Fréttablaðið - 19.08.2014, Side 49
ÞRIÐJUDAGUR 19. ágúst 2014 | SPORT | 33
www.sminor.is
KÖRFUBOLTI Ísland er aðeins 40
mínútum frá því að komast inn á
Evrópumótið í körfubolta. Sigur
á Bretum í Koparkassanum í
London á miðvikudagskvöldið
gæti skrifað annað bindi í sögu
íslenska körfuboltans. Eftir
þrettán stiga sigur á Bretum í
Höllinni nægir íslensku strák-
unum sigur á breska liðinu til
þess að tryggja sér annað sætið
í riðlinum sem gefur nánast
örugglega sæti í úrslitakeppni
EM.
Koparkassinn var byggður
fyrir Ólympíuleikana í Lond-
on 2012 og þar fór fram riðla-
keppni handboltans á sumar-
leikunum fyrir tveimur árum.
Íslenska handboltalandsliðið
er eini fulltrúi Íslands í höll inni
fyrir þennan leik annað kvöld
og það er ekki mikið hægt að
kvarta yfir genginu til þessa.
Íslenska handboltalandsliðið
vann alla fimm leikina í Kop-
arkassanum í riðlakeppni ÓL
í London, þar á meðal sigur á
bæði Frökkum og Svíum sem
enduðu síðan á því að spila um
gullið á leikunum. Íslenska
liðið vann Argentínu og Túnis
í fyrstu tveimur leikjum sínum
og síðasti leikur íslensks lands-
liðs í húsinu var síðan sautján
marka sigur á breska landslið-
inu, 41–24.
Tveimur dögum eftir sigur-
inn á Bretum var komið að átta
liða úrslitunum en þá var ekki
lengur spilað í Koparkassanum
heldur í Körfuboltahöllinni sem
er stærra hús. Íslenska liðið
tapaði fyrir Ungverjum í fram-
lengdum leik í fyrsta leik sínum
í Körfuboltahöllinni.
Í raun hefur ekki gengið alltof
vel hjá karlalandsliðunum okkar
í London fyrir utan þessa leiki í
Koparkassanum og því til stuðn-
ings má nefna tap fótboltalands-
liðsins fyrir Trínidad og Tóbagó
á Loftus Road í febrúar 2006 eða
tvö töp í hinum leikjum fótbolta-
landsliðsins í höfuðborg Eng-
lands. En þessi leikur fer sem
betur fer fram í Koparkassan-
um og þar Ísland á fimm leikja
sigurgöngu.
- óój
Ísland með 100 prósent sigurhlutfall í Koparkassanum
Landsleikurinn gegn Bretlandi annað kvöld fer fram í íþróttahöll þar sem Ísland hefur aldrei tapað.
GÓÐUR Martin Hermannsson var góður í fyrri
leiknum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
TENNIS Spænski tenniskappinn
Rafael Nadal verður ekki með á
Opna bandaríska meistaramótinu
í tennis sem fer fram í New York
25. ágúst - 8. september. Nadal
tilkynnti í gær að hann yrði
að draga sig úr keppni vegna
meiðsla á hægri úlnlið. Hann
meiddist á æfingu í júlí og hefur
æft í gifsi undanfarnar vikur.
Það er því ljóst að Nadal, sem
situr í öðru sæti heimslistans,
mun ekki verja titil sinn á Opna
bandaríska, en hann lagði Novak
Djokovic í úrslitaleik mótsins í
fyrra. Hann hrósaði einnig sigri
á mótinu árið 2010.
Fyrr á árinu vann Nadal sigur
á Opna franska meistaramótinu,
en hann hefur unnið mótið níu
sinnum á síðustu tíu árum. Alls
hefur Spánverjinn unnið 14 risa-
mót á ferlinum. - iþs
Nadal ver ekki
titilinn
MEIDDUR Rafael Nadal verður ekki
með á Opna bandaríska. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
KÖRFUBOLTI Íslandsmeistarar
Snæfells í Dominos-deild kvenna
í körfubolta mæta til leiks án eins
síns allra besta leikmanns næsta
vetur. Guðrún Gróa Þorsteins-
dóttir er að flytja til Danmerkur
og verður ekki með Hólmurum á
komandi leiktíð. Þetta kom fram
á karfan.is í gær.
Guðrún Gróa spilaði mjög vel
á síðustu leiktíð og sérstaklega í
úrslitakeppninni, en hún skoraði
10,4 stig, tók 7,3 fráköst og gaf
2,6 stoðsendingar að meðaltali í
leik. Þá má ekki gleyma að Gróa
er einn allra besti varnarmaður
deildarinnar.
Hildur Kjartansdóttir, mið-
herjinn sterki, verður heldur ekki
með Snæfelli á næstu leiktíð því
hún er á leið til Bandaríkjanna í
nám. Bæði Gróa og Hildur voru í
úrvalsliði Dominos-deildarinnar
á síðustu leiktíð. - tom
Gróa yfi rgefur
Hólminn
FLYTUR ÚT Guðrún Gróa finnur sér
vonandi lið í Danmörku. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI