Fréttablaðið - 17.06.2014, Page 46
17. júní 2014 ÞRIÐJUDAGUR| LÍFIÐ | 42
Ég er búin að lofa tveimur vinkon-
um mínum úr Reykjavík og dætrum
þeirra að upplifa skrúðgöngu og
smá hátíðarstemningu í Hafnar-
firðinum. Svo kíki ég líklegast á
kaffihús eða út að borða í Reykjavík
um kvöldið.
Berglind Icey, fyrirsæta.
HVAÐ ÆTLAR ÞÚ AÐ
GERA Í DAG, 17. JÚNÍ?
„Topher Adams, ritstjóri tískutímaritsins
Dark Beauty Magazine er mikill Steed
Lord-aðdáandi, og hann bað okkur um
að vera á forsíðunni og í viðtali. Hann
er sjálfur ljósmyndari svo hann tók allar
myndirnar,“ segir Svala Björgvins dóttir
söngkona sem prýðir nýjasta tölublað
bandaríska tískutímaritsins.
Dark Beauty Magazine er tímarit sem
kemur út mánaðarlega og fjallar um
tísku, tónlist, fatahönnuði, leikara og
söngvara sem eru nýir og ferskir á mark-
aðnum og þora að stíga út fyrir ramm-
ann. Hljómsveitin Steed Lord fellur ein-
mitt í þennan hóp en það er ekki hægt
að segja annað en að myndin af
Svölu sé ævintýraleg.
„Ég stíliseraði sjálfa mig en
Eddi og Einar sáu um sína stíl-
iseringu. Myndatakan fór fram
leikhúsinu Los Angeles Theatre
í miðborg LA en það var
byggt í kringum 1927 og
er brjálæðislega flott,“
segir Svala. Hægt er að
skoða myndirnar nánar
á Facebook-síðu blaðs-
ins eða á issuu.com/dark-
beautymag. -mm
STÓRGLÆSI-
LEG Svala
Björgvins í
gullkjól en
hún sá sjálf
um stíliser-
inguna.
„Hann var pínulítill þegar við fund-
um hann en hann dafnar ótrúlega
vel,“ segir Sóley Kristjánsdóttir,
vörumerkjastjóri hjá Ölgerðinni,
en dóttir hennar fann agnarlítinn
starraunga í garðinum heima í síð-
ustu viku. Sóley segist hafa leitað
á náðir Face book til þess að fá ráð-
leggingar um það hvernig best
væri að hugsa um ungann. „Fólk
var ekkert sérlega bjartsýnt um að
unginn myndi hafa þetta af, hann
var svo lítill. En mér var bent á frá-
bæra heimasíðu, starlingtalk.com,
þar sem hægt er að finna allar upp-
lýsingar um það hvað maður eigi að
gera ef maður finnur starraunga,“
segir Sóley, sem telur að heimilis-
kötturinn Dimma hafi fundið hann
og komið með heim.
„Kötturinn tekur stundum mýs
eða fugla með sér heim til að leika
með, hann meiðir samt ekki. Ung-
inn var því ekkert særður þegar
við fundum hann.“ Sóley gerir ráð
fyrir því að unginn, sem hún hefur
nefnt Skugga, hafi ekki verið meira
en þriggja daga þegar hann fannst.
„Inni á heimasíðunni getur
maður séð þær breytingar sem
ungarnir taka dag frá degi. Nú er
hann farinn að standa í lappirnar og
opna augun en það gerist eftir sjö
daga. Ég gat því reiknað mig aftur
í tímann og fundið út aldurinn.“
Sóley segir að starrar séu sérlega
gáfaðir en fái oft og tíðum misjafnt
umtal. „Starrar eru mjög hrein-
legir fuglar og fá yfirleitt ekki flær.
Þeir geta lært að tala og geta hermt
eftir öllum hljóðum.“ Skuggi hefur
fylgt Sóleyju í vinnuna síðustu daga
en hún þarf að gefa honum að éta á
20 mínútna fresti.
„Hann fær blautan kattamat og
barnamat. Það var líka mælt með
því að gefa honum harðsoðin egg
enda nóg af næringarefnum í eggj-
unum,“ segir Sóley en samstarfs-
félagar hennar í Ölgerðinni hafa
tekið Skugga vel. „Þeim finnst
þetta skemmtilegt. Ég var samt
alveg nógu skrýtin fyrir svo þetta
er kannski ekki að hjálpa,“ segir
Sóley hress að lokum.
kristjana@frettabladid.is
Gekk starraunganum
Skugga í móðurstað
Sóley Kristjánsdóttir og dóttir hennar fundu veikburða starraunga í garðinum
heima hjá fj ölskyldunni í síðustu viku. Sóley tók ungann að sér og dafnar hann
vel hjá nýju fj ölskyldunni en hann hefur nú hlotið nafnið Skuggi.
KEMUR MEÐ Í VINNUNA Sóley hefur þurft að hafa Skugga sér við hlið í vinnunni
en unginn þarf að éta á 20 mínútna fresti.
„Dave Weckl er einn áhrifamesti
trommuleikari allra tíma og geð-
þekkur náungi, hann er jafnvígur á
djass-, fönk- og latíntónlist. Það er
einhvern veginn smá Dave Weckl í
okkur öllum trommuleikurum. Stór-
kostlegur fagmaður og áhrifamaður
í djass- og hryntónlist, fyrir utan að
vera mikill áhugamaður um hrað-
skreiða bíla,“ segir trommuleikar-
inn Gunnlaugur Briem um kollega
sinn Dave Weckl sem væntan legur
er hingað til lands í júlí. Weckl
kemur hingað til lands til þess að
miðla þekkingu sinni til íslenskra
trommuleikara og heldur fyrir-
lestur og sýnikennslu fyrir þá sem
hafa áhuga á að skyggnast inn í
hugar heim hans.
Dave Weckl hefur í raun verið
goðsögn í tónlistarheiminum alveg
frá því hann kom fyrst fram á
sjónar sviðið með sveitinni Chick
Corea Elektric Band árið 1986.
Weckl er almennt talinn einn al-
öflugasti djass-fúsjón-trommuleik-
ari sögunnar. Fáir hafa aðra eins
tæknilega getu á hljóðfærið og er
það mikil upplifun að sjá og heyra
hann spila. Weckl hefur í gegnum
tíðina léð stórum nöfnum í tónlist-
inni krafta sína og má þar nefna
aðila eins og Simon & Garfunkel,
Robert Plant, Chick Corea og Mike
Stern. „Þetta er frábært tækifæri
fyrir íslenska trommuleikara og
djassunendur að sjá, heyra og læra
af einum fremsta trommuleikara
heims,“ bætir Gunnlaugur við.
Síðustu misseri hefur Weckl
unnið mikið með gítarleikurunum
Mike Stern og Oz Noy ásamt hljóm-
sveit danska bassaleikarans Chris
Minh Doky, Nomads.
Fyrirlesturinn fer fram í sal FÍH
í Rauðagerði 27 þann 20. júlí næst-
komandi og hefst klukkan 18.00.
- glp
Goðsögn í trommu-
leik kennir á Íslandi
Trommuleikarinn Dave Weckl ætlar sér að miðla
þekkingu sinni til íslenskra trommuleikara í júlí.
Starrar eru mjög
hreinlegir fuglar og fá
yfirleitt ekki flær.
Þeir geta lært að tala og
geta hermt eftir öllum
hljóðum.
Svala á forsíðu Dark Beauty Magazine
Svala Björgvinsdóttir er ævintýraleg á forsíðu nýjasta tölublaðs bandaríska tískutímaritsins.
➜ Weckl hefur í gegnum tíð-
ina léð stórum nöfnum í tón-
listinni krafta sína og má þar
nefna aðila eins og Simon &
Garfunkel, Robert Plant, Chick
Corea og Mike Stern.
ÁHRIFAMIKILL
Dave Weckl er jafn-
vígur á djass,-fönk-
og latínutónlist.