Fréttablaðið - 17.06.2014, Side 24
FÓLK|HEILSA
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug lýsendum að kynna vörur og
þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum. Blaðið
fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434
Kolbeinn Kolbeinsson, kolli@365.is, s. 512 5447
Markmið rannsóknarinnar var að gera heildarúttekt á komum á bráðadeild Land-
spítala vegna áverka á höfði og meðal
annars að athuga nýgengi, eðli og
alvarleika áverkanna. Brynjólfur
Mogensen, dósent og yfirlæknir á
bráðasviði Landspítala, bar ábyrgð á
rannsókninni og var
helsti hvatamaður
að henni. „Höfuð-
áverkar eru algengir
en enginn virðist
hafa nálgast verk-
efnið á þennan hátt
áður. Aðrar rann-
sóknir hafa tekið
fyrir til dæmis heila-
áverka, augnáverka eða andlitsáverka
en enginn hefur tekið fyrir alla höfuð-
áverka,“ segir Brynjólfur en í skýrsl-
unni er bent á að áverkar á höfði séu
algeng afleiðing slysa og ofbeldis.
Þeir geti haft varanlegar afleiðingar
í för með sér og séu ein af megin-
orsökum ótímabærs dauða.
Í rannsókninni voru skoðaðar aftur-
virkt allar komur Reykvíkinga á Land-
spítala vegna áverka á höfði á árunum
2000-2005 og 2008-2009. Upplýsingum
var safnað úr sjúkraskrárkerfum
Landspítala. Áverkarnir voru flokk-
aðir í mjúkpartaáverka, augn áverka,
höfuðbeinaáverka, innankúpu- og
heilataugaáverka og fjöláverka.
Brynjólfur segir niðurstöðurnar
hafa komið nokkuð á óvart. „Það
hefur átt sér stað mjög jákvæð
þróun. Höfuðáverkum hefur fækkað
verulega og við stöndum okkur vel í
samanburði við aðra,“ segir hann. Á
átta árum kom 35.031 Reykvíkingur
á Landspítala vegna áverka á höfði.
Karlar voru í miklum meirihluta eða
67 prósent. Meðalaldur þeirra sem
leituðu sér hjálpar var 26 ár.
Börn á aldrinum 0 til 4 ára voru
fjölmennasti hópurinn (20,8 pró-
sent), 5–9 ára börn voru 11,5 prósent
hópsins og ungmenni á aldrinum 20
til 24 ára voru 9,4 prósent.
Í rannsókninni kemur fram að
flestir áverkanna stafa af slysum og
öðrum óhöppum. Börn yngri en tíu
ára hlutu áverka á höfði nær undan-
tekningarlaust vegna slysa eða
annarra óhappa. Í aldurshópnum
15-29 ára var hlutfallið komið niður
í 64 prósent og nærri þriðjungur
orsakaður af slagsmálum og ofbeldi
en karlar verða oftar fyrir slíku
en konur. Sjúkdómar ollu nær 10
prósentum af áverkum á höfði hjá
75 ára og eldri. Þá eru yfirlið einnig
nefnd sem algeng ástæða fyrir slys-
um og áverkum eldri borgara.
Af niðurstöðum rannsóknarinnar
má sjá að nýgengi koma og inn-
lagna Reykvíkinga á Landspítala
vegna áverka á höfði hefur farið
lækkandi síðasta áratuginn, lækk-
aði úr 4,2 prósentum árið 2000 í 3,3
prósent árið 2009. Ástæður þessa
eru sagðar geta verið margvíslegar,
en líklegt er talið að aukin vitund
fólks um slys og slysahættur, til
dæmis á heimilum og í frítíma, aukin
notkun bílbelta, aukinn áróður fyrir
umferðaröryggi, bætt gatnakerfi,
aukin löggæsla og hjálmanotkun hafi
skilað þessum árangri. Sambærileg
þróun sást til að mynda í fjölda and-
láta í umferðarslysum á rannsóknar-
tímabilinu.
Bent er á í rannsókninni að á
Íslandi hafi verið unnið öflugt starf
í slysaforvörnum barna síðastliðna
tvo áratugi. Góður árangur hafi
náðst, eins og sjáist í nýlegri skýrslu
frá evrópskum stýrihóp um slysa-
varnir barna, þar sem Ísland fær
hæstu einkunn fyrir frammistöðu í
barnaslysavörnum.
■ solveig@365.is
ÁVERKUM Á HÖFÐI FÆKKAR
RANNSÓKN Nýgengi koma og innlagna Reykvíkinga á Landspítala vegna áverka á höfði hefur farið lækkandi síðasta áratuginn.
Þetta kemur fram í rannsókn sem birt var í 6. tölublaði Læknablaðsins í ár.
BRYNJÓLFUR
MOGENSEN
HÖFUÐMEIÐSLI
BARNA
Börn á aldrinum 0 til 4
ára eru líklegust til að
meiða sig á höfði.
