Fréttablaðið


Fréttablaðið - 30.06.2014, Qupperneq 50

Fréttablaðið - 30.06.2014, Qupperneq 50
30. júní 2014 MÁNUDAGUR| SPORT | 26SPORT GOLF Kristján Þór Einarsson og Tinna Jóhannsdóttir stóðu uppi sem sigurvegarar á Íslandsmótinu í holukeppni sem fór fram við kjör- aðstæður á Hvaleyrarvelli í Hafn- arfirði. Kristján Þór, sem keppir fyrir Kjöl í Mosfellsbæ, hafði betur gegn Bjarka Péturssyni frá Golfklúbbi Borgarness í úrslitum en Tinna, sem keppti á heimavelli, vann Karen Guðnadóttur úr Golf- klúbbi Suðurnesja. „Ég náði að bæta mig með hverjum hring eftir því sem leið á mótið,“ sagði Kristján Þór í sam- tali við Fréttablaðið en óhætt er að fullyrða að hann hafi farið erfiða leið að titlinum. Í fjórðungsúrslit- um lagði hann Birgi Leif Hafþórs- son, margfaldan Íslandsmeistara í höggleik, að velli og Harald Frank- lín Magnús, sem nýlega komst í átta manna úrslit á Opna breska áhugamannamótinu, í undanúr- slitum. „Birgir Leifur er líklega besti kylfingur sem Ísland hefur átt og árangurinn sem Haraldur Frank- lín náði úti var frábær. Bjarki hefur svo spilað frábært golf alla helgina og ég held að hafi farið erf- iðustu leiðina sem möguleg var, með fullri virðingu fyrir öðrum,“ sagði Kristján Þór. Vil ekkert segja um viðbrögðin Kristján Þór lýsti á dögunum óánægju sinni með þá ákvörðun landsliðsþjálfarans Úlfars Jóns- sonar að velja hann ekki í lands- lið Íslands fyrir Evrópukeppni landsliða sem fer fram í Finnlandi í byrjun næsta mánaðar. „Hann segir mér óbeint að ég eigi ekkert heima í landsliðinu því ég á barn og er með annað á leið- inni. Hann telur að metnaðurinn sé ekki í golfinu,“ sagði Kristján Þór í umræddu viðtali við Vísi þann 20. júní síðastliðinn. „Ég kom virkilega „mótiverað- ur“ inn í þetta mót og vildi senda ákveðin skilaboð. Það gekk eftir með þessum sigri,“ segir Kristján Þór sem reiknar ekki með því að fá símtal frá landsliðsþjálfaranum eftir árangur helgarinnar. „Ég þarf bara að bíða og sjá. En ég hef litla trú á því,“ sagði Krist- ján en hann vildi ekki tjá sig um viðbrögð Úlfars sem sagði málið á sínum tíma vera „leiðinlegan mis- skilning“ og að hann hefði ekkert á móti Kristjáni. Næsta mót Kristjáns verður meistaramót Kjalar eftir tvær vikur en að því loknu hefur hann undirbúning fyrir Íslandsmótið í höggleik sem fer fram dagana 24.- 27. júlí. „Það er enginn vafi á því að ég stefni að sigri á landsmótinu en ég verð svo bara að bíða og sjá til hvernig ágústmánuður verður hjá mér. Við eigum von á barni þá og framhaldið ræðst af því,“ sagði Kristján Þór að lokum. eirikur@frettabladid.is Vildi senda ákveðin skilaboð Kristján Þór Einarsson og Tinna Jóhannsdóttir urðu í gær Íslandsmeistarar í holukeppni. Kristján Þór var ekki valinn í landsliðið á dögunum og segist hafa notað mótlætið til að hvetja sig áfram um helgina. Tinna Jóhannsdóttir segir að það eigi vel við sig að spila í holukeppni en hún bar sigur úr býtum á Íslandsmótinu um helgina. Hún hefur þó dregið sig til hliðar frá keppnis- golfinu en stóðst ekki mátið þegar henni bauðst að taka þátt á heimavelli hennar í Hafnarfirði. „Ég gerði engin dýr mistök í úrslita- leiknum og þetta datt ekki fyrir Karen [Guðnadóttur] í dag. Þetta var nokkuð rólegt golf hjá mér,“ sagði Tinna sem var að vinna titilinn í fyrsta sinn. „Ég missti alltaf af þessu móti á náms- árum mínum í Bandaríkjunum en komst í úrslit í fyrra og endaði í þriðja sæti þar áður. Holukeppnin á ágætlega við mig enda er þetta mitt uppáhaldsmót ásamt sveita- keppninni.