Fréttablaðið - 17.06.2014, Síða 2
17. júní 2014 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 2
SPURNING DAGSINS
25%
NÝTT
afsláttur
af öllum styrkleikum
og pakkningastærðum
Illugi, hvort er betra, góðir
dómar eða góðir dómarar?
„Ja, það er erfitt að dæma um
það, en enginn hefur þó enn verið
dæmdur rangstæður í bókardómi.“
Illugi Jökulsson og Björn Þór Sigbjörnsson
hafa fengið góða dóma erlendis fyrir bók um
stjörnurnar á HM í fótbolta.
LÖGREGLUMÁL „Þetta er ótæk
staða. Annaðhvort verður að
lengja þennan fyrningarfrest eða
breyta lögunum þannig að hann
byrjar ekki að líða fyrr en grun-
ur vaknar um brot,“ segir Brynj-
ar Níelsson, þingmaður og hæsta-
réttarlögmaður, um fyrningu á
brotum sérstaks saksóknara sem
upp hefur komist um í tengslum
við hleranir á sakborningum og
verjendum þeirra.
Héraðsdómur Reykjavíkur
sagði sérstakan saksóknara hafa
brotið gegn lögum með því að
hafa hlerað samtöl verjanda og
sakborninga í Imon-málinu svo-
kallaða gegn stjórnendum Lands-
bankans. Þá kærði Hörður Felix
Harðarson, verjandi Hreiðars
Más Sigurðs sonar, fyrrverandi
forstjóra Kaupþings, hleranir sér-
staks saksóknara á símtölum hans
og Hreiðars.
Brynjar segir óeðlilegt að brot
rannsóknaraðila séu fyrnd þegar
upp um þau kemst. Hann segir
að ef rétt sé að sérstakur sak-
sóknari hafi brotið gegn
lögum sé honum ekki sætt
í embætti. „Endan legur
dómur er ekki fallinn en
auðvitað er það þannig
að ef menn brjóta lög í
embætti þá er þeim ekki
sætt þar,“ segir Brynjar
og vill að stjórnvöld og
ráðherra bregðist við.
Þá segir Brynjar að sér
sýnist sem framkvæmd
á þvingunarráðstöfunum sé í
miklum lamasessi. og þeim beitt
í óhófi. „Þetta er til þess fallið að
rýra traust almennings á þessu
öllu, þess vegna eru þær svo mikil-
vægar þessar formreglur,
sem mönnum finnst oft
þvælast fyrir.“
Sérstakur saksókn-
ari þingfesti á dögunum
ákæru á hendur Hreiðari
og tveimur öðrum fyrr-
verandi starfsmönnum
Kaupþings en áður hafa
þeir hlotið þunga refsi-
dóma í Al-Thani-málinu
svokallaða. Frétta blaðið
sagði frá því í gær að Hreiðar
hefði kært sérstakan saksókn-
ara og fyrrverandi héraðsdómara
fyrir brot í opinberu starfi með
því að hafa staðið óeðlilega að
hlerunarúrskurði gegn Hreiðari.
„Þetta er mjög alvarlegur hlutur
sem hefur átt sér stað og vegna
þess að um gríðarlegt inngrip í
rétt manna til friðhelgi einkalífs
er að ræða þá eru lögfestar regl-
ur um meðferð slíkra mála,“ segir
Hreiðar sem gagnrýnir að Ríkis-
saksóknari hafi vísað máli sínu
frá á grundvelli fyrningar. „Er
staðan þá raunverulega sú að sér-
stakur saksóknari og embættis-
dómari geta brotið með jafn alvar-
legum hætti gegn lögum og komist
upp með það sökum þess hversu
lengi málin eru til rannsóknar,“
spyr Hreiðar. fanney@frettabladid.is
Ekki sætt í embætti
ef lög voru brotin
Brynjar Níelsson þingmaður vill að lögum verði breytt svo mál gegn rannsóknar-
aðilum fyrnist ekki áður en upp um þau kemst. Hann segir sérstökum saksóknara
ekki sætt í embætti hafi hann gerst sekur um lögbrot við rannsóknir mála.
LÖGREGLUMÁL Fjórir karlmenn, sá
yngsti um tvítugt en sá elsti á sex-
tugsaldri, hafa verið úrskurðaðir í
gæsluvarðhald til sunnudags.
Mennirnir eru í haldi lög-
regl unnar á Akureyri. Þeir eru
grunaðir um aðild að stórfelldri
líkamsárás á Hvammstanga um
síðustu helgi.
Í tilkynningu frá lögreglu
kemur fram að rannsóknin sé á
frumstigi. Maðurinn sem ráðist
var á er í lífshættu með alvarlega
áverka á höfði, en honum er enn
haldið sofandi í öndunarvél.
Árásin var gerð í íbúð eins
hinna handteknu á Hvammstanga
á laugardagskvöld, þar sem menn-
irnir voru í gleðskap. - gb
Árásarmennirnir fjórir:
Úrskurðaðir
í gæsluvarðhald
KJARAMÁL Leikskólakennarar og
Samband íslenskra sveitarfélaga
náðu saman í kjaradeilu aðilanna
á áttunda tímanum í gærkvöld.
Boðað hafði verið til vinnu-
stöðvunar þann 19. júní næst-
komandi en þá hefði þeim
deildum sem voru með leikskóla-
kennara sem deildarstjóra verið
lokað. Vinnustöðvun hefði raskað
mjög starfi leikskólanna en þó
ekki leitt til þess að þeim hefði
öllum verið lokað að fullu.
