Fréttablaðið - 04.07.2014, Page 35
| FÓLK | 3
MASI MODELLO ROSSO 3
LÍTRAR
Ítalía/Veneto, 6.650 kr.
Rúbínrautt. Létt fylling, þurrt, fersk
sýra, milt tannín. Dökk ber, krydd,
blómlegt.
Smellpassar með pasta, græn-
metisréttum og smáréttum.
MONTALTO NERO
D’AVOLA MERLOT 3
LÍTRAR
Ítalía/Sikiley, 5.999 kr.
Vín sem hentar vel með alifugla-
kjöti, pastaréttum, einnig flott
með reyktu kjöti.
Piccini 2 lítrar
Lífrænt ræktað rauðvín
Ítalía/Toskana, 4.499 kr.
Kirsuberjarautt. Létt meðalfylling, þurrt,
fersk sýra, mild tannín. Kirsuber, lauf-
krydd, sólbakað.
2 lítra pakkning, lífrænt ræktað vín, pass-
ar vel með svína- og lambakjöti, einnig
flott með grillmat og smáréttum.
MONTALTO CHARDONNAY
3 LÍTRAR
Ítalía/Sikiley, 5.599 kr.
Sítrónugult. Létt meðalfyll-
ing, ósætt, mild sýra. Epli, pera,
hunang.
Flott vín sem fordrykkur, einnig
ljúft með fisk- og skelfiskréttum.
MONTALTO SYRAH
Ítalía/Sikiley, 5.999 kr.
Rúbínrautt. Meðalfylling,
þurrt, fersk sýra, lítið þurrkandi
tannín. Dökk ber, sólbakað.
Henntar vel með svínakjöti,
ostum, grillmat og pasta-
réttum.
GATO NERO CHAR-
DONNAY 3 LÍTRAR
Síle, 5.799 kr.
Ljóssítrónugult. Létt fylling, þurrt,
fersk sýra. Epli, eplakjarni, sítrus.
Þetta vín hentar sem fordrykkur,
einnig flott með fisk- og skelfisk-
réttum.
Talsverð vakning hefur orðið hjá vínframleið-endum varðandi kassavínin síðustu ár. Áður var enginn sérstakur stimpill á þessum kassa-
vínum en menn hafa gert sér grein fyrir að í þeim
liggja mikil markaðstækifæri og leggja því meiri
metnað í vínin en áður,“ segir Jóhann Marel Viðars-
son, þjónn og kennari hjá Vínskóla Ölgerðarinnar.
Hann segir hráefnið í kassavínunum ekki hafa verið
af miklum gæðum hér áður fyrr. „Þegar verið er
að pressa vínber, stilka og steina er ákveðinn djús
sem er ekki æskilegur í fínni vínum og þá var hann
frekar notaður í kassavínin. Í dag er hins vegar
verið að nota betri djús í kassavínin auk þess sem
fleiri flottir framleiðendur hafa farið inn á þennan
markað,“ segir Jóhann og bætir við að einnig hafi
orðið vakning í umbúðahönnun. „Sumir kassanna
sóma sér mjög vel uppi á borði.“
Kassarnir hafa marga kosti fram yfir hinar hefð-
bundnu flöskur. „Í fyrsta lagi er mun hagkvæmara
að kaupa vín í kassa. Það má segja að fólk sé að fá
fjórar flöskur á verði þriggja. Þá geymist vínið mun
lengur. Gera má ráð fyrir að vín í kassa geymist
í allt að fjórar til sex vikur eftir opnun, við rétt
geymsluskilyrði. Vín í flösku lifir ekki lengur en
þrjá, fjóra daga frá opnun,“ útskýrir Jóhann en
ástæðan fyrir löngu geymsluþoli kassavínanna er
að pokarnir sem vínið er geymt í eru lofttæmdir.
HENTUG Í FERÐALAGIÐ
Inntur eftir því hvar kassavínin eigi best við svarar
Jóhann glaðlega: „Í raun við öll tækifæri þar sem á
að gleðja sálina. En vissulega eiga þau einna best
við í ferðalagið, til dæmis í bústaðinn eða tjald-
ferðalagið,“ segir Jóhann. Helstu kostir kassanna
í ferðalaginu er auðvitað sá að þeir brotna ekki
og auðvelt er að stafla þeim upp í bílnum. Jóhann
nefnir einnig að kassavínin séu hagkvæmur kostur
í brúðkaup. „Þá mætti til dæmis hella víninu yfir í
karöflur.“
En á hann sér uppáhaldsvín? „Já, ég er mjög
hrifinn af Lindeman-vínunum. Svo eru Giacondi-vín-
in alveg sérstaklega fersk. Ég tók þátt í að smakka
þau þegar þau komu fyrst til landsins og þau náðu
mér strax í byrjun, en það er ekki alltaf þannig með
kassavínin.“
KASSAVÍNIN ERU SNILLD Í ÚTI-
LEGUNA OG BÚSTAÐINN Í SUMAR
FERÐALAGIÐ Mikil framför hefur orðið í þróun kassavína undanfarin ár. Þau þykja nærri því að vera á pari við flöskuvínin en eru
hagkvæmari kostur auk þess sem þau smellpassa í útilegur og sumarbústaðaferðir.
Giacondi Pinot Grigio 3 lítrar
Ítalía/Veneto, 5.999 kr.
Ljóssítrónugult. Létt fylling, þurrt, mild
sýra. Ljós ávöxtur, stjörnuávöxtur, krydd.
Vín sem passar sem fordrykkur, með
fiskréttum og einnig grænmetisréttum.
Jóhann Marel Viðarsson, þjónn og kennari í Vínskóla Ölgerðar-
innar, segir mikla framför hafa orðið í gæðum kassavína.
MYND/DANÍEL
GATO NEGRO CABERNET
SAUVIGNON 3 LÍTRAR
Síle, 5.600 kr.
Rúbínrautt. Létt fylling, þurrt,
mild sýra, milt tannín. Sæt-
kenndur rauður ávöxtur,
berjaríkt.
Vín sem flott er að neyta með
lambakjöti, grillréttum, ostum
og pastaréttum.
LINDEMANS CHARDONNAY
3 LÍTRAR
Ástralía, 6.799 kr.
Ljóssítrónugult. Létt meðalfylling,
þurrt, fersk sýra. Suðrænn ávöxtur,
ferskja.
Flott vín sem hentar með fisk- og
skelfiskréttum, alifuglakjöti og
smáréttum.
LINDEMANS SHIRAZ
CABERNET 3 LÍTRAR
Ástralía, 6.799 kr.
Kirsuberjarautt. Meðalfylling,
hálfþurrt, fersk sýra, milt tannín.
Kirsuber, dökk ber, plóma,
minta.
Þetta vín hentar vel með ali-
fuglakjöti, svínakjöti og grillmat.
MAMMA PICCINI 3 LÍTRAR
Ítalía/Toskana, 5.560 kr.
Kirsuberjarautt. Meðalfylling, þurrt,
fersk sýra, miðlungstannín. Dökk og
rauð ber, lyng.
Vín sem passar með alifugla- og
svínakjöti, einnig með pastaréttum
sem og smáréttum.
Giacondi Cabernet 3 lítrar
Ítalía, 5.770 kr.
Kirsuberjarautt. Létt meðalfylling,
ósætt, fersk sýra, miðlungstannín.
Kirsuber, plómur, laufkrydd, jörð.
Smellpassar með nauta- og svína-
kjöti sem og gott með ostum.