“ Tinna er í fullri vinnu, auk þess sem hún er að þjálfa hjá golfklúbbnum Keili, og þurfti að fá frí til að keppa í gær. „Ég hef verið að draga mig út úr þessu en það er gaman að sjá hvað það er stór hópur ungra kylfinga að koma upp í kvenna- flokki,“ segir Tinna en hún reiknar ekki með því að keppa á Íslands- mótinu í höggleik síðar í sumar. „Nei og ég held að þessi sigur breytir því ekki því spilamennska mín um helgina myndi aldrei duga til sigurs á landsmóti,“ sagði hún í léttum dúr. Þurfti að fá frí frá vinnu fyrir úrslitin PABBI VANN Kristján Þór Einarsson með dóttur sinni eftir sigurinn á Hvaleyrarvelli í gær. FBL/DANÍEL ÚRSLIT HM 2014 Í BRASILÍU 16-LIÐA ÚRSLIT BRASILÍA - SÍLE 1-1 1-0 David Luiz (18.), 1-1 Alexis Sanchez (32.). Brasilía vann í vítaspyrnukeppni, 3-2. KÓLUMBÍA - ÚRÚGVÆ 2-0 1-0 James Rodriguez (28.), 2-0 James Rodriguez (50.). Brasilía og Kólumbía mætast í undanúrslitum föstudaginn 4. júlí kl. 20.00. HOLLAND - MEXÍKÓ 2-1 0-1 Giovani Dos Santos (48.), 1-1 Wesley Sneijder (88.), 2-1 Klaas-Jan Huntelaar, víti (94.). KOSTARÍKA - GRIKKLAND (1-1) 1-0 Bryan Ruiz (52.), 1-1 Sokratis Papastatho- poulos (91.). Framleningu var ekki lokið þegar Fréttablaðið fór í prentun í gær. Í DAG FRAKKLAND - NÍGERÍA KL. 16.00 ÞÝSKALAND - ALSÍR KL. 20.00 Sigurvegararnir mætast í undanúrslitum föstudag- inn 4. júlí kl. 16.00. Á MORGUN ARGENTÍNA - SVISS KL. 16.00 ÞÝSKALAND - ALSÍR KL. 20.00 Sigurvegararnir mætast í undanúrslitum laugardaginn 5. júlí kl. 16.00. KÖRFUBOLTI Snæfell tilkynnti góðan liðsstyrk í gærkvöldi fyrir komandi átök í Domino’s-deild kvenna en liðið hefur endurheimt þær Maríu Björnsdóttur frá Val og Gunnhildi Gunnarsdóttur úr Haukum. Báðar eru uppaldar hjá félaginu og léku síðast með því árið 2010. Þá gekk Snæfell einnig frá nýjum samningi við Helgu Hjör- dísi Björgvinsdóttur en liðið hefur þó misst Hildi Björgu Kjartansdóttur í nám til Banda- ríkjanna. Snæfell varð Íslandsmeistari í vor og ætlar sér greinilega ekki að láta bikarinn af hendi á næsta tímabili. - esá Snúa aft ur í Snæfell FRJÁLSAR Ísland átti fjölmarga fulltrúa á Gautaborgarleikun- um í Svíþjóð um helgina en keppt var í öllum aldurs- flokkum. Haf- dís Sigurðar- dóttir vann gull í 100 m hlaupi kvenna sem og lang- stökki en hún varð önnur í 200 m hlaupi. Kolbeinn Höður Gunnarsson vann sigur í 400 m hlaupi karla nítján ára og yngri og Jóhann Björn Sigurbjörnsson varð annar. Báðir voru svo nálægt sínu besta í 200 m hlaupi. Þórdís Eva Steinsdóttir bætti Íslandsmetið í 300 m hlaupi og 31 árs gamalt Íslandsmet í 800 m hlaupi fjórtán ára og yngri sem móðir hennar, Súsanna Helga- dóttir, setti á sínum tíma. Þá bætti Styrmir Dan Steinunnarson Íslandsmet pilta fimmtán ára og yngri í hástökki en hann stökk 1,94 