALONG
KL. 6 - 8 - 10
KL. 10
KL. 6
KL. 8
-T.M., BÍÓVEFURINN/S&H
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
Um 35 milljónir söfnuðust til
styrktar Landvernd og Náttúru-
verndarsamtökum Íslands á tón-
leikunum Stopp, gætum garðs-
ins sem fóru fram í Hörpu á
þriðjudagskvöldið. Uppselt var
á tónleikana en söfnuninni barst
veglegur liðsauki frá Náttúru-
verndarsjóði Pálma Jónssonar,
stofnanda Hagkaups. Sjóðurinn
lagði til 24 milljónir. Patti Smith,
Björk, Lykke Li, Of Monsters and
Men og Retro Stefson voru meðal
þeirra sem komu fram á tónleik-
unum. Markmiðið var að vekja
athygli á náttúruvernd og verk-
efnum sem henni tengjast.
Söfnuðu 35
milljónum
KEMUR SÉR VEL Þau Björk, Aronofsky
og Patti Smith hljóta að vera ánægð
með söfnunina. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
HOPPANDI STUÐ Í HÖRPU
Uppselt var á stórtónleikana í Hörpu á þriðjudagskvöldið þar sem listamenn á borð við Björk, Patti Smith, Lykke
Li, Of Monsters and Men og Retro Stefson tóku sig saman í fj áröfl un fyrir Landvernd og Náttúruverndarsam-
tökum Íslands. Björk var fyrst á svið á tónleikunum og stuðsveitin Retro Stefson fékk gesti Eldborgarsalsins til
að dilla sér við lokalagið Sabotage með Beastie Boys þar sem allir listamennirnir komu fram á svið og dönsuðu.
FLOTT Dagur
B. Eggertsson
og Arna Dögg
Einarsdóttir.
FRÁBÆR Björk
tróð upp með kór
og strengjasveit
við mikinn fögnuð
áhorfenda.
REFFILEGIR
Högni Egilsson og
Björn Steinbekk.
MÆTTI HRESS
Páll Steingrímsson
var kátur.
ÞRÍEYKI Vigdís
Finnboga dóttir
lét sig ekki
vanta.
SÆT SAMAN
Árni Finnsson og
Karítas.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI