Fréttablaðið - 04.09.2014, Síða 1
FRÉTTIR
Í þúsundir ára hafa frum-byggjar frá Mexíkó notað plöntukjarna til þess að lina og lækna verki og þjáningar. Sore No More er náttúrulegt og fljótvirkt verkjastillandi gel sem er án alkóhóls, kemískra íblönd-unarefna, rotvarnarefna og parabena. Sore No More hita- eða kæligel henta ein-staklega vel til þess að lina líkamlega verki og eymsli.
VERKURINN SNARMINNK-AÐI MEÐ SORE NO MOREÍna Jóhannsdóttir er tvítug-ur starfsmaður í Apótekar-anum, Helluhrauni. „Ég lenti í bílslysi 2010 og slasaðist á baki. Í kjölfarið hef ég fund-ið fyrir verkjum í baki sem eru til staðar oftar en ekki og inntaka verkjalyfja hefur ekki gagnast mér neitt. Ég prufaði Sore No More-kulda-kremið núna í sumar og þetta krem hefur algjörlega bjargað mér Á
VIRKAR STRAX Á VERKI OG EYMSLIGENGUR VEL KYNNIR Sore No More, náttúrulegt og fljótvirkt verkjastillandi
gel sem hentar einstaklega vel til þess að lina þráláta verki og eymsli.
HEFUR REYNST MJÖG VEL
Ína Jóhannsdóttir lenti í bílslysi árið 2010 og hefur síðan glímt við verki í baki. Eftir að hún fór að nota Sore No More-kælikremið hefur verkurinn snarminnkað.
MYND/GVA
HANNA FYRIR BALLETTBreska hönnunarstjarnan Mary Katrantzou hefur bæst í hóp
tískuhönnuða sem munu hanna búninga fyrir opnunarsýn-
ingu New York-ballettsins í lok mánaðar. Hinir hönnuðirnir
eru Carolina Herrera, Valentino Garavani, Thom Browne,
og Sarah Burton frá Alexander McQueen.
Frábært buxnaú
TÆKIFÆRISGJAFIRTILBOÐ - mikið af frábærum boðumtil
Laugaveg i 178 - S ím i : 568 9955
Hnífaparatöskur – 12 manna
14 tegundirVerð frá kr. 24.990
Grensávegi 46, ReykjavíkOpið mán. – fös. 9-18, lau. 11-15sími 511 3388
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup apríl-júní 2014
Fimmtudagur
22
SÉRBLAÐ
Fólk
Sími: 512 5000
4. september 2014
207. tölublað 14. árgangur
Við viljum kortleggja
betur hvað foreldrar eru
óánægðir með.
Björk Vilhelmsdóttir,
formaður velferðarráðs Reykjavíkur
foreldra telja
að fatlað
barn þeirra sé einmana.
70%
MENNING Emil Hjörvar
Petersen sendir frá sér tvær
bækur í haust. 32
SPORT Undirbúningurinn
fyrir undankeppni EM 2017
er hafinn, segir Freyr. 46
SKOÐUN Katrín Jakobs-
dóttir skrifar um hærri
matarskatt. 23
FULL BÚÐ AF
FLOTTUM ÚLPUM
Reykjavík • Hallarmúla 2 • 563 6900 | Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900
Í FRÉTTABLAÐINU Í DAG • ÓTRÚLEG AFMÆLISVEISLA
NÝR 16BLS
BÆKLINGUR
FLJÓTLEGT
OG ÞÆGILEGT
EVRÓPUMÁL ESA, eftirlitsstofnun
EFTA, hefur sent íslenskum
stjórnvöldum erindi þar sem
útskýringa er krafist á því hvers
vegna ekki sé búið að innleiða
Evrópulöggjöf um raforku hér á
landi. Sjö ár eru síðan stjórnvöld
áttu að innleiða löggjöfina.
Erindi ESA kemur í kjölfar
kvörtunar sem stofnuninni barst
þann 8. ágúst síðastliðinn. Í kjöl-
farið sendi ESA bréf til iðnaðar-
og nýsköpunarráðuneytisins þar
sem ráðuneytið er krafið svara
um ýmis atriði er varða innleið-
ingu Evrópulöggjafar í orku-
málum áður en formleg athugun
verður hafin.
Komist ESA að þeirri niður-
stöðu að íslensk stjórnvöld hafi
ekki uppfyllt skuldbindingar
sínar gagnvart EES getur eftir-
litsstofnunin stefnt íslenskum
stjórnvöldum fyrir Evrópudóm-
stólinn.
Kvörtunin til ESA snýst um að
íslensk stjórnvöld hafi ekki inn-
leitt að fullu löggjöf um innri
markað raforku. Sú löggjöf var
samþykkt 2005 og var EES-ríkj-
um gefinn frestur til 1. júní 2007
til að innleiða hana.