m. - esá Met bætt í Gautaborg HAFDÍS SIGURÐARDÓTTIR Allt um HM á Vísi STJARNA GÆRDAGSINS Klaas-Jan Huntelaar Holland 16.00 FRAKKLAND - NÍGERÍA 20.00 ÞÝSKALAND - ALSÍR Tvær Evrópuþjóðir etja kappi við Afríkuliðin tvö sem eftir eru í keppninni í Brasilíu í leikjum dagsins. Þýskaland og Frakkland eru með lið sem gætu farið alla leið og því reikna flestir með sigri Evrópuþjóð- anna. Alsíringar hafa þó heillað marga með frammistöðu sinni á mótinu og gætu reynst Thomas Müller og félögum óþægur ljár í þúfu. Frakkar hafa verið öflugir til þessa og verða mögulega of stór biti fyrir Nígeríumenn. HM í Brasilíu er að verða keppni varamannanna en einn slíkur gerbreytti öllu í leik Hollands og Mexíkó í gær. Klaas-Jan Huntelaar kom inn á þegar Holland var marki undir en lagði upp jöfnunarmark Wesley Sneijder og skoraði svo sigurmark sinna manna úr vítaspyrnu í uppbótartíma leiksins. FÓTBOLTI Angel Oyarzun, varaforseti spænska úrvalsdeildarfélagsins Real Sociedad, segist „afar vongóður“ um að félagið geti gengið frá kaupunum á sóknarmanninum Alfreð Finn- bogasyni sem allra fyrst. Þetta var haft eftir honum á vefsíðu staðarblaðsins Noticias de Gipuzkoa síðdegis í gær. „Knattspyrnufélög nú til dags stíga almennt varlega til jarðar þegar kemur að leikmanna- málum en ég er vongóður um að þetta leysist fyrr en síðar,“ sagði Oyarzun. Annað blað, El Diario Vasco, fjallaði um málið í gær og sagði að kaupin á Alfreð væru óháð því hvort félagið myndi selja Antoine Griezmann eða ekki frá félaginu. Alfreð er sagður kosta spænska félagið allt að tíu millj- ónir evra, jafnvirði rúmlega eins og hálfs millj- arðs króna, samkvæmt fréttum í Hollandi og á Spáni. Hollenska blaðið De Telegraaf staðhæfði fyrir viku síðan að það væri aðeins tímaspurs- mál hvenær Alfreð færi til spænska liðsins en hann hefur síðustu vikur og mánuði verið orð- aður við fjöldamörg lið í Evrópu sem mörg hver leika í sterkustu deildum álfunnar. Alfreð varð markahæsti leikmaður hollensku úrvalsdeildarinnar í vetur með 29 mörk en eng- inn Íslendingur hefur skorað fleiri mörk á einu tímabili í efstu deild í Evrópu. Hann er einnig markahæsti leikmaður Heerenveen í hollensku deildinni frá upphafi en hann á eitt ár eftir af núverandi samningi sínum við félagið. Heerenveen á þó þess kost að framlengja samninginn um eitt ár í viðbót næsta vor. - esá Alfreð færist enn nær Real Sociedad Varaforseti félagsins segir mjög stutt í að gengið verði frá félagaskiptum Alfreðs í spænsku úrvalsdeildina. Á LEIÐ TIL SPÁNAR Alfreð fagnar einu marka sinna í Hollandi í vetur en hann er líklega á leið þaðan. Hollendingar hafa sýnt að það beri ekki að afskrifa þá þrátt fyrir að þeir lendi undir í sínum leikjum á HM í Brasilíu. Það hefur nú gerst í þremur af fjórum leikjum liðsins til þessa en Arjen Robben og félagar hafa náð að snúa taflinu sér í vil og vinna allan leikina, nú síðast gegn Mexíkó í 16-liða úrslitum í gær. Holland er fyrsta liðið í sögu keppninnar sem afrekar þetta svo oft. Hollendingar í sögubækurnar fyrir endurkomur sínar á HM FR ÉT TA BL AÐ IÐ /G ET TY

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.