NORDICPHOTOS/GETTY
Vísindamenn við Harvard-há-
skóla í Bandaríkjunum birtu
nýlega niðurstöður rannsóknar
sem þeir gerðu á tannviðgerðum
með leiserljósi.
Rannsóknin var birt í Science
Translation Medicine og greinir
frá því hvernig vísinda mennirnir
nýttu innrautt ljós og stofn-
frumur sem fyrir eru í tönnum til
að mynda nýtt tannbein.
Með því að lýsa með innrauðu
ljósi á skemmdar tennur músa
virkjuðu vísindamennirnir sér-
stakar sameindir sem tengjast
stofnfrumum. Þetta leiddi til
þess að stofnfrumurnar breytt-
ust í frumur sem mynda tann-
bein og hjálpuðu þannig við að
endurbyggja tennurnar.
Þessi aðferð er þó enn á frum-
stigi enda hafa aðeins verið gerð-
ar rannsóknir á tönnum nagdýra
fram að þessu en ekki manna.
Annar galli er að slík ljósameð-
ferð tekur langan tíma, vikur og
jafnvel mánuði.
Vísindamennirnir eru þó mjög
bjartsýnir og telja að ef slík
meðferð virkar á tennur manna
geti þessi tækni leitt til þess að
ljósameðferðin komi í stað tann-
viðgerða, til að mynda tann-
rótar fyllinga.
LEISERLJÓS Í STAÐ
RÓTFYLLINGAR?
LJÓS Vísindamenn vona að leiserljós geta nýst við tannlækningar í framtíðinni.
Hjartasjúkdómar
Ert þú í áhættuhópi?
Hjarta-Aspirín inniheldur asetylsalicylsýru, sem í litlum skömmtum
tilheyrir flokki lyfja sem hindra samloðun blóðflagna. Blóðflögur eru
örsmáar frumur í blóðinu sem valda því að blóðið storknar og taka
þátt í segamyndun. Þegar blóðtappi myndast í slagæð kemur hann í
veg fyrir blóðstreymi og hindrar súrefnisflutning. Þegar þetta gerist í
hjartanu getur það valdið hjartaáfalli eða hjartaöng; í heilanum getur
þetta valdið heilablóðfalli.
Fræðsla
Notkunarsvið: Hjarta-Aspirín er notað til að minnka hættu á að blóðtappar myndist og fyrirbyggja þannig hjartaáfall, heilablóðfall eða vandamál
í hjarta og æðum hjá sjúklingum með hjartaöng. Hjarta-Aspirín er einnig notað til að koma í veg fyrir myndun blóðtappa eftir ákveðnar tegundir
hjartaaðgerða. Ekki má nota Hjarta-Aspirín: Ef um er að ræða ofnæmi fyrir asetylsalicylsýru eða einhverju öðru innihaldsefni lyfsins, ofnæmi
fyrir öðrum salicylötum eða bólgueyðandi gigtarlyfjum. Ef þú hefur fengið astmakast, eða þrota á ákveðnum svæðum á líkamanum, eftir töku
salicylata eða bólgueyðandi gigtarlyfja. Ef þú ert með eða hefur verið með sár í maga eða smáþörmum eða einhverja aðra tegund blæðingar,
svo sem heilablóðfall. Ef þú hefur einhvern tíma verið með blóðstorknunarvandamál. Ef þú ert með alvarleg lifrar- eða nýrnavandamál. Ef þú ert
að nota lyf sem kallast methotrexat í skammti sem er stærri en 15 mg á viku. Varnaðarorð og varúðarreglur: Leitið ráða hjá lækninum áður en
Hjarta-Aspirín er notað ef þú ert með; nýrna-, lifrar- eða hjartavandamál, hefur einhvern tíma verið með vandamál í maga
eða smáþörmum, ert með háan blóðþrýsting, ert með astma, frjókornaofnæmi, sepa í nefi eða annan langvinnan sjúkdóm
í öndunarfærum, hefur verið með þvagsýrugigt eða færð miklar tíðablæðingar. Láttu lækninn vita ef þú þarft að fara
í aðgerð. Ekki ætlað börnum yngri en 16 ára. Gæta skal þess að ofþorna ekki þar sem notkun asetylsalicylsýru við slíkar
aðstæður getur valdið skerðingu á nýrnastarfsemi. Meðganga og brjóstagjöf: Leita skal ráða hjá lækninum áður en lyfið
er notað. Skömmtun: Fullorðnir: Til að fyrirbyggja hjartaáfall, hjarta- og æðasjúkdóma hjá sjúklingum með hjartaöng eða
blóðtappa eftir ákveðnar tegundir hjartaaðgerða er ráðlagður skammtur er 75-160 mg einu sinni á dag. Til að fyrirbyggja
heilablóðfall er ráðlagður skammtur er 75-325 mg einu sinni á dag. Aldraðir: Eins og hjá fullorðnum. Algengar auka-
verkanir: meltingartruflanir, aukin blæðingartilhneiging. Lesið vandlega fylgiseðil sem fylgir lyfinu. SmPC: Febrúar 2013.