Hinn nýi kjarasamningur
gildir í eitt ár. „Við erum sátt, við
hefðum að sjálfsögðu ekki skrif-
að undir kjarasamning nema við
værum sátt við niðurstöðuna.
Það virkar nú bara þannig,“ segir
Haraldur Freyr Gíslason, for-
maður Félags leikskólakennara.
„Það var í raun opið í alla enda
hvernig við myndum nálgast
þessi markmið sem við þurftum
að ná og við náðum því á þessu
ári. Svo tekur bara við nýr samn-
ingur og það hefst vinna við hann
strax. Í haust munu aðilar gera
með sér viðræðuáætlun og byrja
að vinna að nýjum kjarasamn-
ingi.“ - ssb
Leikskólakennarar skrifuðu undir nýjan kjarasamning í gær sem gildir í ár:
Komu í veg fyrir vinnustöðvun
STJÓRNMÁL Leiðtogafundurinn í
Reykjavík árið 1986 var hápunkt-
urinn á ferli Ronalds Reagans
Bandaríkjaforseta og þar lauk
kalda stríðinu. Þetta segir einn
helsti samstarfsmaður Reagans
í nýútkominni bók sem byggð er
á trúnaðarskjölum sem nýbúið er
að létta leynd af.
„Reagan í Reykjavík“ heitir
bókin sem kom út í maí. Höf-
undurinn er Ken Adelman, sem
var yfirmaður vopnabúrs Banda-
ríkjanna og einn af ráðgjöfum
Reagans á fundinum í Höfða. Er
sagt að þegar menn skoði þau
trúnaðarskjöl sem nýlega sé búið
að létta leynd af sjáist að söguleg
tímamót urðu í Reykjavík. - kmu
Ísland hápunktur Reagans:
Forseti toppaði
á fundi í Höfða
FÉLAGSMÁL Stjórn Heyrnarhjálpar – félags heyrnarskertra
á Íslandi hefur sent frá sér ályktun vegna hækkandi
kostnaðar við kaup á heyrnartækjum.
Segir í ályktuninni að stjórnin hafi af því verulegar
áhyggjur að kostnaðurinn standi þeim sem þurfa á
heyrnar tækjum að halda fyrir þrifum og komi í veg fyrir
að þeir endurnýi tæki sín eða fái sér heyrnartæki. Það
takmarki verulega þátttöku heyrnarskertra í samfélaginu.
Niðurgreiðslan er núna 30.800 krónur á tæki. Að sögn
Kolbrúnar Stefánsdóttur, framkvæmdastjóra Heyrnar-
hjálpar, geta heyrnartæki kostað á bilinu 150 til 500 þús-
und krónur. „Það er mjög algengt að fólk segi að það hafi
ekki efni á því að kaupa sér tæki,“ segir Kolbrún.
Samkvæmt ályktuninni hefur niðurgreiðsla vegna
kaupa á heyrnartækjum staðið óbreytt síðan árið 2006 í
krónum talið. Á sama tíma hafi hækkun á almennu verð-
lagi orðið um 60 prósent og því sé útlagður kostnaður
hvers einstaklings verulega aukinn. Stjórnin segist sér-
staklega hafa áhyggjur af tekjulágum hópum samfélags-
ins.
Vegna þessa skorar stjórn Heyrnarhjálpar á stjórnvöld
að bregðast við vandanum og hækka verulega greiðslu-
þátttöku ríkisins í tækjakaupum heyrnaskertra. - ssb
Stjórn Heyrnarhjálpar skorar á íslensk stjórnvöld að bregðast við vandanum:
Heyrnarlausir mótmæla kostnaði
KOLBRÚN STEFÁNSDÓTTIR Kolbrún er fram-
kvæmdastjóri Heyrnarhjálpar.
ÁÐUR EN HRÆRT VAR Í VÖFFLUR
Haraldur Freyr Gíslason, formaður Félags
leikskólakennara, og fulltrúi Sambands
íslenskra sveitarfélaga skrifa undir hinn
nýja kjarasamning. FRÉTTABLAÐIÐ/EGILL
GAGNRÝNINN Hreiðar segir það gríðarlega alvarlegt að réttrar málsmeðferðar sé
ekki gætt. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
BRYNJAR
NÍELSSON
INNANRÍKISMÁL Ragnheiður
Harðardóttir, héraðsdómari við
Héraðsdóm Reykjavíkur, hefur
verið skipuð formaður starfshóps
sem skoða á hvernig komið verði
á virkara eftirliti með starfs-
háttum lögreglunnar.
Markmið hópsins er að tryggja
betur vandaða og réttláta máls-
meðferð við rannsókn mála.
Hópurinn er skipaður svo óháður
aðili fjalli um meðferð mála er
varða rannsókn á störfum lög-
reglunnar. - ssb
Nýr starfshópur skipaður:
Virkara eftirlit
með lögreglu
MENNING Kristbjörg Kjeld leikkona tók á móti heiðursverðlaunum
Leiklistarsambands Íslands fyrir störf sín á Grímunni í gærkvöldi.
Það var Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra,
sem afhenti Kristbjörgu verðlaunin.
Kristbjörg útskrifaðist frá Leiklistarskóla Þjóðleikhússins árið
1958 og ferill hennar spannar því 56 ár. Hún hefur margoft hlotið
Grímuna, meðal annars fyrir leik sinn í Jónsmessunótt árið 2012.
- ssb / sjá síðu 34
Kristbjörg Kjeld leikkona hlaut lófatak á Grímunni í gærkvöld:
Heiðursverðlaun eftir langan feril
HEIÐRUÐ LEIKKONA Kristbjörg Kjeld ásamt Illuga Gunnarssyni við afhendinguna.