Fréttablaðið - 30.06.2014, Page 22
KYNNING − AUGLÝSINGBílrúður MÁNUDAGUR 30. JÚNÍ 20142
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 Umsjónarmenn auglýsinga: Bryndís Hauksdóttir, s. 512 5434, bryndis@365.is Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal.
Bíllinn er í öruggum hönd-um hjá Páli Gunnlaugs-syni bifreiðasmíðameist-
ara, sem rekur Bílrúðumeistar-
ann á Dalvegi 18 í Kópavogi. Páll
hefur unnið við ísetningar og
viðgerðir á bílrúðum í tólf ár. „Ég
sérhæfi mig í bílrúðuviðgerðum,
rúðuskiptum og rúðuísetning-
um. Ég laga
líka mött ljós
og skipti um
upphalara,“
s e g i r P á l l ,
sem stofnaði
Bílrúðumeist-
arann í mars
2 0 01. N ó g
hefur verið að
gera hjá honum síðan.
Páll sinnir v iðsk iptav in-
um sínum afar vel og raunar
þurfa þeir ekki að hafa áhyggj-
ur af neinu sem snýr að pappírs-
vinnu eða öðru verklegu í kring-
um það tjón sem þeir verða fyrir.
„Fólk þarf ekki að leita til trygg-
ingafélaga ef rúða brotnar. Það
getur leitað beint til mín og ég sé
um öll samskipti við trygginga-
félögin,“ upplýsir Páll og bend-
ir á að Bílrúðumeistarinn sé við-
urkenndur aðili hjá öllum trygg-
ingafélögum á Íslandi. „Þá á ég
í mjög góðum samskiptum við
þau,“ segir Páll sem einnig býður
upp á aðstoð við að fylla út tjóna-
skýrslu.
Viðgerð eða rúðuskipti
„Helstu ástæður þess að rúður
brotna eða skemmast eru fyrst
og fremst steinkast og svo eru
það skemmdarverk á hliðarrúð-
um vegna innbrota,“ segir Páll.
Ef skipta þarf um rúðu þarf fólk
iðulega að borga sjálfsábyrgð og
tryggingafélögin afganginn. Ef
hins vegar er
um viðgerð á
rúðu að ræða
borga t r ygg-
ingafélög-
in það í topp
að sögn Páls.
„Ef greiða þarf
sjálfsábyrgð
af rúðuskipt-
um eru það fimmtán prósent af
kostnaði sem er yfirleitt á bilinu
átta til tólf þúsund. Svo er fram-
rúðan sá hlutur bifreiðarinnar
sem fólk horfir mest á og mikið at-
riði að hún sé í toppstandi,“ segir
Páll glaðlega.
Hægt að skila lyklum
hvenær sem er
Viðskiptavinir eru ekki bundnir
við sérstakan tíma til að koma
bílnum til Bílrúðumeistarans.
„Fólk getur komið hvenær sem er
sólarhringsins og sett bíllyklana
inn um sérstaka lúgu fyrir lykla
sem er á verkstæðinu,“ segir Páll
og upplýsir að viðgerðin taki yfir-
leitt um fjóra tíma. „Flestir koma
með bílinn um morguninn og ná
í hann í hádeginu eða koma með
hann í hádeginu og sækja hann
eftir vinnu,“ segir Páll og lofar
toppgæðum og toppþjónustu
hjá Bílrúðumeistaranum á Dal-
vegi 18.
Nánari upplýsingar má finna á
www.bilrudumeistarinn.is eða
gegnum netfangið brm@brm.is.
pallgunnlaugsson@gmail.com,
8997536.
Meistarinn gerir allt einfaldara
Ef bílrúða brotnar er besta ráðið að panta tíma hjá Bílrúðumeistaranum. Þá er vandinn úr sögunni enda sér eigandinn,
bifreiðasmíðameistarinn Páll Gunnlaugsson, um öll samskipti við tryggingafélögin og aðra pappírsvinnu. Páll sérhæfir sig í öllu er
varðar bílrúðuskipti og -viðgerðir.
brm.is
„Fólk þarf ekki að leita til tryggingafélaga ef rúða brotnar. Það getur leitað beint til mín
og ég sé um öll samskipti við tryggingafélögin,“ upplýsir Páll. MYND/HAG
Toyota vakti mikla athygli fyrir nýj-asta hugmyndabílinn FV2 á bíla-sýningunni í Tókýó í lok síðasta
árs. FV2 stendur fyrir „Fun Vehicle 2“ eða
skemmtilega bifreiðin. Markmið hönnuða
bílsins var að mynda líkamlegt og andlegt
samband milli manns og vélar, svipað og
milli knapa og hests.
Bíllinn stjórnast að hluta af hreyf-
ingum bílstjórans auk þess sem bíllinn
nemur raddblæbrigði og andlitsdrætti bíl-
stjórans til að geta sér til um skap hans.
Þetta hljómar líkt og úr vísindaskáldsögu
en þegar nánar er að gáð er tæknin sem
Toyota notar nú þegar í notkun í öðrum
tólum.
Stjórnað með líkamanum
Útlitið er hins vegar óneitan-
lega eins og úr fjarlægri fram-
tíð. Bíllinn er lítill og rúmar
aðeins bílstjórann sem getur
stjórnað bílnum annað-
hvort sitjandi eða stand-
andi. Í stað dyra er skyggni
á toppnum sem opnast
eins og skel. Ef bílstjórinn
stendur helst skyggnið opið
og myndar nokkurs konar
framrúðu en ef bílstjór-
inn situr lokast hlífin yfir
honum.
Ekkert stýri er í bílnum,
engin bremsa eða bensíngjöf. Í
staðinn bregst FV2 við breytingum á lík-
amsstöðu og þyngd. Þannig þarf bílstjór-
inn að halla sér í þá átt sem á að fara og
halla sér fram til að fara áfram, svipað því
og að aka Segway.
Liturinn endurspeglar skapið
Tækni sem kallast „Illumination“ gerir
FV2 kleift að endurspegla skap bílstjór-
ans með því að breyta um lit. Bíllinn
nemur þannig andlitsdrætti og raddblæ
og ákveður þannig í hvernig skapi öku-
maðurinn er. Tæknin varð til í gegnum
Toyota Heart-verkefnið sem gengur út á að
kenna vélmennum að hafa sam-
skipti með líkams- og andlits-
tjáningu.
Allur bíllinn getur breytt
um lit og mynstur. Þannig
endurspegla mismunandi litir
mismunandi skapferli. Líklega
kemur það sér vel fyrir lögregluna
að vita hverjir
eru við það
að missa
sig úr
reiði. Þá kemur FV2 með ábendingar sem
miða að skapi ökumannsins. „Ertu stress-
aður? Viltu koma við í ræktinni?“
Rafknúin kerra
Dekkjunum á FV2 er raðað upp í tígul. Eitt
hjól að framan og aftan og tvö hjól hvort
til sinnar hliðar bílstjórans. Hliðarhjól-
in lýsast upp og hægt er að breyta litnum
að vild.
FV2-bíllinn, sem hefur verið sýnd-
ur bæði í Tókýó og á fleiri bílasýningum
í vor, er rafmagnsknúinn en Toyota telur
lítið mál að laga aðrar náttúruvæna orku-
gjafa að bílnum.
Þeir sem vilja prófa slíkan bíl geta
komist næst því með því að hlaða niður
appi með kappakstursleik. Hægt er að
hlaða því niður bæði á AppStore og
Google Play.
Bílrúðan endurspeglar skapið
Hugmyndabílar vekja iðulega mikla athygli á alþjóðlegum bílasýningum. Margir þeirra virðast fremur eiga heima í
vísindaskáldsögum en á götum en þegar nánar er að gáð eru hugmyndir bílasmiðanna ekki svo fjarlægar þegar allt kemur til alls.
Toyota FV2 er einn þessara framtíðarbíla.
FV2-hugmyndabílnum er hægt að stjórna bæði standandi og sitjandi. NORDICPHOTOS/GETTY