Dr. Gunnar Þór Pétursson,
dósent við lagadeild Háskólans í
Reykjavík og sérfræðingur í Evr-
ópurétti, segir það ekki óvana-
legt að ESA fái inn á borð til sín
kvartanir sem þessar. Það sé þó
sjaldgæft að kvartanir berist
vegna vanefnda á innleiðingum
tilskipunar sjö árum eftir að hún
átti að taka gildi.
„Við vitum af svonefndum inn-
leiðingarhalla hér á landi þar sem
við Íslendingar erum einna slak-
astir EES-ríkjanna í að innleiða
Evrópulöggjöfina tímanlega.
Hvað raforkulöggjöfina snertir
þá hefur Ísland innleitt hluta af
raforkulöggjöfinni. Ef svo reyn-
ist að íslensk stjórnvöld hafi ekki
innleitt alla löggjöfina þá gæti
það verið brot á EES-sáttmálan-
um,“ segir Gunnar Þór.
Hann segir að sá möguleiki sé
fyrir hendi að brot sem þetta geti
haft bótaskyldu í för með sér, ef
einstaklingar eða fyrirtæki hafa
orðið fyrir tjóni. - sa
Hafa trassað að innleiða
Evrópulöggjöf í rúm sjö ár
ESA hefur verið send kvörtun vegna meintra vanefnda íslenskra stjórnvalda á EES-skuldbindingum. ESA hefur
sent iðnaðarráðuneytinu bréf og óskar svara við því hvers vegna orkulöggjöf hefur ekki verið innleidd.
VELFERÐARMÁL Meira en helmingur
foreldra fatlaðra barna telur að barn
þeirra vanti félagsskap og aðstoð
til að taka þátt í tómstundastarfi og
félagslífi. Einnig telja um sjötíu pró-
sent foreldra fatlaðra barna að barn-
ið þeirra upplifi sig oft eða stundum
einmana.
Þetta kemur fram í niðurstöðum
könnunar Félagsvísindastofnunar
Háskóla Íslands um viðhorf og
afstöðu notenda þjónustu við fatlað
fólk. Ef niðurstöðurnar eru bornar
saman við sambærilega könnun frá
2011 kemur í ljós að áhyggjur for-
eldra hafa þyngst verulega.
Björk Vilhelmsdóttir, formaður
velferðarráðs Reykjavíkur, segir
könnunina vera á dagskrá velferð-
arráðs í dag.
„Við viljum kortleggja betur hvað
foreldrar eru óánægðir með svo við
getum mætt frekar þörfum þeirra,“
segir hún. - ebg / sjá síðu 6
Áhyggjur foreldra þyngjast samkvæmt niðurstöðum nýrrar könnunar:
Fötluð börn félagslega einangruð
Við Íslend-
ingar erum
einna slakastir
EES-ríkjanna í
að innleiða
Evrópulöggjöf-
ina tímanlega.
Dr. Gunnar Þór Pétursson,
dósent við lagadeild HR
LÍFIÐ Skemmtileg og
nýstárleg námskeið í boði í
heilsurækt í haust. 40
Bolungarvík 9° SV 2
Akureyri 12° SA 2
Egilsstaðir 11° NA 3
Kirkjubæjarkl. 10° NA 8
Reykjavík 12° NV 4
Víða bjart Vindur verður yfirleitt
hægur í dag, 2-6 m/s en aðeins hvassara
við SA-ströndina. Víða bjart en fremur
skýjað og dropar aðeins SA- og A-til. 4
Stefnuleysi í ofbeldis-
málum
Engin samræmd stefna er til um
hvernig eigi að bregðast við ofbeldis-
málum hér á landi. Engin samræmd
tölfræði er til um fjölda ofbeldis-
verka. 12
Árgjöld hjá Hljóðbókasafni
Hljóðbókasafn Íslands hefur ákveðið
að innheimta árgjald af lánþegum
sínum. Það hefur ekki fengið hækkun
á fjárlögum frá hruni. 2
Næstu skref í afnámi hafta
Munurinn á aflandsgengi og almennu
gengi íslensku krónunnar er helmingi
minni en hann var í upphafi árs. 4
LOKAÐ FYRIR UMFERÐ Lögreglustjórinn á Húsavík ákvað í ljósi aukins óróa á gosstöðvunum í Holuhrauni í gærkvöldi að loka fyrir alla frekari umferð inn á svæðið
norðan Vatnajökuls. Fjölmiðlar og vísindamenn höfðu verið með takmarkaðan aðgang að svæðinu að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Samkvæmt upplýsingum frá Veður-
stofunni í gærkvöldi hafði eldgosið náð yfir 9,1 ferkílómetra svæði, samkvæmt síðustu mælingum, og hafði hraunrennslið ekkert minnkað. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN