Fréttablaðið - 19.07.2014, Síða 4
19. júlí 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR |
5
4
298 fórust þegar farþegaþota Malaysian Airlines, MH17, var skotin niður yfir Úkraínu á fimmtudag. Fimmtán
voru í áhöfn og farþegar 283, þar af þrjú ungbörn.
ár eru þar til kemur að
frekari stækkun Evrópu-
sambandsins, sam-
kvæmt því sem Jean-Claude
Juncker, nýkjörinn forseti
framkvæmdastjórnar Evrópu-
sambandsins, sagði í ræðu á
Evrópuþinginu í vikunni.
gegn Argentínu tryggði Þjóðverjum heimsmeistaratitilinn
í knattspyrnu síðastliðinn sunnudag.
1-0
aukning
hefur orðið
á sölu bólgu-
eyðandi verkjalyfj a síðastlið-
inn áratug. Á sama tíma hefur
tíðni blæðinga í meltingar-
vegi aukist um 47 prósent.
20%10
Pele575.000
krónur fengust í
styrktarsölu Bláa
naglans á áritaðri
treyju brasilísku
fótboltastjörnunnar
Pele til Hópbíla í
byrjun vikunnar.
1.700
manns sóttu útifund á
Lækjartorgi síðastliðinn
mánudag þar sem mót-
mælt var árásum Ísraels
á Palestínumenn á Gasa.
80 milljónirkróna renna til framkvæmda-
stjóra Árborgar í formi launa-
greiðslna á fjórum árum.
Minnihlutinn í sveitarstjórn
segir mánaðarlaunin nema
1,6 milljónum.
Vaxandi þrýstingur er á Rússa að
liðka fyrir friði í Úkraínu eftir að
aðskilnaðarsinnar þar skutu niður
Boeing 777 farþegaþotu Malaysia
Airlines á fimmtudag.
Á blaðamannafundi vegna
atburðanna, sem Barack Obama
Bandaríkjaforseti hélt í Hvíta hús-
inu í Bandaríkjunum síðdegis í
gær, áréttaði hann nauðsyn þess að
koma á vopnahléi í landinu. Hann
sagði Vladimír Pútín Rússlandsfor-
seta mest vald hafa á þróun átak-
anna í Úkraínu.
„Ég verð á næstu stundum og
dögum í sambandi við leiðtoga
heims um hvernig best sé að bregð-
ast við þessum harmleik,“ sagði
Obama. „Við ætlum að sjá til þess
að sannleikurinn komi fram.“
Um leið kom fram í máli forset-
an að auknar vísbendingar væru
um að eldflaugaárásin á þotuna
hefði komið frá svæði undir stjórn
aðskilnaðarsinna í austanverðri
Úkraínu. Aðskilnaðarsinna sem
notið hefðu stuðnings Rússa.
„Og Rússland hefur neitað að
taka þau skref sem nauðsynleg
eru til þess að friður og öryggi
komist á ný á í Úkraínu,“ sagði
Obama sem kvaðst hafa rætt við
Pútín Rússlandsforseta deginum
áður og meðal annars rætt refsiað-
gerðir á hendur Rússlandi á meðan
ekki yrðu tekin raunhæf skref til
að koma á friði.
Öryggisráðið fundaði
Á fundi Öryggisráðs Sameinuðu
þjóðanna í gær vógu sendiherrar
Bretlands og Bandaríkjanna líka
hart að Rússum og sökuðu þá um
að kynda undir átökum í Úkraínu.
Líkt og Bandaríkjaforseti í ræðu
sinni fóru sendiherrarnir yfir
hvernig aðskilnaðarsinnum hefði
tekist að skjóta niður flugvélar
frá úkraínska hernum á síðustu
dögum.
„Rússland getur endað þetta
stríð. Rússland verður að binda
enda á þetta stríð,“ sagði Samantha
Power, sendiherra Bandaríkjanna,
á fundi öryggisráðsins. Hún sagði
líka að Bandaríkin hefðu ekki
vitneskju um að Úkraínuher hefði
búnað á svæðinu, sem hægt væri
að nota til að skjóta niður flugvél-
ina. Hún sagði jafnframt ólíklegt
að aðskilnaðarsinnar hefðu getað
beitt slíku tæki án tæknilegrar
hjálpar frá Rússum.
Mark Lyall, sendiherra Bret-
lands, sagði að öryggisráðið yrði að
gera meira en að gefa út tilkynn-
ingu. Krefjast þyrfti þess að vopn
yrðu lögð niður.
Fyrr í gær hvatti Vladimír Pútín
Rússlandsforseti jafnt úkraínska
stjórnarherinn sem aðskilnaðar-
sinna í austurhluta Úkraínu til að
leggja niður vopn og hefja friðar-
viðræður. „Það verður að koma á
friði í Úkraínu eins fljótt og auðið
er,“ sagði hann og kvaðst hafa
miklar áhyggjur af atburðunum í
Úkraínu. „Þetta er skelfilegt. Þetta
er harmleikur,“ segir í frétt RTE.
Angela Merkel Þýskalandskansl-
ari sagði að rússnesk stjórnvöld
yrðu að leggja sitt af mörkum til
að flýta friðarferlinu í Úkraínu.
Kvað hún vopnahlé nauðsynlegt til
að hægt væri að rannsaka árásina
á vél Malaysia Airlines.
