Fréttablaðið - 17.06.2014, Blaðsíða 34
17. júní 2014 ÞRIÐJUDAGUR| LÍFIÐ | 30
1 2
3 4
1. Fánapopp
Olía, poppmaís, 3-4 msk. sykur, matarlitur
– blár og rauður, salt
Hitið olíu í potti og bætið sykri,
rauðum matarlit og poppmaís við.
Leyfið þessu að poppast og hellið í
skál. Endurtakið með bláum matarlit
og poppið loks popp án matarlitar.
Hellið öllu saman í skál og berið fram.
Fengið af
http://www.ohsweetbasil.com/
2. 17. júní súkkulaði
450 g hvítt súkkulaði
225 g rautt súkkulaði
225 g blátt súkkulaði
Skraut í rauðu, bláu og hvítu að eigin vali
Klæðið form sem er 23 sentímetrar
sinnum 33 sentímetrar með bökunar-
pappír. Bræðið hvíta súkkulaðið og
dreifið því í botn formsins. Bræðið
síðan rauða og bláa súkkulaðið og
dreifið því handahófskennt yfir hvíta
súkkulaðið. Notið hníf til að blanda
þessu aðeins saman og búa til munstur
sem minnir á marmara. Skreytið
þetta með skrauti að eigin vali.
Kælið þangað til súkkulaðið harðnar
og brjótið þetta síðan í bita og berið
fram. Fengið af
http://www.lifewiththecrust cutoff.com/
3. Einfaldar hátíðarbollakökur
Kökumix og það sem því fylgir
Skraut í bláu og rauðu
Blandið kökumixið og hellið síðan
skrautinu saman við og blandið vel
saman. Setjið í múffuform og bakið.
Krem
1 bolli hvítt súkkulaði
115 g mjúkt smjör
225 mjúkur rjómaostur
1 tsk. vanilludropar
2 bollar flórsykur
Bræðið hvíta súkkulaðið og leyfið því
að kólna í um tíu mínútur. Blandið
smjöri og rjómaosti vel saman og bætið
því næst súkkulaðinu og vanilludropum
saman við. Blandið flórsykrinum
varlega saman við og skreytið kökurnar
með kreminu. Fengið af
http://delightfuldessert.blog spot.com/
4. Jarðarber í tilefni dagsins
Jarðarber, hvítt súkkulaði, blátt skraut
Bræðið hvítt súkkulaði og dýfið
endanum á jarðarberjunum ofan í.
Veltið endanum því næst upp úr bláu
skrauti og leyfið súkkulaðinu að harðna.
Fengið af
http://scrambledhenfruit.blogspot.com
Lostæti í fánalitunum
Haldið verður upp á 17. júní í dag úti um borg og bæ.
Fréttablaðið býður lesendum sínum upp á nokkrar
litríkar uppskrift ir sem geta lífgað upp á daginn.
„Ég var búinn að vera að selja frisbí-
diska úr skottinu í tíu ár en síðan var
skottið ekki nógu stórt lengur,“ segir
frisbígolfáhugamaðurinn Haukur Árna-
son. Hann ákvað að leggja allt undir
og opna frisbígolfbúð í Hafnarfirði í
apríl og segir hana tvímælalaust vera
skemmtilegustu búð landsins.
„Við ákváðum að opna svona rétt fyrir
vorið og það hefur verið mjög líflegt,
enda mikil gróska í íþróttinni,“ segir
Haukur. ,,Það hefur verið mjög jöfn og
þétt aukning í sportinu síðan Klambra-
túns völlurinn kom, hann var eiginlega
þrepið sem hleypti öllu af stað,“ segir
Haukur. Frisbígolfvöllurinn á Klambra-
túni er nú að hefja sitt fjórða starfs-
sumar og frá stofnun fullyrðir Haukur
að leikmenn hafi farið úr því að vera
í kringum þrjátíu og vel yfir þúsund
manns. „Það er vel ásættanlegt á
fjórum árum.“
Haukur hefur haldið Íslandsmót
síðastliðin tíu ár ásamt fleiri áhuga-
mönnum en síðast tóku um fimm-
tíu manns þátt í mótinu. „Við vorum
síðan sjö sem fórum saman á breska
meistaramótið í maí,“ segir Haukur og
bætir því við að þeir yngri hafi verið að
sækja í sig verðrið. „Ég er náttúrulega
bara orðinn gamall og þreyttur,“ segir
Haukur og hlær. „Þessir ungu eru að
koma hratt upp.“
Haukur segir að það séu ekki bara
einstaklingar sem koma til hans að stíga
sín fyrstu skref í frisbígolfi heldur vilja
mörg fyrirtæki gera íþróttina að fyrir-
tækjasportinu. „Það kom fyrirtæki um
daginn og keypti sex byrjendasett til
að eiga á skrifstofunni sem er nálægt
Klambratúni svo starfsfólkið geti skot-
ist út í hádeginu,“ segir Haukur og
bætir því við að honum þyki þetta snið-
ugt framtak hjá fyrirtækjum. Frisbí-
golfbúðina er að finna í Hafnarfirði á
Reykjavíkurvegi 60 og kostar diskurinn
á bilinu tvö til fjögur þúsund krónur.
Seldi frisbídiska úr
skottinu á bílnum
Mikil gróska hefur verið í frisbígolfi og eru tíu vellir fyrir íþróttina á Íslandi
en þeir verða sautján eft ir sumarið. Haukur Árnason er mikið fyrir íþróttina.
MIKILL LEIKMAÐUR Haukur Árnason hefur komið að Íslandsmótinu í frisbí-
golfi síðustu tíu ár.
Systurnar Kendall og Kylie
Jenner sáu um að kynna verð-
launahátíðina Muchmusic
Video Awards sem fór fram í
Toronto um helgina. Listamenn
á borð við Lorde, Ed Sheeran
og Ariana Grande komu fram á
hátíðinni en á meðal vinnings-
hafa voru Drake, Justin Bieber
og Selena Gomez. Það var þó
klæða burður Jenner-systranna
sem stal senunni í Kanada en
þær voru duglegar að skipta
um föt.
Klæðaburður Jenner-systranna stal senunni
HÁ KLAUF Það
var Kendall sem
fékk athyglina á
rauða dreglinum
í kjól með mjög
háum klaufum
sem sýndu
mjaðmabeinin.
Kjóllinn er frá
Fausto Puglisi
og Kylie systir
hennar klæddist
stuttum appel-
sínugulum kjól.
MARGIR KJÓLAR
Systurnar sjást
hér kynna atriði í
kjólum frá Julien
McDonald.
HLÝRALAUS
Kylie og Kendall
skiptu oft um föt á
hátíðinni.
NORDICPHOTOS/GETTY
LÍFIÐ