Fréttablaðið - 30.06.2014, Síða 54
30. júní 2014 MÁNUDAGUR| LÍFIÐ | 30
0 KR.
LJÓSHRAÐI FYLGI
R
MEÐ VÖLDUM
SJÓNVARPS-
ÁSKRIFTUM
Internet á
ljóshraða
Við bjóðum upp á internet á ljóshraða til 80 þúsund
heimila. Það er einfalt að athuga hvort þitt heimili er
tengt, á 365.is geturðu séð hvort þú kemst á ljóshraða.
Hægt er að nálgast allar nánari upplýsingar og
panta tengingu á 365.is.
Frá 3.490 kr.
Greiða þarf 2.610 kr. aðgangsgjald.
100
Mb/s
200
Mb/s
400
Mb/s
Nú getur þú fengið
mikinn hraða, meiri hraða
og miklu meiri hraða.
NÝTT!
Hér væri auðvitað eðlilegast að
nefna einhverja vandaða bollu með
ódýrum vodka og niðursoðnum
ávöxtum en ætli ég verði ekki að
segja volgt vatn með nýkreistri
sítrónu og dass af engifer drukkið
fyrir klukkan sjö að morgni fyrir
bestu áhrifin á húð og hár.
Lára Björg Björnsdóttir rithöfundur
DRYKKURINN
„Ég gat aldrei orðið rokkstjarna
þannig að ég ákvað að gerast
góður myndhöggvari í staðinn,“
segir listamaðurinn Jón Adolf
Steinólfsson hlæjandi en hann
opnar sýningu í Perlunni á morgun
ásamt Karin Esther og Finnboga
Kristinssyni en þau reka galleríið
16C í Kópavoginum.
„Þetta er mjög litrík sýning og
það er ekki neinn einn sérstakur
stíll yfir þessu,“ segir Jón Adolf.
„Ég hef aldrei viljað hengja mig
á einhvern einn stíl.“ Jón Adolf
hefur skorið út allt frá gíturum til
aska. „Mér finnst gaman að taka
gamlar hefðir og færa þær yfir til
nútímans“, segir listamaðurinn
sem hefur meðal annars skorið
út tölvuskjái. „Mér fannst gamla
handbragðið alltaf svo skemmti-
legt en það átti ekki mikið við
mig, ég er svo mikill uppreisnar-
seggur.“
Þetta er annað árið sem lista-
mannahópurinn sýnir í Perlunni
en Karin Esther sérhæfir sig
í glerskúlptúrum þar sem hún
nýtir mikið íslenska náttúru á
borð við hraun og blandar því inn
í sín verk á meðan Finnbogi málar
mest abstraktmyndir. Eins og áður
hefur komið fram verður sýningin
opnuð á morgun í Perlunni.
baldvin@frettabladid.is
Hæðst að hinu hefðbundna
Myndhöggvarinn Jón Adolf Steinólfsson opnar sýningu á morgun í Perlunni en
hann hefur alltaf verið mikill uppreisnarseggur og hengir sig ekki á einn stíl.
MIKILL UPPREISNARSEGGUR
Jón Adolf vill ekki hengja sig á
einhvern einn sérstakan stíl.
„Við förum varla út úr húsi nema þá bara til þess að
fara í súpermarkaðinn og þess háttar,“ segir Haukur
Heiðar Hauksson, söngvari, gítar- og píanóleikari
hljómsveitarinnar Diktu en hún er stödd í hljóðveri í
Düsseldorf í Þýskalandi um þessar mundir og hljóð-
ritar þar nýja tónlist. Sveitin hefur að undanförnu
látið lítið fyrir sér fara og gaf síðast út plötuna Trust
Me árið 2011.
„Við verðum hérna í tvær vikur og bókstaflega
gistum í stúdíóinu,“ segir Haukur Heiðar en þeir
félagar eru í hljóðverinu ásamt upptökustjóranum
Sky van Hoff. „Við komum hingað í fyrra í nokkra
daga og tókum upp með honum tvö lög og vorum
gríðarlega sáttir. Hann er upprennandi stjarna hér
í Þýskalandi og samstarfið gengur mjög vel,“ bætir
Haukur Heiðar við. Hljómsveitin fór út með prufu-
upptökur að 25 lögum og vinnur nú af kappi í vel
völdum lögum.
„Við erum mikið að vinna lögin hérna, þróum þau
og pródúserum í samvinnu við Sky.“ Haukur Heiðar
segist ekki vita hvort þeir nái að klára plötuna úti.
„Við vitum ekki hvað við komumst langt með þetta
þannig að útgáfutíminn er í lausu lofti. Við ætlum
bara að einbeita okkur að því að búa til plötu og svo
kemur hún bara út þegar hún er tilbúin,“ segir Hauk-
ur Heiðar spurður um mögulegan útgáfutíma.