Hörmung í hollenskri flugsögu
Þá sagði Maerk Rutte, forsætisráð-
herra Hollands, í gær að árásin á
farþegaþotuna væri mesta hörm-
ung flugsögunnar sem dunið hefði
yfir hollensku þjóðina. Flestir
þeirra sem fórust með flugvélinni
voru Hollendingar, eða 154. Hann
sagði hollensk stjórnvöld krefjast
nákvæmrar rannsóknar á hrapi
flugvélarinnar og ef í ljós kæmi
að um vísvitandi verknað væri að
ræða yrði að draga þá til ábyrgðar
sem staðið hefðu að verknaðinum.
Enn hefur þó enginn gengist við
því að hafa skotið á malasísku þot-
una. Arseníj Jatsenjúk, forsætis-
ráðherra Úkraínu, fullyrti hins
vegar á blaðamannafundi í gær-
morgun að rússneskir hryðju-
verkamenn bæru ábyrgð á verkn-
aðinum. Hann hvatti ríkisstjórnir
allra landa sem málið snerti til
að vinna með Úkraínumönnum í
„að koma þeim drullusokkum sem
sem frömdu þennan glæp fyrir
dóm“. Um væri að ræða glæp gegn
mannkyninu og með honum hefði
verið „farið yfir öll strik“. Rúss-
ar vísa hins vegar allri ábyrgð
á hendur Úkraínumönnum sem
hefðu með nýjustu árásum sínum
í austurhluta landsins æst upp átök
á svæðinu.
Hljóðupptökur vekja grun
Leyniþjónustan í Úkraínu hefur
birt hljóðupptökur af tveimur sím-
tölum, annars vegar á milli leið-
toga uppreisnarmanna og rúss-
nesks leyniþjónustumanns og hins
vegar á milli tveggja uppreisn-
armanna þar sem talað er um að
skotið hafi verið á flugvélina. Ekki
hefur þó verið sannreynt að upp-
tökurnar séu af samtölum þessara
manna.
- óká, hmp, skó, aí
Spjótin beinast nú að Rússlandi
Bandaríkjaforseti segir ábyrgð Rússa mikla á að ekki hafi tekist að koma á friði í Úkraínu. Kallar eftir ákveðnum skrefum í friðarátt og boðar
samráð þjóðarleiðtoga um næstu skref. Úkraínumenn segja aðskilnaðarsinna studda af Rússum ábyrga fyrir árásinni á þotu Malaysia Airlines.
FRÉTTASKÝRING
Óli Kristján
Ármannsson
olikr@frettabladid.is
Árásin á vél Malaysia Airlines
HRYLLINGUR Á SÓLBLÓMAAKRI Kona gengur fram hjá líki vöfðu í plast nærri staðnum þar sem Boeing 777 farþegaþota
Malaysia-flugfélagsins kom niður nærri þorpinu Rozsypne í austurhluta Úkraínu í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SIGUR
Um þrjátíu sérfræðingar frá Öryggis-
og samvinnustofnun Evrópu (ÖSE)
hófu rannsókn á braki vélarinnar í
gærkvöldi. Talsmaður stofnunar-
innar segir að fyrsti hópurinn sem
mætti á staðinn hafi mætt fjand-
skap af hálfu vopnaðra aðskilnaðar-
sinna sem ráða ríkjum á svæðinu.
Michael Bociurkiw, talsmaður
rannsóknarliða ÖSE, sagði við CNN
að þeim hefði verið meinaður
aðgangur að stórum hluta svæðisins
í kringum brakið. „Við munum
snúa aftur á morgun og dagana eftir
það,“ segir hann í viðtali við The
Guardian. Nauðsynlegt sé að hraða
rannsókninni.
➜ Sakaðir um að
hindra rannsókn
12.07.2014 ➜ 18.07.2014
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is,
Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is
FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is,
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
fyrir börn í Suður-Súdan
Neyðarákall
Hundruð þúsunda barna búa við
sára neyð og hungur í Suður-Súdan.
Þau þurfa hjálp – núna!
Súdan
Eþíópía
Mið-Afríku-
lýðveldið
Suður-Súdan
Sendu sms-ið
BARN í númerið 1900
og gefðu 1.900 krónur
Vordís Eiríksdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
SKIN OG SKÚRIR lýsir helgarveðrinu ágætlega. Rigning eða skúrir víða í dag,
sólarglætur um S- og N-vert landið á morgun en rigning A-lands. Hiti með ágætum,
yfirleitt 10-20 stig og fremur hægur vindur. Dálítil væta í kortunum fyrir komandi viku.
12°
4
m/s
11°
3
m/s
13°
2
m/s
11°
9
m/s
Hæg NA-
eða A-læg
átt.
Fremur
hæg
breytileg
átt.
Gildistími korta er um hádegi
26°
32°
26°
30°
20°
23°
31°
24°
24°
25°
29°
35°
32°
31°
31°
31°
25°
32°
12°
6
m/s
12°
5
m/s
16°
7
m/s
19°
5
m/s
18°
2
m/s
14°
2
m/s
11°
2
m/s
13°
14°
11°
9°
16°
13°
19°
20°
18°
17°
Alicante
Aþena
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
MÁNUDAGUR
Á MORGUN