Engir tónleikar eru planaðir hjá sveitinni en hún
gerir þó ráð fyrir að koma fram í sumar. „Við tökum
líklega einhver gigg í sumar og haust.“ - glp
Dikta hljóðritar í Þýskalandi
Hljómsveitin Dikta er um þessar mundir stödd á erlendri grundu þar sem hún
dvelur í hljóðveri. Sveitin hefur verið í dvala og ekki gefi ð út plötu síðan 2011.
UPPTEKNIR Hljómsveitin Dikta vinnur nú hörðum höndum
að nýrri plötu í hljóðveri í Þýskalandi. MYND/EINKASAFN
Kanadíska rokkgoðsögnin Bryan
Adams heldur tónleika í Eldborg-
arsal Hörpu laugardaginn 9. ágúst
og fl ytur öll sín vinsælustu og
bestu lög en hann hefur undanfarin
ár verið að túra af og til einn með
gítar ásamt píanóleikara á svo-
kölluðum Bare Bones-túr. „Bare
Bones- hljómleikarnir hafa verið
að fá gríðarlega góða dóma, röddin
er alveg frábær og Bryan Adams
innilegur, fyndinn og skemmti-
legur á sviðinu,“ segir Guðbjartur
Finnbjörnsson tónleikahaldari.
Tónleikarnir eru því einstakt
tækifæri til að fá að upplifa lista-
manninn í mikilli nálægð og jafn-
vel biðja hann um óskalag. „Hann
er mikið að tala við áhorfendur á
milli laga, hann segir sögur af lög-
unum og svoleiðis. Ég hef heyrt að
þegar hann er í stuði þá kalli hann
jafnvel eftir óskalögum úr sal,“
bætir Guðbjartur við.
Hann segist hafa verið í nokkur
ár að reyna fá kanadísku goðsögn-
ina til landsins. „Ég hef verið að
vinna í því meðfram öðru að fá
hann til landsins í nokkur ár. Þá
sérstaklega með það í huga að fá
hann í Eldborgarsal Hörpu. Mér
fi nnst það vera frábær staður fyrir
þetta konsept.“
Bryan Adams er geysivinsæll
hér á landi, er möguleiki á aukatón-
leikum ef það uppselt verður á tón-
leikana? „Það er möguleiki á auka-
tónleikum en ég tek þó bara eina
tónleika í einu,“ segir Guðbjartur.
Bryan Adams er einn vinsæl-
asti tónlistarmaður sögunnar og
hefur selt yfi r 100 milljónir plata.
Hann hefur unnið til tuga verð-
launa á ferli sínum, þar á meðal
20 kana d ískra Juno-verðlauna
sem eru sambærileg Grammy-
Kanadíski kóngurinn
á leiðinni til landsins
Tónlistarmaðurinn Bryan Adams heldur tónleika á Íslandi í ágúst. Hann ætlar að
leika öll sín vinsælustu lög en hann hefur selt meira en 100 milljónir platna.
KEMUR Í HEIMSÓKN Bryan Adams kemur fram á tónleikum í Hörpu í sumar.
NORDICPHOTOS/GETTY
➜ Bryan Adams er einn vinsælasti tónlistarmaður sögunnar og hefur selt yfir
100 milljónir plata.
➜ Aðrir kanadískir listamenn komast ekki með tærnar þar sem hann hefur
hælana í plötusölu. Alanis Morissette hefur selt um 60 milljónir platna og
kanadíski prinsinn Justin Bieber hefur selt um 15 milljónir platna.
➜ Hans vinsælustu lög eru (Everything I do) I Do It For You, Heaven, Please
Forgive Me, Here I Am, Summer of 69, Straight from the Heart, When you
Love Someone, Run To You, Have You Ever Really Loved a Woman, All for
Love og mörg fleiri.
Bryan Adams– kanadíski kóngurinn
verðlaunum Bandaríkjamanna.
Hann hefur 15 sinnum verið til-
nefndur til Grammy-verðlauna
og unnið þau nokkrum sinnum.
Fimm sinnum verið tilnefndur til
Golden Globe-verðlauna og þrisv-
ar til Óskarsverðlauna fyrir lög í
kvikmyndum.
„Bryan Adams er sá kanadíski
tónlistarmaður sem hefur selt
langfl estar plötur. Justin Bieber,
sem einnig er Kanadamaður,
kemst ekki með tærnar þar sem
Bryan Adams hefur hælana,“ segir
Guðbjartur léttur í lundu.
gunnarleo@frettabladid.is